Fyrrum stjórn 365 greiddi tugmilljóna skaðabætur

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Pálmi Har­alds­son, Magnús Ármann og Þor­steinn M. Jónsson greiddu sjóði í eigu Lands­banka Íslands tugi millj­óna króna fyrir að falla frá skaða­bóta­máli á hendur sér. Málið, sem var upp­haf­lega tekið fyrir í hér­aðs­dómi haustið 2011, snýst um fléttu sem stjórn 365 ehf. greip til snemma í nóv­em­ber 2008 þegar allir fjöl­miðlar félags­ins voru seldir til félags í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar fyrir tæp­lega 1,4 millj­arða króna. Eftir í 365 ehf., sem síðar var end­ur­nefnt Íslensk afþrey­ing ehf., urðu millj­arða skuldir, meðal ann­ars við sjóð Lands­bank­ans.

Dómskvaddir mats­menn komust síðar að þeirri nið­ur­stöðu að 365 ehf. hefði verið ógjald­fært á þeim tíma sem fjöl­miðl­arnir voru seldir til Jóns Ásgeirs og því hefði átt að gefa félagið upp til gjald­þrota­skipta sam­kvæmt lögum.

Í stað þess að gefa 365 ehf. upp til gjald­þrota­skipta ákváðu fjór­menn­ing­arnir, sem sátu í stjórn 365 ehf. á þessum tíma, að selja verð­mæt­ustu eignir þess til stærsta hlut­hafans Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og nota það fé sem fékkst fyrir til að greiða upp skulda­bréfa­flokk sem var á gjald­daga 5. nóv­em­ber 2008. Fimmti stjórn­ar­mað­ur­inn á þessum tíma, Árni Hauksson, greiddi atkvæði gegn sölu fjöl­miðl­anna og sagði sig í kjöl­farið úr stjórn­inni. Hann rök­studdi ákvörðun sína meðal ann­ars með því að hann teldi gjörn­ing­inn lög­brot.
Landsvaki, þá dótt­ur­fé­lag Lands­bank­ans sem rak umræddan sjóð, taldi að með þessu hefðu Jón Ásgeir, Pálmi, Magnús og Þor­steinn mis­munað kröfu­höfum og brugð­ist þeirri skyldu að gefa gjald­þrota­fé­lag upp til skipta. Því stefndi Landsvaki mönn­unum fjórum árið 2011 og krafð­ist skaða­bóta.

Sátt náð­ist í mál­inu í jan­úar 2013, en ekki hefur áður verið greint frá henni opin­ber­lega. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í sjóðnum greiddu menn­irnir fjórir nokkra tugi millj­óna króna til að losna frá mál­sókn­inni. Sömu heim­ildir herma að krafa Landsvaka hafi numið nálægt 130 millj­ónum króna. Hún hafi því ekki feng­ist öll greidd.

Þetta er örstutt brot úr grein­inni um 365-sátt­ina. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár