Vodafone missir viðskiptavini, ný skýrsla PFS komin út

Vodafone tap­aði við­skipta­vinum í far­síma­þjón­ustu og í netteng­ingum á fyrri hluta þessa árs, Nova og Síminn bæta bæði við sig við­skipta­vinum í far­síma­þjón­ustu og sendum SMS-um fækkar á milli ára. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unnar (PFS) um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn sem var birt í dag.

Við­skipta­vinum Vodafone í far­síma­þjón­ustu fækk­aði um tæp­lega þús­und á milli ára auk þess sem félagið náði ekki í neinn þeirra níu þús­und við­skipta­vina sem bætt­ust við mark­aðin á milli ára.Vodafnoe missti einnig um 1.800 við­skipta­vini sem voru áður með net­þjón­ustu hjá félag­inu og náði ekki í neinn þeirra tvö þús­und nýrra við­skipta­vina sem fengu sér net­þjón­ustu á tíma­bil­inu.

Líklegt verður að telj­ast að inn­brot inn á heima­síðu Vodafone, sem átti sér stað að morgni 30. nóv­em­ber 2013, hafi haft tölu­verð áhrif á flótta við­skipta­vina frá félag­inu, sem er eina íslenska fjar­skipta­fyr­ir­tækið sem er skráð á markað. Þjófnum tókst að kom­ast yfir um 79 þús­und smá­skila­boð sem send höfðu verið af heima­síðu Vodafone á síð­ustu þremur árum, mik­inn fjölda lyk­il­orða við­skipta­vina Vodafone að not­enda­síðum þeirra hjá fyr­ir­tæk­inu, fjögur kredit­korta­númer og gríð­ar­legt magn upp­lýs­inga um möfn og kenni­tölur við­skipta­vina. Gögnin birti hann síðan opin­ber­lega. Stuld­ur­inn, og birt­ing gagn­anna, er stór­tæk­asta inn­rás í einka­líf Íslend­inga sem nokkru sinni hefur átt sér stað.

Tveir af hverjum þremur viðskiptavinum Nova í frelsi


Staða Nova á íslenska far­síma­mark­aðnum heldur áfram að styrkj­ast ár frá ári. Fyr­ir­tækið var með um 134 þús­und við­skipta­vini í lok júní síð­ast­lið­ins og tæp­lega þriðj­ungs­mark­aðs­hlut­deild. Við­skipta­vinum Nova hefur fjölgað um 27 þús­und á tveimur árum. Athygli vekur hins vegar að rúm­lega 89 þús­und við­skipta­vina Nova eru með fyr­ir­fram­greidd sím­kort. Það eru fleiri en slíkir við­skipta­vinir allra hinna síma­fyr­ir­tækj­anna sam­an­lagt. Alls eru tveir af hverjum þremur við­skipta­vinum Nova með fyr­ir­fram­greidd sím­kort. Til sam­an­burðar er tæp­lega fjórði hver við­skipta­vinur Símans með slíkt kort. Restin er í fastri þjón­ustu sem skilar stöðugri og meiri tekjum.

Síminn bætir við sig við­skipta­vinum á milli ára og er enn stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins með 37,1 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Vodafone tapar tæp­lega þús­und við­skipta­vinum á milli ára. Tal, sem bíður nú leyfis sam­keppn­is­yf­ir­valda fyrir því að fá að renna inn í 365 miðla, er í frjálsu falli þegar kemur að far­síma­þjón­ustu. Um mitt ár í fyrra voru við­skipta­vinir félags­ins 20.838. Ári síðar hafði þeim fækkað um 5.500 og mark­aðs­hlut­deild Tals mæld­ist ein­ungis 3,5 pró­sent.

SMS skila­boðum fækkar í fyrsta sinn.

Í skýrsl­unni kemur fram að SMS-smá­skila­boðum fækki á milli ára. Það er í fyrsta sinn sem það ger­ist síðan að smá­skila­boða­send­ingar í gegnum far­síma urðu hluti af sam­skipta­máta Íslend­inga. Alls voru tæp­lega 104 millj­ónir SMS-a send á fyrri hluta þessa árs, sem er um fimm millj­ónum færri en á sama tíma í fyrra. Við­skipta­vinir Nova eru lang­dug­leg­astir við að senda slík skila­boð. Þeir sendu sam­tals 68 milljón SMS á fyrri hluta þessa árs, eða 65,5 pró­sent allra sendra smá­skila­boða.

Þessi hnignun SMS-ins á fyrst og síð­ast rætur sinar að rekja til upp­gangs sam­skipta­for­rita á vegum Facebook, Apple og fleiri slíkra aðila. Slík for­rit eru í sífelldri sókn sam­hliða auk­inni notkun far­síma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár