Innkoma 365 miðla á netmarkaðinn breytti honum ekki mikið

Innkoma 365 miðla á inter­net­mark­að­inn hefur ekki breytt honum mikið. Síminn er enn alls­ráð­andi á þeim mark­aði og bætir við sig mark­aðs­hlut­deild, Vodafone tapar tæp­lega 1.800 við­skipta­vinum á milli ára en er samt með mjög sterka stöðu sem næst stærsta fyr­ir­tækið á þessum mark­aði. Saman voru þessi tvö fyr­ir­tæki, Síminn og Vodafone, með 81,2 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í lok júní síð­ast­lið­ins þegar fjöldi netteng­inga er skoð­aður eftir fyr­ir­tækjum. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem birt var í lok síð­ustu viku.

Alls voru 116.606 netteng­ingar á Íslandi um mitt ár 2014. Þeim hafði fjölgað um tæp­lega 2.300 á milli ára. Tæplega 60 þús­und þess­arra teng­inga eru hjá Símanum, sem þýðir að hann er með 51,2 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Fyr­ir­tækið bætir við sig tæp­lega 2.000 við­skipta­vinum á milli ára.

Vodafone er næst stærst á net­mark­aðnum þrátt fyrir að teng­ingum hjá fyr­ir­tæk­inu fækki um tæp­lega 1.800 milli ára. Mark­aðs­hlut­deild Vodafone er enn 30 pró­sent, en var 32,2 pró­sent á sama tíma í fyrra.

Tal tapar og 365 miðla ná ekki miklu til sín


Tal, sem er þriðja stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem selur netteng­ingar, tapar hlut­falls­lega mik­illi mark­aðs­hlut­deil á milli ára. Við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins fækk­aði um tvö þús­und og eru nú ein­ungis 9.217. Mark­aðs­hlut­deild Tals er 7,9 pró­sent.

Fyr­ir­tækið Hringdu bætir líti­lega við sig á milli ára og er nú tæpur hálf­drætt­ingur á við Tal.

[quote font="0" align="right"]365 miðlar hófu að bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti í fyrra­haust. Nýja töl­fræði­skýrslan er því sú fyrsta sem sýnir árangur fyr­ir­tæk­is­ins í sölu á netteng­ingum.[/quote]

365 miðlar hófu að bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti í fyrra­haust. Nýja töl­fræði­skýrslan er því sú fyrsta sem sýnir árangur fyr­ir­tæk­is­ins í sölu á netteng­ingum. Fjöldi þeirra teng­inga sem fyr­ir­tækið hefur náð að selja er ekki sér­stak­lega til­greindur í skýrsl­unni heldur er hann settur undir lið­inn „Aðrir“ ásamt öðrum sölu­að­ilum netteng­inga utan við Símann, Vodafone, Tal og Hringdu. Fjöldi netteng­inga undir þeim lið eykst um rúm­lega 3.500 á milli ára og var 8.522 í lok júní síð­ast­lið­ins. Því er ljóst að inn­koma 365 miðla á inter­net­mark­að­inn hefur að minnsta kosti ekki orsakað eðl­is­breyt­ingu á honum.

Fyr­ir­tækið á langt í land með að kom­ast nálægt Símanum og Vodafone, jafn­vel þótt fyr­ir­huguð sam­ein­ing þess við Tal, með sína rúm­lega níu þús­und við­skipta­vini, gangi eftir. Vert er þó að taka fram að ein­ungis er liðið um eitt ár síðan að 365 miðlar hófu að bjóða net­þjón­ustu. Í krafti gíf­ur­lega sterkrar stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á sjón­varps­mark­aði, og þess að það sam­einar áskrift af sjón­varpi og sölu á netá­skriftum í til­boðum, gæti mark­aðs­hlut­deild þess vaxið hratt á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár