Tillaga um fimm milljarða argreiðslu til hluthafa úr VÍS

Sam­stæðu­árs­reikn­ingur VÍS fyrir árið 2015 var stað­festur af stjórn og for­stjóra félags­ins á stjórn­ar­fundi í dag, en meðal þess sem var ákveðið, var að gera kröfu um fimm millj­arða króna arð­greiðslu vegna rekstr­ar­árs­ins í fyrra. Hagnaður félags­ins nam rúm­lega tveimur millj­örðum króna, sam­an­borið við 1,2 millj­arða árið 2014.

Arð­greiðslu­til­laga stjórnar á árinu 2016 tekur mið af mark­miði um gjald­þols­hlut­fall og nemur kr. 2,17 á hlut, sem er eins og áður segir um fimm millj­arðar króna.

Stjórn VÍS hefur sett félag­inu mark­mið um áhættu­vilja með vik­mörkum sem auð­veldar stýr­ingu á heild­ar­á­hættu félags­ins, að því er segir í til­kynn­ingu til kaup­hallar. Markmið um gjald­þols­hlut­fall er 1,50 með neðri mörkum 1.35. Gjald­þols­hlut­fall eftir arð­greiðslu er 1,55.

Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, for­stjóri VÍS, seg­ist í til­kynn­ingu til kaup­hallar vera ánægð með rekst­ur­inn á síð­asta ári. „Rekstur félags­ins á árinu 2015 gekk vel og var hagn­aður af rekstri tæpir 2,1 millj­arðar króna. Ánægju­legt er að sjá að ágætur vöxtur var í inn­lendum iðgjöldum og hækk­uðu bók­færð iðgjöld um 5,8 pró­sent á árinu. Þrátt fyrir iðgjalda­vöxt er vöxtur í tjóna­tíðni áhyggju­efni og það verður áfram áskorun að ná ásætt­an­legri afkomu af mörgum greina­flokkum vátrygg­inga. Samsett hlut­fall á árinu 2015 var 101,5 pró­sent en mark­mið félags­ins er að vera með sam­sett hlut­fall undir 100 pró­sent,“ segir Sigrún Ragna. Góð afkoma á árinu skýrist öðru fremur af góðri ávöxtun fjár­fest­inga­eigna. Fjár­fest­inga­starf­semin gekk vel á árinu og er jákvæð afkoma af öllum eigna­flokkum. Ávöxtun skulda­bréfa var góð og eins skil­aði inn­lenda hluta­bréfa­safn félags­ins góðri afkomu,“ segir Sigrún Ragna. 

Í til­kynn­ing­unni kemur enn fremur fram á að ávöxtun erlendra eigna hafi valdið von­brigðum.

Arðsemi eigin fjár fyr­ir­tæk­is­ins nam 11,3 pró­sentum en hún hefði verið nokkru hærri, eða 17,5 pró­sent, ef ekki hefði komið til nið­ur­færslu á óefn­is­legum eignum.

Heild­ar­eignir VÍS námu 44,8 millj­örðum króna í lok árs og skuldir voru um 27,3 millj­arðar. Hlutfall auð­selj­an­legra eigna í eigna­safni félags­ins var 73,7% um ára­mótin, þar af eru 29,1 pró­sent í rík­is­skulda­bréfum og hand­bæru fé.

Árs­reikn­ing­ur­inn verður lagður fyrir aðal­fund þann 16. mars 2016 til stað­fest­ingar.

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti eig­andi VÍS með 9,27 pró­sent hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár