FÍB segir tryggingafélögin tæma bótasjóði viðskiptavina til að greiða út arð

Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda sakar fjár­mála­eft­ir­litið um van­rækslu og hvetur fjár­mála­ráð­herra til að taka í taumana vegna arð­greiðslna.

FÍB, félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, segir að trygg­inga­fé­lög stundi sjálftöku og grip­deildir úr sjóðum sem eru í raun í eigu við­skipta­vina þeirra. Félögin, VÍS, TM og Sjóvá, séu að fara að tæma bóta­sjóði til að greiða út 9,5 millj­arða króna arð á næstu dögum. Þessir sjóðir séu til vegna þess að trygg­inga­fé­lögin hafi verið með upp­sprengd iðgjöld af ofá­ætl­uðum tjónum.

FÍB hefur sent áskorun á Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að hlut­ast til um þessi mál, þar sem fjár­mála­eft­ir­litið er sakað um van­rækslu í mál­inu.

„Stjórn­völd og almenn­ingur geta lítið gert til að hafa áhrif á græðgi eig­enda trygg­inga­fé­lag­anna annað en for­dæma þessa sjálftöku. Undir eðli­legum kring­um­stæðum væri hald­reipi í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Svo er þó ekki. FME virð­ist ein­göngu hugsa um hag fjár­mála­fyr­ir­tækja og fjár­festa. Ljóst er að stjórn­völd þurfa að hrista upp í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu með afger­andi hætti til að það átti sig á skyldum sínum við almenn­ing,“ segir í bréf­inu frá FÍB til Bjarna.

Það sé óþol­andi að trygg­inga­fé­lögin fái að eigna sér fjár­muni sem þau hafi hirt af fólki með ofteknum iðgjöldum í skjóli fákeppni. Fjár­mála­eft­ir­litið hafi ríkar heim­ildir til að hlut­ast til um fjár­mál og rekstur trygg­inga­fé­laga, og geti skipað þeim að end­ur­greiða trygg­inga­tökum eign þeirra í bóta­sjóðnum eða nota fjár­mun­ina til að lækka iðgjöld næstu árin. Ef ekk­ert verði gert verði það hins vegar í annað skipti á einum ára­tug sem stofn­unin horfi aðgerða­laus á eig­endur trygg­inga­fé­laga tæma bóta­sjóði sem þeir eigi ekki.

Í nýrri grein­ingu frá Capacent, sem Kjarninn greindi frá á dög­unum, kemur fram að næstu ár gætu verið krefj­andi fyrir trygg­ing­ar­fé­lögin, þar sem ekki sé hægt að ganga að því vísu, að ávöxtun á eigna­mörk­uðum verði jafn góð og hún hefur verið að und­an­förnu. Verð­bréfa­mark­aðir séu oft aðeins á undan hag­sveifl­unni, eins og erlendar rann­sóknir sýni. Trygg­ing­ar­fé­lögin gæti þurft að búa sig undir erf­ið­ari rekstr­ar­skil­yrði en hafa verið fyrir hendi und­an­farið.

Tillögur, sem bornar verða undir aðal­fundi þess­ara félaga gera í ein­hverjum til­fellum ráð fyrir arð­greiðslum tölu­vert umfram árlegan hagnað. Mesta arð­greiðslan er fyr­ir­huguð hjá VÍS, um fimm millj­arðar króna, en hagn­að­ur­inn í fyrra var rúm­lega tveir millj­arðar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár