Skatteign 365 miðla jókst um 451 milljón króna við samrunann við Tal

Þegar Tal var sam­einað 365 miðlum fylgdi 451 milljón króna skatt­eign með í kaup­unum. Skatt­eign er inni­stæða sem hægt er að nýta til að greiða ekki skatta af hagn­aði sem ann­ars er skatt­skyldur.

Þetta kemur fram í sam­runa­efna­hags­reikn­ingi 365 miðla og IP Fjar­skipta, sem áður áttu Tal. Reikn­ing­ur­inn er dag­settur 1. júlí 2014 og sýnir stöðu félag­anna tveggja á þeim tíma­punkti. Hægt er að lesa sam­runa­efna­hags­reikn­ing­inn og önnur skjöl tengd sam­run­anum hér.

Stanslaust tap og miklar skuldir


365 miðlar og Tal sam­ein­uð­ust í byrjun des­em­ber 2014 undir merkjum 365 í kjöl­far þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti hann með skil­yrðum. Fyrrum hlut­hafar Tals, IP Fjar­skipti, fengu hlutafé í 365 upp á 354 millj­ónir að nafn­virði fyrir allt hluta­féð í Tal, sem var upp á 310 millj­ónir króna á nafn­virði. Því fengu hlut­hafar Tals alls 1,145 hlut í hlutafé 365 fyrir hverja krónu sem hluta­fjár í IP Fjar­skiptum. Þetta skilað fyrrum eig­endum Tals 19,78 pró­sent hlut í 365 miðlum.

Eigendur Tals voru fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Auður 1, sem átti 94 pró­sent, og félag í eigu Kjartans Arnar Ólafs­sonar, sem átti sex pró­sent. Þegar þessir eig­endur keyptu Tal árið 2010 greiddu þeir 594 millj­ónir króna fyrir fjar­skipta­fyr­ir­tækið.

[quote font="0" align="right"]Frá þeim tíma hefur rekstur Tals gengið illa. Félagið tap­aði 99 millj­ónum króna árið 2010, 92,9 millj­ónum króna árið 2011 og 197 millj­ónum króna árið 2012. Árið 2013 var tapið síðan 131 milljón króna og skuldir félags­ins á þeim tíma voru 498 millj­ónir króna umfram eignir.[/quote]

Frá þeim tíma hefur rekstur Tals gengið illa. Félagið tap­aði 99 millj­ónum króna árið 2010, 92,9 millj­ónum króna árið 2011 og 197 millj­ónum króna árið 2012. Árið 2013 var tapið síðan 131 milljón króna og skuldir félags­ins á þeim tíma voru 498 millj­ónir króna umfram eignir.

Samhliða hefur við­skipta­vina­fjöldi Tals hríð­fallið, bæði á mark­aði fyrir far­síma­þjón­ustu og í sölu á netteng­ingum.

Það veltu því margir fyrir sér hvað valdi því að Tal hefði verið svona hátt metið í sam­run­anum við 365.

Helmingur eigna óefnislegar eignir


Í sam­runa­efna­hags­reikn­ingi 365 og Tals kemur fram að eignir Tals hafi verið metnar á 282 millj­ónir króna í sam­run­anum. Skuldir félags­ins á sama tíma voru 735 millj­ónir króna, 453 millj­ónum krónum meiri en eignir félags­ins.

Við sam­ein­ing­una varð hins vegar til sam­runa­færsla sem bjó til skatt­eign upp á 451 milljón króna. Eftir hana jókst skatt­eign hins sam­ein­aða félags úr 80 millj­ónum króna í 531 millj­ónir króna. Til við­bótar juk­ust óefn­is­legar eignir hins sam­ein­aða félags um 357 millj­ónir króna. Þær standa nú í 6.444 millj­ónum króna og eru 52 pró­sent allra eigna 365, sem metnar eru á 12,5 millj­arða króna. Samtals skuldar hið sam­ein­aða félag 365 og Tals 8,7 millj­arða króna.

Eigendur Auðar 1, sem á 18,6 pró­sent hlut í 365, eru meðal ann­ars helstu eig­endur Virð­ingar, fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins sem stýrir sjóðnum, íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og kröfu­hafar hins fallna banka Glitnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár