Eigendur Tals fá 20 prósent hlut í 365 miðlum

Eigendur Tals munu fá 19,78 pró­sent hlut í 365 miðlum sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­runa félag­anna tveggja. Eign­ar­hlutur félaga á vegum Ingi­bjargar Pálma­dóttur, sem hefur verið aðal­eig­andi 365 miðla um nokk­urra ára skeið, minnkar við þetta niður í 77,97 pró­sent. Eigandi Tals í dag er félagið IP fjar­skipti. Eigendur þess eru fag­fjár­festa­sjóð­ur­inn Auður 1, sem á 94 pró­sent hlut, og Kjartan Örn Ólafsson, sem á sex pró­sent hlut. Við þessa breyt­ingu þynn­ist hlutur Ara Edwald, fyrrum for­stjóra 365 miðla, í fyr­ir­tæk­inu úr 6,2 pró­sentum í 2,25 pró­sent. Þessum upp­lýs­ingum var bætt inn á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar í gær.

Auður 1 er fram­taks­sjóður sem er rekstri fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Virð­ingar. Hann var stofn­aður árið 2008 og þá lögðu rúm­lega 20 fjár­festar honum til alls 3,2 millj­arða króna. Tal er eitt átta fyr­ir­tækja sem sjóð­ur­inn á hlut í.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru stærstu fjár­festar sjóðs­ins íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, þó þar sé einnig að finna ein­stak­linga. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins verða því óbeinir eig­endur að stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins verði sam­run­inn sam­þykktur.

 

Þarf að upplýsa um endanlega eigendur


Þeir fjár­festar sem leggja fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóðum eru vana­lega ekki opin­ber­lega nafn­greindir. Það gæti hins vegar orðið raunin með eig­endur Auðar 1.

Í fjöl­miðla­lög­unum sem sam­þykkt voru árið 2011 segir að skylt sé að veita fjöl­miðla­nefnd öll gögn og upp­lýs­ingar svo „rekja megi eign­ar­hald og/eða yfir­ráð til ein­stak­linga, almennra félaga, opin­berra aðila og/eða þeirra sem veita þjón­ustu fyrir opin­bera aðila og getur fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kraf­ist þess að fram­an­greindar upp­lýs­ingar skuli veittar“.

Ætla sér stóra hluti á fjarskiptamarkaði


365 virð­ist ætla sér að stóra hluti á fjar­skipta­mark­aði í nán­ustu fram­tíð. Fyr­ir­tækið tryggði sér fyrir nokkru nokkur leyfi fyrir 4G upp­bygg­ingu, er byrjað að selja netteng­ingar og tengja þær sér­stak­lega við áskrift að sjón­varps­miðlum 365 og réð Sævar Frey Þrá­ins­son, fyrrum for­stjóra Símans, sem for­stjóra í sumar. Samrunin við Tal er enn eitt skrefið í þeirri veg­ferð. Sá sam­runi er þó bund­inn sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, enda er 365 langstærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins í einka­eigu og með mark­aðs­ráð­andi stöðu á flestum sviðum aug­lýs­inga­mark­að­ar­ins á Íslandi.

[caption id="" align="alignnone" width="640"] Jón Ásgeir Jóhann­es­son hefur verið mjög tengdur 365 miðlum und­an­far­inn rúman ára­tug, fyrst sem aðal­eig­andi og nú sem eig­in­maður aðal­eig­and­ans, Ingi­bjargar Pálma­dóttur.[/caption]

Nokkur félög í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur verða áfram helstu eig­endur 365 verði sam­run­inn við Tal að veru­leika. Þau tóku við eign­ar­hald­inu af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, eig­in­manni Ingi­bjargar, sem fékk að kaupa fjöl­miðla 365 skömmu eftir hrun. Hann hafði einnig verið aðal­eig­andi gamla 365, sem fór síðar í þrot og gat ekki greitt kröfu­höfum sínum um 3,7 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár