Júlíus Vífill sakar systkini sín um að draga sér fé foreldra þeirra

Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trú­inn Júlíus Vífill Ingv­ars­son sakar syskini sín um að hafa dregið sér tugi millj­óna af reikn­ingum móður þeirra. Þau segja Panama­sjóð hans vera sjóð for­eldra þeirra.

Júlíus Vífill Ingv­ars­son sakar systk­ini sín um að hafa dregið sér tugi millj­óna af banka­reikn­ingi móður þeirra. Þetta gerir hann í við­tali við Morg­un­blaðið í dag. Í blað­inu bregst hann við umfjöllun Kast­ljóss í gær­kvöldi um hann og fjöl­skyld­una.

Í Kasljósi í gær kom fram að tvö systk­ini Júlíusar og syst­ur­sonur hans segja að hann hafi við­ur­kennt fyrir þeim að í aflands­fé­lagi hans í Panama hafi verið pen­ingar upp­runir frá for­eldrum þeirra. Pen­ing­anna hafði móðir þeirra ásamt hluta fjöl­skyld­unnar leitað í rúman ára­tug. Um var að ræða sjóð í erlendum banka sem faðir þeirra, Ingvar Helgason, hafði safnað umboðs­launum frá erlendum bíla­fram­leið­endum inn á alla tíð.

Júlíus Vífill segir í Morg­un­blað­inu í dag að honum þyki þáttur Kast­ljóss í gær hafa verið lág­punktur í frétta­flutn­ingi og hann hafi verið „yfir­fullur af rang­færslum.“ Hann seg­ist hafa leið­rétt margt í sím­tölum við stjórn­endur þátt­ar­ins en lít­ill áhugi hafi verið á því að fá „nema eina bjag­aða hlið á mál­inu.“ Hann útskýrir ekki í hverju þessar rang­færslur felist.

Fram kom hins vegar í Kast­ljósi í gær að ítrekað hefur verið haft sam­band við bæði Júlíus og bróður hans Guðmund Ágúst, bæði í sím­tölum og með tölvu­pósti. Þar hafi verið óskað svara við ýmsum spurn­ingum um málið, og þeim verið boðið að koma í við­tal, en þeir bræður hafi kosið að svara engu.

Júlíus Vífill sagði hins vegar í yfir­lýs­ingu í gær að ýmist væru ásak­anir systk­ina hans algjör ósann­ingi eða ómerki­leg ill­mælgi. Það sé ótrú­lega ófyr­ir­leitið að halda því fram að hann hafi gengið í eða sölsað undir sig sjóði í eigu ann­arra.

Fram kom einnig í Kast­ljósi í gær að móðir systk­in­anna, Sigríður Guð­munds­dóttir, hefði sent bönkum í Evrópu og Banda­ríkj­unum bréf í leit sinni að þessum sjóði eig­in­manns síns eftir að hann var lát­inn og fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Ingvar Helgason hafði verið selt fyrir lít­inn pen­ing. Júlíus Vífill segir að það hafi verið erfitt að sjá systk­ini sín halda því fram að móðir þeirra hafi verið fjár­þurfi í ell­inni. „Hún var sem betur fer mjög vel efnum búin og skorti ekk­ert, en því miður þjáð í mörg ár af Alzheimer. Vænt­an­lega hefðu sömu ein­stak­lingar og tala með þessum hætti farið var­legar með fjár­muni hennar ef sú hefði verið raunin í stað þess að draga sér tugi millj­óna af banka­reikn­ingi hennar,“ segir hann í Morg­un­blað­inu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár