Eignarhald 365 miðla opinberað, listinn birtur

Upplýst hefur verið um end­an­lega eig­endur á 18,6 pró­sent eign­ar­hlut í 365 miðlum á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið tregir til að upp­lýsa um hver eig­endur Auðar 1 fjár­fest­inga­sjóðs, sem stýrt er af fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Virðingu, séu. Fjöl­miðla­nefnd óskaði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­haldið þann 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn og gaf frest til 5. jan­úar. Þau svör sem bár­ust fyrir þann tíma þóttu ekki full­nægj­andi og því var óskað eftir ítar­legri upp­lýs­ingum. Þær hafa nú borist. Á meðal eig­enda eru margir helstu eig­endur Virð­ingar, íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og kröfu­hafar hins fallna banka Glitnis.

Eignarhald Auðar 1 er eftirfarandi:


AC eign­ar­hald hf., 10,6%. Hluta­skrá AC eign­ar­halds má nálg­ast hér.
Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, 9,4%
Sam­ein­aði líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, 6,3%
Stapi, líf­eyr­is­sjóður, 6,3%
Berglind Björk Jóns­dóttir, 6,3%
Monóna ehf., eig­andi Ragn­heiður Jóna Jóns­dóttir, 6,3%
Stafir líf­eyr­is­sjóður, 4,7%
Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, 4,7%
Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda, 4,7%
Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, 4,7%
Glitnir Eign­ar­halds­fé­lag, eig­endur kröfu­hafar Glitnis banka, 4,7%
Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins, 4,7%
Festa líf­eyr­is­sjóður, 3,1%
Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja, 3,1%
Ingunn Wernersdóttir, 3,1%
Arkur ehf., eig­andi Steinunn Jóns­dóttir, 3,1%
Hlut­deild, deild Vinnu­deilu­sjóðs SA, 3,1%
Líf­eyr­is­sjóður verk­fræð­inga, 1,6%
Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna sveit­ar­fé­laga, 1,6%
Eign­ar­halds­fé­lagið Bruna­bóta­fé­lag Íslands, 1,6%
Erna Gísla­dóttir, 1,6%
Heið­ar­lax ehf., eig­andi Rudolf Lamprecht, 1,5%
Guðbjörg Edda Egg­erts­dóttir, 1,2%
KP Capital ehf., eig­andi Kristín Pét­urs­dóttir, 0,8%
Jón Sig­urðs­son, 0,8%
Miðeind ehf., eig­andi Vil­hjálmur Þor­steins­son, 0,8%

Kjarninn hafði greint frá því í lok des­em­ber hvernig eign­ar­haldi Auðar 1 væri háttað að mestu. Langstærsti ein­staki eig­andi 365 miðla er Ingi­björg Pálma­dóttir og félög á hennar vegum með tæp­lega 80 pró­sent eign­ar­hlut. Ingi­björg og félög hennar eiga einnig 100 pró­sent B-hluta­bréfa í 365 miðlum.

Afleiðing af sameiningu við Tal


365 miðlar, langstærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, og Tal sam­ein­uð­ust í des­em­ber undir merkjum 365 eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti sam­runa félag­anna, með skil­yrðum. Við það eign­uð­ust fyrrum hlut­hafar Tals 19,8 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi, sem mun bera nafn 365 miðla. Stærsti eig­andi Tals var Auður 1, sjóður í stýr­ingu hjá Virðingu, en hann á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum eftir að sam­run­inn gekk í gegn. Líkt og tíðkast með fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóði er eign­ar­hald hans ekki opin­bert.

Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum frá fjöl­miðla­nefnd um hvort kallað hefði verið eftir upp­lýs­ingum um hvert end­an­legt eign­ar­hald á sjóðnum Auður 1 væri, enda segir í fjöl­miðla­lögum að nefndin eigi að fá allar upp­lýs­ingar og gögn svo „rekja megi eign­ar­hald og/eða yfir­ráð til ein­stak­linga, almennra félaga, opin­berra aðila og/eða þeirra sem veita þjón­ustu fyrir opin­bera aðila og getur fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kraf­ist þess að fram­an­greindar upp­lýs­ingar skuli veittar“.

Þau svör feng­ust upp­runa­lega að nefndin hefði leitað eftir upp­lýs­ingum haustið 2014. Þar feng­ust þær upp­lýs­inga að starfs­menn Virð­ingar væru stjórn­ar­menn í Auði 1 og héldi á meiri­hluta atkvæð­is­réttar í félag­inu. Því skiptu eig­endur sjóðs­ins ekki máli. Það var því mat nefnd­ar­innar að sækj­ast ekki eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­haldið.

Kjarninn fjall­aði um málið í kjöl­farið og degi síðar hafi fjöl­miðla­nefnd skipt um skoðun og kall­aði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­haldið. 365 miðlar fékk frest til að svara þar til, 5. jan­úar. Svarið sem barst þótti ekki full­nægj­andi og því óskaði fjöl­miðla­nefnd eftir frek­ari upp­lýs­ingum, sem hafa nú borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár