Félög í Lúxemborg kaupa nýtt hlutafé í 365 miðlum

Hjónin Ingi­björg Pálma­dóttir og Jón Ásgeir Jóhann­es­son hafa hert tök sín á 365. Félag Ingi­bjargar og tvö önnur félög með tengsl við Lúx­em­borg hafa keypt nýtt hlutafé í fyr­ir­tæk­inu. For­stjóri 365 vill ekki segja hver eigi þau félög.

Í lok síð­asta árs, nánar til­tekið á gaml­árs­dag, var sam­þykkt hluta­fjár­aukn­ing í stærsta einka­rekna fjömiðla­fyr­ir­tæki lands­ins, 365 miðlum. Þá skráðu þrír aðilar sig fyrir nýju hlutafé og borg­uðu sam­tals 550 millj­ónir króna fyrir. Allir aðil­arnir þrír eru með rík tengsl við Lúx­em­borg. Og við hjónin Ingi­björgu Stefaníu Pálma­dóttur og Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Þetta kemur fram í skjölum sem send hafa verið til fyr­ir­tækja­skráar. Ekki fást upp­lýs­ingar hjá 365 miðlum hverjir eru end­an­legir eig­endur tveggja þeirra félaga sem nú eru hlut­hafar í fyr­ir­tæk­inu og Fjöl­miðla­nefnd hefur ekki verið upp­lýst um eig­enda­breyt­ing­una.

Jón Ásgeir var aðal­eig­andi 365 miðla árum saman. Eftir að honum tókst að halda yfir­ráðum yfir fjöl­miðla­veld­inu með til­færslu á eignum nokkrum vikum eftir banka­hrun færð­ist eign­ar­haldið í nokkrum skrefum frá honum til eig­in­konu hans, Ingi­bjargar, í gegnum hluta­fjár­aukn­ingar að mestu. Hún hefur verið langstærsti eig­andi 365 und­an­farin ár. Breyting varð á eign­ar­hald­inu þegar fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Tali var rennt saman við 365 og fyrrum eig­endur þess bætt­ust í hlut­hafa­hóp 365. Á meðal þeirra voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og ýmsir fjár­festar sem tengj­ast sjóðnum Auði 1, sem er stýrt af fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Virðingu. Þessi hópur átti um fimmt­ung í 365 eftir sam­run­ann.

Áskildi sér rétt til að vefengja hlutafjáraukninguna

Þann 17. des­em­ber 2015 var boðað til hlut­hafa­fundar í 365 miðlum. Þar var sam­þykkt að lækka B-hluta­bréf í félag­inu um 230 millj­ónir króna. Eigandi allra B-hluta í 365 er félag á vegum Ingi­bjargar Pálma­dóttur, Apogee ehf., og átti lækk­unin að greið­ast út til þess. Það skil­yrði var sett fyrir lækk­un­inni að hana mátti ekki greiða út fyrr en að búið væri að ganga frá aukn­ingu á útgáfu A-hluta­bréfa í félag­inu eða fyrr en lán­veit­ing frá eig­anda bréf­anna fyrir sömu fjár­hæð og greidd væri út.

Á sama fundi var lögð fram til­laga um að hækka A-hlutafé í 365 miðlum um allt að einn millj­arð króna. Fyrri hlut­hafar, utan þeirra sem áttu undir tvö pró­sent hlut, máttu taka þátt í þess­ari hluta­fjár­aukn­ingu sam­vkæmt til­lög­unni, en þeir þurfti þá að greiða 1,16 krónur á hlut. Nýir hlut­hafar myndu hins vegar greiða eina krónu á hlut. Það þýðir að ef til dæmis stærsti hlut­haf­inn, lúx­em­búrgíska félagið Moon Capital S.a.r.l. í eigu Ingi­bjargar, ætl­aði að kaupa allt nýja hluta­féð þyrfti það að greiða 1.160 millj­ónir króna fyrir það. Ef nýr hlut­hafi keypti það myndi sá hins vegar þurfa að greiða einn millj­arð króna.

[adspot]

Einn minnsti hlut­haf­inn í 365 er félag sem heitir Volta ehf. Það er í eigu Kjartans Ólafs­sonar fjár­festis, sem hafði fjár­fest í Tali fyrir nokkrum árum ásamt eig­endur fjár­fest­inga­sjóðs­ins Auðar 1, og varð eig­andi í 365 eftir sam­ein­ingu þess fyr­ir­tækis og Tals á árinu 2014. Kjartan sam­þykkti hluta­fjár­aukn­ing­una á fund­inum en lagði fram bókun vegna hennar. Í henni segir:

„Fulltrúi Volta ehf. felst á fram komna til­lögu en óskar jafn­framt að bókað verði í fund­ar­gerð að hluta­fjár­hækkun á geng­inu 1,0 sé sam­þykkt á grund­velli þeirrar for­sendu að um sé að ræða nýjan hlut­hafa ótengdan núver­andi hlut­höfum sem komi að félag­inu og að þess verði gætt að hlut­höfum verði ekki mis­munað í fyr­ir­hug­uðu ferli[...]Allur réttur sé áskil­inn til að vefengja hluta­fjár­aukn­ing­una verði mis­brestur á öðru hvoru“.

Í kjöl­farið var aukn­ingin sam­þykkt og fund­inum slitið. Heim­ildin til að auka hluta­féð var tíma­bundin í tólf mán­uði, eða út árið 2016.

Gamlir vinir og samstarfsmenn í stjórn nýs eigenda

Þann 26. febr­úar 2016 barst fyr­ir­tækja­skrá til­kynn­ing frá 365 miðlum um breyt­ingu á hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Það hafði verið hækkað og þrír aðilar hefðu skuld­bundið sig til að greiða 550 millj­ónir króna fyrir nýtt hlutafé sem gefið hafði verið út. Í fund­ar­gerð stjórnar 365 sem fylgdi til­kynn­ing­unni kemur fram að aðil­arnir þrír hafi sam­þykkt að kaupa hið aukna hlutafé á stjórn­ar­fundi á gaml­árs­dag 2015. Tveir þeirra keyptu á geng­inu 1,16, sem þýðir að þeir tengj­ast fyrri eig­endum.

Annar kaup­and­inn, sá sem keypti mest, var Moon Capital S.a.r.l. sem skráði sig fyrir nýju hlutafé upp á 230 millj­ónir króna. Þar er að öllum lík­indum um að ræða nýt­ingu á því fé sem félagið fékk þegar B-hluta­bréf voru lækkuð um sömu upp­hæð. A-hluta­bréfum í 365 fylgja mun meiri rétt­indi og völd en B-hluta­bréfum og því styrkti Moon Capital, sem er skráð í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, stöðu sína í hlut­hafa­hópi 365 með þessum breyt­ingum.

Hinn aðil­inn sem greiddi 1,16 krónur á hlut í aukn­ing­unni, og borg­aði alls 120 millj­ónir króna í reiðufé inn í fyr­ir­tækið, heitir ML 120 ehf. Félagið er skráð til heim­ilis á Suð­ur­lands­braut 4, hjá lög­mann­stof­unni Mörkinni. Eigendur þeirra stofu vinna mikið fyrir Jón Ásgeir og Ingi­björgu og einn þeirra, Einar Þór Sverr­is­son, situr í stjórn 365 miðla fyrir þeirra hönd.

Það má ekki rugla félag­inu ML 120 ehf. saman við félagið ML 102 ehf. Það síð­ar­nefnda, sem er í eigu Moon Capital S.a.r.l. Ingi­bjargar Pálma­dóttur, átti 12,8 pró­sent hlut í 365 fyrir aukn­ing­una. Hið fyrr­nefnda var hins vegar að koma inn sem nýr eig­andi. ML 120 er í eigu félags sem skráð er í Lúx­em­borg, og ber heitið Eurice Participations S.A. Sá sem stýrir því félagi, sam­kvæmt gögnum úr fyr­ir­tækja­skránni í Lúx­em­borg, er maður sem heitir Karim Van den Ende, og starfar náið með Jóni Ásgeiri og Ingi­björgu. Í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu, sem lekið var frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca, kemur m.a. fram að Van den Ende, sem er Belgi, hafi verið með pró­kúru­um­boð fyrir Guru Invest, fjár­fest­inga­fé­lags hjón­anna í Panama sem fjár­magnað hefur verk­efni þeirra á Íslandi og í Bret­landi á und­an­förnum árum. Þegar Kjarninn og Stundin, í sam­starfi við Reykja­vik Media, fjöll­uðu um aflands­fé­laga­net Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs, sem opin­berað er í Panama­skjöl­unum, voru þau spurð um hvaðan fjár­mun­irnir sem væri í Guru Invest hefðu komið, hvort þær hefðu verið til­greindar í skulda­upp­gjörum þeirra við kröfu­hafa á Íslandi og hvort fé úr Guru Invest hefði runnið til félaga eða ein­stak­linga á Íslandi. Þau svör­uðu spurn­ing­unum ekki efn­is­lega.

Don, Sigurður og Þorsteinn

Hinn eig­and­inn sem bætt­ist við hluta­hafa­hóp 365 miðla, og keypti nýtt hlutafé fyrir 200 millj­ónir króna, er félagið Grandier S.A. í Lúx­em­borg. Ekki er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hver sé end­an­legur eig­andi þess félags en sam­kvæmt til­kynn­ingum sem borist hafa til fyr­ir­tækja­skrá­ar­innar í Lúx­em­borg voru þrír menn skip­aðir í stjórn félags­ins í fyrra­sumar, nánar til­tekið í júlí 2015. Þeir eru Don McCharthy, stjórn­ar­for­maður House of Frasier og náinn við­skipta­fé­lagi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar til margra ára, Sigurður Bollason, umsvifa­mik­ill íslenskur fjár­festir sem hefur einnig unnið mikið og náið með Jóni Ásgeiri í gegnum tíð­ina, og Þor­steinn Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri lúx­em­búrgíska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Arena Wealth Mana­gement. Lekar frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca, sýna að Þor­steinn er umsjón­ar­að­ili félaga í eigu Ingi­bjargar, og sem lotið hafa stjórn Jóns Ásgeirs, sem eiga skráð heim­il­is­festi í þekktum skatta­skjólum. Á meðal þeirra félaga er áður­nefnt Guru Invest.

Don McCharthy stofn­aði fjár­fest­inga­fé­lagið JMS Partners með Jóni Ásgeiri og Gunnari Sig­urðs­syni, fyrrum for­stjóra Baugs, árið 2010. Sigurður Bollason fjár­festi mikið fyrir hrun í verk­efnum sem tengd­ust Baugi. Hann sat meðal ann­ars í stjórn FL Group um tíma og var í fámennum hópi manna sem tók þátt í steggja Jón Ásgeir á ensku sveita­setri árið 2007.

Ekki tilkynnt til Fjölmiðlanefndar

Samkvæmt fjöl­miðla­lögum ber að til­kynna um allar eig­enda­breyt­ingar fjöl­miðla innan tveggja vikna frá því að þær eiga sér stað. Þrátt fyrir að hluta­fjár­aukn­ing 365 hafi verið frá­gengin á stjórn­ar­fundi 31. des­em­ber 2015 hefur breytt eign­ar­hald ekki verið til­kynnt til fjöl­miðla­nefndar.

Forstjórinn neitar að upplýsa um eigendur

Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365, segir ástæðu hluta­fjár­aukn­ing­ar­innar vera ein­falda: Það sé verið að auka hlutafé til að styrkja und­ir­liggj­andi starf­semi.

Þegar Kjarninn spurði Sævar hverjir væru eig­endur félag­anna ML 120 ehf. og Grandier S.A. í Lúx­em­borg, sem nýverið bætt­ust í eig­enda­hóp 365, vildi Sævar ekki svara því fyrr en hann væri búinn að ráð­færa sig við lög­fræð­ing. Hann sagð­ist ætla að hafa sam­band að því loknu, en gerði það ekki og lét ekki ná í sig aftur.

Hagnaður á árinu 2015

365 miðlar sendu frá sér frétta­til­kynn­ingu í gær vegna rekstr­ar­af­komu árs­ins 2015. Þar kom fram að hagn­aður af rekstri hafi verið 22 millj­ónir króna á því ári, sem var mikil við­snún­ingur frá árinu 2014 þegar tap fyr­ir­tæk­is­ins var 1,4 millj­arðar króna. Árs­reikn­ingur 365 miðla fyrir árið 2015 hefur ekki verið birtur.

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að sam­ein­ing 365 og IP-fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Tals, á árinu 2014 hefði skilað fyr­ir­tæk­inu miklu skatta­hag­ræði. Skatta­inn­eign þess fór úr 31 millj­ón króna árið 2013 í 725 millj­ónir króna í lok síð­asta árs og yfir­fær­an­leg­t skatta­legt tap óx úr 2,3 millj­örðum króna í 4,3 millj­arða króna. Ástæðan er að ­mestu sú að Tal tap­aði iðu­lega miklu fé og safn­aði því upp nýt­an­legu skatta­leg­u tapi.

Alls tap­aði 365 miðlar 1,6 millj­arði króna á árinu 2014 en lækk­aði það tap með því að nýta sér skatta­inn­eign upp á 279 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár