Mossack Fonseca stefnir Netflix

Mossack Fonseca, lög­manns­stofan alræmda, hefur stefnt Netflix vegna kvik­myndar streym­isveit­unnar um Panama­skjölin.

Meryl Streep er ein af aðalleikurum myndarinnar.
Meryl Streep er ein af aðal­leik­urum mynd­ar­innar. Mynd: EPA

Lög­manns­stofan Mossack Fonseca hefur stefnt Netflix vegna kvik­myndar streym­isveit­unnar um Panama­skjölin. Í mál­sókn­inni mót­mæla lög­menn­irnir Jürgen Mossack og Ramón Fonseca því að myndin sýni þá sem „mis­kunn­ar­lausa, óskyn­sama og sið­lausa lög­fræð­inga“ sem stund­uðu pen­inga­þvætti, skatt­svik og önnur glæp­sam­leg athæfi til hags­bóta fyrir auð­menn. Frá þessu er greint á vef New York Times.

Stærsti gagnaleki sögunnar

[links]Mossack Fonseca komst í heims­frétt­irnar fyrir þremur árum þegar Panama­skjölin voru birt. Panama­skjölin eru stærsti gagna­leki sög­unnar en í þeim mátti finna upp­lýs­ingar úr gagna­safni lög­fræði­stof­unnar Mossack Fonseca. Upp­lýs­ingar um 210.000 aflands­fé­lög sem stofnuð voru í 21 landi víðs­vegar um heim­inn. Meðal þeirra sem keyptu þjón­ustu stof­unnar var fólk úr við­skipta­líf­inu á Íslandi auk stjórn­mála­leið­toga víðs­vegar um heim­inn. Þeirra á meðal voru fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Kvik­myndin ber heitið The Laun­dro­mat eða þvotta­húsið. Leik­stjóri mynd­ar­innar er Steven Soder­bergh og með aðal­hlut­verk fara Meryl Streep, Antonio Banderas og Gary Oldman. Kvik­myndin er byggð á bók Jake Bern­stein: Secrecy World: Inside the Panama Papers Investigation of Illicit Money Networks and the Global Elite sem gefin var út fyrir tveimur árum. Í bók­inni fer höf­undur ofan í saumana á hvernig Mossack Fonseca aðstoð­aði fjölda ein­stak­linga við að fela auð sinn og kom­ast hjá skatt­greiðslum.

Myndin hefur nú þegar við sýnd á kvik­mynda­há­tíðum í Feneyjum og Toronto sem og ákveðnum kvik­mynda­húsum en á morgun, þann 18. októ­ber, fer hún í dreif­ingu á streym­isveit­unni Netflix.

Vilja að dreifing kvikmyndarinnar á Netflix verði stöðvuð

Mossack Fonseca hefur hins vegar höfðað mál gegn Netflix vegna kvik­mynd­ar­innar á þeim grund­velli að þeim þyki myndin draga upp ranga mynd af félög­unum Mossack og Fonseca. Lög­manns­stofan kærir streym­isveit­una vegna meið­yrða, inn­rás á frið­helgi einka­lífs og vöru­merkja­brota.

Lög­manns­stofan krefst meðal ann­ars þess að dóm­ari fyr­ir­skipi Netflix að stöðva dreif­ingu mynd­ar­innar á streym­isveitu þeirra. Lög­manns­stofan heldur því fram í mál­sókn sinni að víð­tæk dreif­ing Netflix á kvik­mynd­inni gæti leitt til frek­ari rann­sókna í Panama og gæti haft áhrif á rétt Mossack og Fonseca til rétt­látrar máls­með­ferðar í Banda­ríkj­unum.

Fyr­ir­tækið, sem hafði tugi skrif­stofu um allan heim, hefur verið rann­sakað af lög­gæslu­yf­ir­völdum í nokkrum löndum vegna ásak­ana um tengsl við pen­inga­þvætti.

Netflix neit­aði að tjá sig um málið við New York Times en fyr­ir­tækið hefur lagt fram beiðni um að alrík­is­dóm­stól­inn í Connecticut vísi mál­inu frá á grund­velli þess að hvorki Mossack Fonseca né Netflix hafi höf­uð­stöðvar í Connecticut né nokk­urs­konar tengsl þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár