Markaðsvirði tryggingafélaganna sagt vanmetið

Að mati grein­enda Capacent er virði trygg­inga­fé­lag­anna þriggja sem skráð eru á markað van­metið, miðað við mark­aðsvirði þeirra í síð­ustu viku. Afkoma fjár­fest­inga félag­anna var góð í fyrra, en ekki er hægt að gera ráð fyrir að við­líka ávöxtun á næst­unni.

Greining Capacent á trygg­inga­mark­aðnum íslenska leiðir það í ljós að mark­aðs­verðið á Sjóvá og TM, miðað við stöðu mála 26. febr­úar síð­ast­lið­inn, er van­metið en verðið á VÍS er of hátt.

Heild­ar­mat trygg­ing­ar­fé­lag­anna þriggja er um 11 pró­sent hærra en mark­aðsvirði þeirra segir til um, miðað við fyrr­nefndan við­skipta­dag fyrir tæpri viku. Þannig var mark­aðsvirði Sjóvá 19,8 millj­arðar en að mati grein­enda Capacent er það 25,6 millj­arðar. Mark­aðsvirði TM var 17,1 millj­arður en mat grein­enda Capacent var að TM væri 19,5 millj­arða króna virði. Hjá VÍS var þessu öfugt farið, en á meðan mark­aðsvirði þess var 22,8 millj­arðar þá var virði félags­ins metið 21,1 millj­arður. Þetta kemur fram í skýrslu Capacent, sem Kjarninn hefur undir höndum, og var kynnt 29. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Lágt metin

Í grein­ing­unni, sem kynnt var 29. febr­úar síð­ast­lið­inn, kemur fram að íslensk trygg­inga­fé­lög séu á hálf­virði, í alþjóð­legum sam­an­burði. Nefnt er að íslensk trygg­ing­ar­fé­lög séu nú verð­metin um þessar mundir á 1,2 sinnum eigið fé en í Evrópu sé víð­ast hvar horft til mun hærri marg­fald­ara, eða 2,8 sinnum eigið fé. Ástæðan fyrir þessum mun, að mati grein­enda Capacent, er sögð vera sú að rekstur trygg­ing­ar­hlut­ans, það er grunn­þátt­ar­ins í starf­sem­inni, skilar betri afkomu hjá sam­an­burð­ar­fé­lög­unum.

Horft á skráðu félögin

Sér­stak­lega er vikið að þessum fyrr­nefndu félögum í grein­ing­unni á trygg­inga­mark­aðnum, þar sem þau eru öll skráð á markað og með mestu hlut­deild á mark­aði, sé miðað við iðgjöld. VÍS er með mestu hlut­deild­ina, 33,3 pró­sent, TM er með 26,8 pró­sent, Sjóvá 28,3 pró­sent og Vörður, sem er í eigu Arion banka, með 11,6 pró­sent. Þrátt fyrir að vera minsta félagið á mark­aðnum þá hefur mark­aðs­hlut­deild Varðar vaxið nokkuð á und­an­förnum árum, og farið úr 9,2 pró­sentum árið 2010 í 11,6 pró­sent nú, eins og fyrr segir.

Fjárfestingastarfsemi ber uppi góða afkomu

Fjár­fest­ing­ar­starf­semi trygg­ing­ar­fé­lag­anna skil­aði góðri afkomu í fyrra. Hún hefur ekki verið betri í sex ár, en að með­al­tali uxu eignir trygg­ing­ar­fé­lag­anna um 15 pró­sent í fyrra. Ávöxtun verð­bréfa á Íslandi var góð í fyrra, og hækk­uðu til að mynda hluta­bréf félaga sem skráð er í kaup­höll Íslands um 43 pró­sent í fyrra. Sé horft til þess­arar ávöxt­unar eigna, í sam­hengi við sam­sett hlut­fall félag­anna, það er hlut­fall iðgjalda sem fer í að greiða tjón og standa undir rekstri, þá telst þetta góð ávöxtun.

Samsetta hlut­fallið hefur verið und­an­farið ár í kringum 100 pró­sent hjá trygg­ing­ar­fé­lög­unum, eins og sjá má á með­fylgj­andi.

Krefjandi tími og háar arðgreiðslur

Í grein­ingu Capacent kemur fram að næstu ár gætu verið krefj­andi fyrir trygg­ing­ar­fé­lögin, þar sem ekki sé hægt að ganga að því vísu, að ávöxtun á eigna­mörk­uðum verði jafn góð og hún hefur verið að und­an­förnu. Verð­bréfa­mark­aðir séu oft aðeins á undan hag­sveifl­unni, eins og erlendar rann­sóknir sýni. Trygg­ing­ar­fé­lögin gæti þurft að búa sig undir erf­ið­ari rekstr­ar­skil­yrði en hafa verið fyrir hendi und­an­farið.

Hlut­hafar trygg­ing­ar­fél­ganna hafa notið góðs af góðu gengi trygg­ing­ar­fé­lag­anna, og má vísa til til­lagna sem liggja fyrir til sam­þykktar á aðal­fundum félag­anna sem fara fram á næst­unni. Tillögur, sem bornar verða undir aðal­fundi, gera ráð fyrir arð­greiðslum tölu­vert umfram árlegan hagnað. Mesta arð­greiðslan er fyr­ir­huguð hjá VÍS, um fimm millj­arðar króna, en hagn­að­ur­inn í fyrra var rúm­lega tveir millj­arðar.

Samtals er gera til­lög­urnar ráð fyrir 8,5 millj­arða arð­greiðslu frá VÍS, TM og Sjóvá, vegna rekst­urs­ins í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár