Þegar Sjóvá var talið of stórt til að falla og ríkið bjargaði því

Háar arð­greiðslur trygg­inga­fé­laga hafa verið mikið gagn­rýndar. Einungis sex og hálft ár er síðan að íslenska ríkið þurfti að taka yfir trygg­inga­fé­lag sem þótti of stórt til að falla. Eigendur þess höfðu þá greitt sér út 19,4 millj­arða í arð á þremur árum.

Sjóvá var skráð á markað í apríl 2014. Tæpum fimm árum áður þurfti íslenskra ríkið að bjarga félaginu.
Sjóvá var skráð á markað í apríl 2014. Tæpum fimm árum áður þurfti íslenskra ríkið að bjarga félag­inu. Mynd: Nasdaq Iceland

Tillögur stjórna þriggja stærstu trygg­inga­fé­laga lands­ins, VÍS, Trygg­ing­ar­mið­stöð (TM) og Sjóvá, um að greiða eig­endum sínum sam­an­lagt 9,6 millj­arða króna í arð og kaupa af þeim hluta­bréf upp á 3,5 millj­arða króna, hefur væg­ast sagt mælst illa fyrir. Sér­stak­lega þar sem hagn­aður tveggja þeirra, VÍS og Sjóvár, er mun lægri en fyr­ir­huguð arð­greiðsla. VÍS hagn­að­ist nefni­lega um 2,1 millj­arð króna í fyrra en ætlar að greiða hlut­höfum sínum út fimm millj­arða króna í arð. Sjóvá hagn­að­ist um 657 millj­ónir króna en ætlar að greiða út 3,1 millj­arð króna í arð. TM hagn­að­ist hins vegar um 2,5 millj­arða króna og ætlar að greiða hlut­höfum sínum út 1,5 millj­arð króna.

Ástæða hinna miklu arð­greiðslna er að finna í breyttum reikniskila­reglum, sem lækka vátrygg­ing­ar­skuld félag­anna, hinn svo­kall­aða bóta­sjóð, en eykur eigið fé þeirra. Það fé sem „verður til“ vegna þess er því ekki raun­veru­legur hagn­aður heldur til­komið vegna talnakúnstna sem færa fé úr bóta­sjóðnum í eigið fé trygg­inga­fé­lag­anna, og þar af leið­andi til hlut­haf­anna. Í til­felli VÍS er vátrygg­inga­skuldin/bóta­sjóð­ur­inn til að mynda lækkuð um fimm millj­arða króna en eigið féð aukið um 3,7 millj­arða króna vegna þess­arra breyttu reikniskila­að­ferða.

Gagn­rýnin á þessa fyr­ir­högun stjórna trygg­inga­fé­lag­anna hefur verið gríð­ar­leg und­an­farna daga og mik­ill þrýst­ingur á að til­lög­urnar verði dregnar til baka. Mörgum sem gagn­rýna þykir eðli­legra að iðgjöld þeirra sem þurfa sam­kvæmt lögum að kaupa trygg­ingar af félög­unum verði lækkuð, og við­skipta­vinum þeirra því skilað umræddri arð­semi, fremur en að hlut­hafar njóti hennar einir. FÍB, félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, fór reyndar ekki svona fínt í hlut­ina. Í áskorun sem það sendi frá sér um liðna helgi sagði að trygg­inga­fé­lög stundi sjálftöku og grip­deildir úr sjóðum sem séu í raun í eigu við­skipta­vina þeirra. Félögin, VÍS, TM og Sjóvá, séu að fara að tæma bóta­sjóði til að greiða út arð til hlut­hafa sinna.

Ljóst er að gagn­rýnin er farin að hafa áhrif. Ólafía B. Rafns­dóttir, for­maður VR, skrif­aði harð­orðan pistil á heima­síðu stétt­ar­fé­lags­ins þar sem hún sagði félags­mönnum vera mis­boðið vegna arð­greiðsln­anna. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er stærsti eig­andi bæði TM og VÍS og sjö­undi stærsti eig­andi Sjóvar. VR skipar fjóra af átta stjórn­ar­mönnum í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna á móti atvinnu­rek­endum, sem skipa hina fjóra. Og í dag greindi Morg­un­blaðið frá því að stærstu hlut­hafar VÍS, stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, ætli ekki að styðja arð­greiðslu félagsins og muni kjósa gegn henni á aðal­fundi ef hún verði ekki dregin til baka. Þá ætlar efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis að ræða arð­greiðslur trygg­inga­fé­lag­anna á fundi sínum í dag.

En þau rök sem eru hvað sterk­ust fyrir því að fara var­lega í arð­greiðslum úr trygg­inga­fé­lögum er að finna í eft­ir­hruns­sög­unni. Það er nefni­lega ekki nema nokkur ár frá því að íslenska ríkið þurfti að stíga inn og bjarga trygg­inga­fé­lagi sem farið var á hlið­ina eftir að bóta­sjóður þess hafði verið tæmdur. Trygg­inga­fé­lagið, Sjóvá, var talið „of stórt til að falla“. Þ.e. ríkið taldi það kerf­is­lega ekki for­svar­an­legt að láta það fara á haus­inn, vegna þeirra afleið­inga sem það myndi hafa fyrir við­skipta­vin­ina sem greitt höfðu iðgjöld sam­visku­sam­lega og ætl­uð­ust til þess að fá þjón­ustu í sam­ræmi við þau.

Það félag sem lenti í hönd­unum á íslenska rík­inu árið 2009 var Sjóvá. Og eig­endur þess höfðu greitt sér út 19,4 millj­arða króna í arð síð­ustu þrjú árin áður en það féll.

Greiddu sér 19,4 milljarða króna í arð á þremur árum

Fyrir hrun vildu öll stærstu fjár­fest­inga­fé­lög lands­ins eiga hlut í trygg­inga­fé­lögum. Ástæðan er ein­föld: Trygg­inga­fé­lög eiga gríð­ar­lega sjóði sem þau þurfa að fjár­festa úr. Þau skipta sam­fé­lagið afar miklu máli. Allt það fé sem venju­legt fólk borgar í iðgjöld fer ann­ars vegar í að borga út tjóna­greiðslur og hins vegar í fjár­fest­ingar til að gera félög­unum kleift að mæta fram­tíð­ar­skuld­bind­ingum sínum.

Ef tæk­ist að stýra fjár­fest­ingum þess­ara sjóða þá væri það mikið vopn í vopna­búri þeirrar sam­steypu sem hefði yfir­ráð yfir þeim. Þess vegna átti Milestone Sjóvá, Exista átti VÍS og FL Group átti Trygg­inga­mið­stöð­ina.

Milestone, fjár­fest­inga­fé­lag sem var að mestu leyti í eigu bræðr­anna Karls og Stein­gríms Wernerssona, eign­að­ist Sjóvá að fullu í byrjun árs 2006. Á næstu tveimur árum voru færðar fjár­fest­inga­eignir inn á efna­hags­reikn­ing félags­ins sem bók­færðar voru sem 50 millj­arða króna virði. Eign­irnar voru færðar frá Milestone til Sjóvá til að gera upp við­skipta­skuld. Þessum eignum fylgdu vaxta­ber­andi skuldir upp á 40 millj­arða króna, að mestu leyti í erlendum gjald­miðlum. Allar fjár­fest­ing­arnar og skuld­irnar voru geymdar í dótt­ur­fé­lögum Sjóva sem stýrt var af Milestone. Á pappír voru þetta því ágætis við­skipti fyrir Sjóvá. Það var þó ekki þannig í raun­veru­leik­anum.

Eign­irnar voru nefni­lega að stóru leyti fast­eignir og fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni erlendis sem keypt höfðu verið á háu verði þegar alþjóð­lega fast­eigna­bólan stóð sem hæst. Verk­efnin voru meðal ann­ars í Banda­ríkj­unum, Indlandi, Rúmeníu, Hong Kong og víðar, auk full­byggðra fast­eigna sem voru í útleigu í löndum á borð við Belgíu, Frakk­land og Þýska­land. Flest þess­ara verk­efna voru þess eðlis að Sjóvá var látið leggja fé í þau. Þegar fast­eigna­mark­að­ur­inn hrundi og íslenska krónan einnig lækk­uðu eign­irnar gríð­ar­lega í verði á sama tíma og skuld­irnar snar­hækk­uðu. Sjóvá varð á örskammri stundu nán­ast óstarf­hæft.

Auk þess lán­aði Sjóvá eig­anda sínum Milestone og félagi sem hét Föld­ungur, en hafði áður heitið Vafn­ingur, sam­tals um 20 millj­arða króna snemma árs 2008 þegar erlendir stór­bankar vildu ekki lána þeim lengur og gerðu veð­kall vegna ann­arra lána. Þessi við­skipti, sem eru oft­ast kölluð Vafnings-við­skiptin, voru mikið í umræð­unni á Íslandi fyrir nokkrum árum vegna aðkomu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að þeim. Faðir og föð­ur­bróðir Bjarna tóku þátt í við­skipt­unum og Bjarni veð­setti hluta­bréf í Vafningi fyrir láni sem veitt var í þeim. End­ur­fjár­mögn­unin var vegna bréfa í Glitni sem urðu verð­laus í banka­hrun­inu. Það sem gerði þessa stöðu enn súr­ari var sú stað­reynd að eig­endur Sjóvár höfðu greitt sér 19,4 millj­arða króna út í arð á árunum 2006-2008. Það voru pen­ingar sem sáust aldrei aftur.

Tæmdu bótasjóðinn

Það komst þó ekki upp um stöðu Sjóvár strax eftir hrunið. Eft­ir­lits­að­ilar höfðu öðrum hnöppum að hneppa þar sem heilt banka­kerfi hafði fallið í fangið á þeim. Staða Sjóvár í árs­lok 2008 var þó með þeim hætti að grípa hefði þurft inn í. Bóta­sjóður félags­ins, eða vátrygg­ing­ar­skuld, á þeim tíma nam 22,7 millj­örðum króna. Lánin til Milestone og Földungs, sem öll voru töpuð, voru um 85 pró­sent af þeirri upp­hæð. Þá átti eftir að taka inn í dæmið tapið vegna fast­eigna­verk­efn­anna, en tap vegna þeirra varð á end­anum um tíu millj­arðar króna. Augljóst var að eignir voru mun minna virði en skuldir og Sjóvá því að minnsta kosti tækni­lega gjald­þrota og að öllu leyti komið í fangið á stærsta kröfu­hafa sínum, þrota­búi Glitnis.

Í mars 2009 var ákveðið að reyna að leysa úr vanda Sjóvár með því að selja það nýjum eig­endum. Fyr­ir­tækja­svið Íslands­banka var fengið til þess og átti meðal ann­ars í við­ræðum við fær­eyskt trygg­inga­fé­lag um kaupin. Stærsta vanda­málið í þeim við­ræðum var að Sjóvá hafði geng­ist í ábyrgð vegna fjár­fest­inga­verk­efnis í Macau í Hong Kong upp á um 8,5 millj­arða króna sem voru á gjald­daga þá um haustið. Morg­un­ljóst var að Sjóvá gat ekki staðið við þann gjald­daga. Fær­ey­ing­arnir og aðrir sem hnusuðu af félag­inu höfðu á end­anum engan áhuga á að koma með pen­inga inn eins og þá var komið. Skila­nefnd Glitnis gerði sér á þeim tíma grein fyrir því að ein­ungis tveir kostir voru í stöð­unni, að setja Sjóvá í þrot eða fá ríkið til að koma með fé inn í félagið.

Of stórt til að falla

Þegar leitað var til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um að koma með pen­inga inn í Sjóvá blasti við að félagið var á hlið­inni. Staðan var mun verri en menn gerðu sér grein fyrir og Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, hefur sjálfur lýst aðkom­unni að Sjóvá sem „hryll­ingi“. Á þeim tíma var það hins vegar ein­dregið mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að það væri mjög slæmt ef trygg­inga­fé­lag færi í þrot. Það væri í raun verra að mörgu leyti en að banki færi í þrot. Ekki þótti við­ráð­an­legt að setja Sjóvá inn í annað hinna stóru trygg­inga­fé­lag­anna, VÍS eða Trygg­inga­mið­stöð­ina, af mark­aðs- og sam­keppn­is­legum for­sendum. Hvorugt þeirra var í stakk búið að taka við Sjóvá.

Ráðu­neytið, Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið réðu því ráðum sínum og urðu til að byrja með sam­mála um eitt: Að versti kost­ur­inn væri að gera ekki neitt. Þá hefði komið upp slæm staða, fólk hefði verið búið að greiða iðgjöld en trygg­inga­fé­lagið farið á haus­inn og fólkið þar af leið­andi í raun ekki tryggt lengur. Auk þess voru millj­arðar króna ógreiddir í slysa- og örorku­bætur. Ljóst var að ríkið myndi lík­ast til þurfa að axla greiðslu þeirra bóta sem fólki hefðu verið dæmdar og það átti inni ógreiddar. Samkvæmt leyni­legu mati sem lagt var fram á þeim tíma gat kostn­aður rík­is­ins vegna þessa orðið á bil­inu 15 til 20 millj­arðar króna.

Ríkið ákvað því strax í byrjun maí 2009 að koma inn í félagið. Vátrygg­inga­rekstur Sjóvár var svo „seldur“ inn í nýtt félag, Sjóvá-almennar trygg­ingar ehf., þann 30. sept­em­ber 2009 . Í raun var um kenni­tölu­flakk með vel­þóknun yfir­valda að ræða. Framlag rík­is­ins varð á end­anum 11,6 millj­arðar króna, sem voru greiddar með kröfum á aðra sem ríkið átti. Auk þess lögðu Glitnir og Íslands­banki til um fimm millj­arða króna svo nýja félagið yrði starf­hæft. Í kjöl­farið var nýja Sjóvá sett í sölu­ferli til að reyna að ná með­gjöf­inni til baka.

Tap ríkisins um fjórir milljarðar

Í lok júlí 2011 var síðan til­kynnt um að hópur fjár­festa hefði keypt rúm­lega helm­ings­hlut. Hópurinn hafði verið settur saman af Stefni, eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki í eigu Arion banka, og keypti hlut­inn í nafni félags sem heitir SF1 slhf. Stærstu eig­endur þess voru líf­eyr­is­sjóðir, félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar (sem er að hluta til í eigu Samherja), félag í eigu Stein­unnar Jóns­dóttur, félag í eigu Ernu Gísla­dóttur, félag í eigu Tómasar Krist­jáns­sonar og [DS1] Finns Reyrs Stef­áns­sonar (eig­in­manns Stein­unnar Jóns­dóttur) og félag í eigu Jóns Diðriks Jóns­sonar. Hópurinn fékk auk þess for­kaups­rétt á um 20 pró­senta hlut til við­bótar og nýtti sér hann skömmu síðar. Hann átti því 73 pró­senta hlut í Sjóvá í lok árs 2012. Afgang­ur­inn var í eigu rík­is­ins, þrota­bús Glitnis og Íslands­banka. Alls var tap rík­is­ins vegna aðkomu þess að Sjóvá rúm­lega fjórir millj­arðar króna.

Sjóvá var síðan skráð á markað í apríl 2014. Stærsti eig­andi félags­ins í dag er SAT Eign­ar­halds­fé­lag, sem er nú í eigu íslenska rík­is­ins.

Engir glæpir

Embætti sér­staks sak­sókn­ara hefur rann­sak­aði með­ferð Milestone og tengdra aðila á Sjóvá sem mögu­legt saka­mál frá því snemma árs 2009. Embættið gerði meðal ann­ars hús­leit hjá Þór Sig­fús­syni, fyrrum for­stjóra Sjóvár, Karli Wernerssyni, fyrrum stjórn­ar­for­manni og aðal­eig­anda Milestone, og Guðmundi Ólafs­syni, fyrrum for­stjóra Milestone á því ári. Þeir voru allir yfir­heyrðir og fengu stöðu grun­aðra á meðan yfir­heyrslur stóðu yfir.

Í lok árs 2014 var rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á meintum umboðs­svikum fyrrum eig­enda og stjórn­enda Sjóvár hætt og nið­ur­staðan var sú að ekki var talið efni til ákæru. Rann­sóknin hafði þá staðið yfir í fimm og hálft ár. Embættið ákærði hins vegar Karl og bróðir hans Stein­grím, sem var einnig á meðal helstu eig­enda Milestone, ásamt Guðmundi fyrir að hafa látið Milestone fjár­magna kaup bræðr­anna á hlutafé systur þeirra, Ingunnar, í félag­inu. Auk þess voru end­ur­skoð­endur félags­ins ákærðir í mál­inu. Sak­born­ingar voru sýkn­aðir í hér­aðs­dómi í des­em­ber 2014 en mál­inu var áfrýjað til Hæsta­réttar. Það er á dag­skrá hans 7. apríl næst­kom­andi. Milestone var úrskurðað gjald­þrota árið 2009 og heild­ar­kröfur sem gerðar voru í bú félags­ins námu tæpum 80 millj­örðum króna. Kröfu­hafar fengu undir eitt pró­sent af kröfum sínum til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár