Havila færir niður virði skipaflotans um 21 milljarð króna

Norska félagið Havila Shipping ASA til­kynnti í dag að virði flota félags­ins, sem telur 27 skip, hafi verið fært niður um 1.388 millj­ónir norskra króna, eða um 21 millj­arð íslenskra króna. Stjórn Havila til­kynnti sömu­leiðis að félagið muni halda áfram starf­semi sinni, þrátt fyrir að kröfu­hafar þess hafi hafnað til­lögu um end­ur­skipu­lagn­ing á skuldum félags­ins í byrjun viku.

Ákvörð­unin felur í sér að félagið muni halda áfram við­ræðum við kröfu­hafa sína um að ná sam­komu­lagi sem muni gera Havila kleift að standa af sér þá erf­ið­leika sem félagið gengur nú í gegnum. Á meðal þeirra kröfu­hafa eru íslensku bank­arnir Íslands­banki og Arion banki. Á meðan að við­ræð­urnar standa yfir mun Havila hvorki greiða vexti né afborg­anir af höf­uð­stólum lána.

Tókst ekki að semja við kröfuhafa

Kjarninn greindi frá því í gær að kröfu­hafar Havila hefðu hafnað áætlun um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum þess, sem gerðu ráð fyrir því að lengt yrði umtals­vert í þeim. Félagið hafði gefið sér þangað til á mánu­dag, 15. febr­úar, til að kom­ast að niðut­stöðu í mál­inu enda sjái það fyrir sér alvar­lega fjár­hags­lega erf­ið­leika á tíma­bil­inu 2016-2018“ vegna þeirrar nið­ur­sveiflu sem átt hafi sér stað á þjón­ustu­mark­aði við olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó.

Í til­kynn­ingu til norsku Kaup­hall­ar­innar sem send var út í gær­morgun kom hins vegar fram að ekki hefði tek­ist að fá 2/3 hluta af óveð­tryggðum skulda­bréfa­eig­endum Havila til að sam­þykkja hana. Þess vegna verði öllum vaxta­greiðslum og greiðslum af höf­uð­stól lána hætt sam­stundis og haf­ist handa við að ræða við þá um sam­komu­lag um greiðslu­stöðvun.


Havila hefur verið eitt af leið­andi félögum í þjón­ustu við olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó á und­an­förnum árum. Sam­stæðan á og rekur 27 þjón­ustu­skip. Olíu­vinnsla í Norð­ur­sjó hefur dreg­ist gríð­ar­lega saman á und­an­förnum miss­erum vegna lækk­unar á heims­mark­aðs­verði á olíu, sem hefur farið úr um 115 dölum sum­arið 2014 í um 30 dali í dag. Þum­al­putta­reglan er sú að heims­mark­aðs­verð á olíu þurfi að vera í kringum 60 dali á tunnu til að vinnsla í Norð­ur­sjó borgi sig. Samhliða hefur þjón­ustu­mark­að­ur­inn sem Havila starfar á hrunið.

Virði Havila í Kaup­höll­inni hefur hríð­fallið und­an­farin miss­eri. Árið 2007 var virði hluta­bréfa í félag­inu 120 norskar krónur á hlut. Í dag er virðið 1,5 norskar krónur. Havila var fært á athug­un­ar­lista í norsku Kaup­höll­inni í gær­morgun.

Krefjandi aðstæður leiða til niðurfærslu á virði skipaflota

Í nýrri til­kynn­ingu til norsku Kaup­hall­ar­innar í morgun sagði Havila frá því að félagið hefði ákveðið að færa niður virði skipa­flota síns um tæpan 21 millj­arð íslenskra króna í upp­gjöri fjórða árs­fjórð­ungs 2015. Uppgjör þess árs­fjórð­ungs verða birta 29. febr­úar næst­kom­andi. Í til­kynn­ing­unni segir að mark­aðs­að­stæður Havila séu mjög krefj­andi og það hafi mikil áhrif á virði skipa félags­ins.

Íslands­banki og Arion banki eru báðir á meðal lán­veit­enda Havila. Í júlí 2014 lán­aði Arion banki Havila 300 millj­ónir norskra króna, um 4,5 millj­arða króna. Íslands­banki hafði tekið þátt í sam­banka­láni til Havila upp á alls 475 millj­ónir norskra króna, rúm­lega sjö millj­arða króna, nokkrum mán­uðum áður. Í frétta­til­kynn­ingu frá Íslands­banka sem send var úr í lok árs 2013 vegna þess var haft eftir Vilhelm Má Þor­steins­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Íslands­banka, að þátt­takan í sam­banka­láni til Havila væri mik­il­vægt skref í að auka þátt­töku okkar í þjón­ustu­iðn­aði við olíu og gasleit á Norður Atl­ants­hafi. „Íslands­banki hefur getu til að lána til erlendra verk­efna vegna sterkrar stöðu í erlendum gjald­eyri og styður þannig við frek­ari upp­bygg­ingu íslenskra og erlendra fyr­ir­tækja í atvinnu­greinum þar sem bank­inn hefur sér­þekk­ingu.“

Þessir tveir bankar, sem eru ann­ars vegar að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins og hins vegar að hluta (ríkið á þrettán pró­sent hlut í Arion banka), eiga því umtals­vert undir að Havila muni geta borgað skuldir sínar.

DV leit­aði eftir upp­lýs­ingum

hjá báðum bönk­unum fyrir mán­uði síðan um hvort þeir hefðu farið fram á að floti eða aðrar eignir Havila yrðu veð­settar vegna lán­veit­ing­anna. Hvorki Íslands­banki né Arion banki vildu upp­lýsa um það

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár