Kröfuhafar Havila hafna endurskipulagningu - Íslenskir bankar lánuðu milljarða

Kröfu­hafar norska félags­ins Havila Shiping ASA hafa hafnað áætlun um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum þess, sem gerðu ráð fyrir því að lengt yrði umtals­vert í þeim. Félagið hafði gefið sér þangað til í gær, 15. febr­úar, til að kom­ast að niðut­stöðu í mál­inu enda sjái það fyrir sér alvar­lega fjár­hags­lega erf­ið­leika á tíma­bil­inu 2016-2018“ vegna þeirrar nið­ur­sveiflu sem átt hafi sér stað á þjón­ustu­mark­aði við olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó. Þeir bankar sem lánað hafa Havila fé, þar á meðal íslensku bank­arnir Íslands­banki og Arion banki, studdu áætl­un­ina.

Í til­kynn­ingu til norsku Kaup­hall­ar­innar í morgun kom hins vegar fram að ekki hefði tek­ist að fá 2/3 hluta af óveð­tryggðum skulda­bréfa­eig­endum Havila til að sam­þykkja hana. Þess vegna verði öllum vaxta­greiðslum og greiðslum af höf­uð­stól lána hætt sam­stundis og haf­ist handa við að ræða við þá um sam­komu­lag um greiðslu­stöðvun.

Virði Havila í Kaup­höll­inni hefur hríð­fallið und­an­farin miss­eri. Árið 2007 var virði hluta­bréfa í félag­inu 120 norskar krónur á hlut. Í dag er virðið 1,3 norskar krónur. Havila var fært á athug­un­ar­lista í norsku Kaup­höll­inni í morgun.

Havila hefur verið eitt af leið­andi félögum í þjón­ustu við olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó á und­an­förnum árum. Sam­stæðan á og rekur 27 þjón­ustu­skip. Olíu­vinnsla í Norð­ur­sjó hefur dreg­ist gríð­ar­lega saman á und­an­förnum miss­erum vegna lækk­unar á heims­mark­aðs­verði á olíu, sem hefur farið úr um 115 dölum sum­arið 2014 í um 35 dali í dag. Þum­al­putta­reglan er sú að heims­mark­aðs­verð á olíu þurfi að vera í kringum 60 dali á tunnu til að vinnsla í Norð­ur­sjó borgi sig. Samhliða hefur þjón­ustu­mark­að­ur­inn sem Havila starfar á hrunið.

Eiga fé til að reka félagið fram á haust

Grein­ing­ar­að­il­inn DNB Markets hefur metið það sem svo að Havila geti rekið sig áfram fram á þriðja árs­fjórð­ung yfir­stand­andi árs fyrir það fé sem til er í félag­inu. Eftir það muni Havila skorta rekstr­arfé til að halda áfram. DNB Markets telur ljóst að virði eigna Havila sé lægra en heild­ar­um­fang skulda félags­ins.

Ola Beinnes Fosse, grein­andi hjá DNB Markets, segir við norska vef­inn Maritime.no að óveð­tryggðir kröfu­hafar ættu þá að eiga von á því að fá ekk­ert upp í kröfur sínar ef Havila fer í þrot. Þeir bankar sem hafi lánað félag­inu, og eigi veð í eignum þess, ættu einnig að und­ir­búa sig fyrir tap ef eignir Havila verði seldar upp í skuldir.

Íslenskir bankar lánuðu Havila milljarða

Íslands­banki og Arion banki eru báðir á meðal lán­veit­enda Havila. Í júlí 2014 lán­aði Arion banki Havila 300 millj­ónir norskra króna, um 4,5 millj­arða króna. Íslands­banki hafði tekið þátt í sam­banka­láni til Havila upp á alls 475 millj­ónir norskra króna, rúm­lega sjö millj­arða króna, nokkrum mán­uðum áður. Í frétta­til­kynn­ingu frá Íslands­banka sem send var úr í lok árs 2013 vegna þess var haft eftir Vilhelm Má Þor­steins­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Íslands­banka, að þátt­takan í sam­banka­láni til Havila væri mik­il­vægt skref í að auka þátt­töku okkar í þjón­ustu­iðn­aði við olíu og gasleit á Norður Atl­ants­hafi. „Íslands­banki hefur getu til að lána til erlendra verk­efna vegna sterkrar stöðu í erlendum gjald­eyri og styður þannig við frek­ari upp­bygg­ingu íslenskra og erlendra fyr­ir­tækja í atvinnu­greinum þar sem bank­inn hefur sér­þekk­ingu.“

Þessir tveir bankar, sem eru ann­ars vegar að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins og hins vegar að hluta (ríkið á þrettán pró­sent hlut í Arion banka), eiga því umtals­vert undir að Havila muni geta borgað skuldir sínar.

DV leit­aði eftir upp­lýs­ingum hjá báðum bönk­unum fyrir mán­uði síðan um hvort þeir hefðu farið fram á að floti eða aðrar eignir Havila yrðu veð­settar vegna lán­veit­ing­anna. Hvorki Íslands­banki né Arion banki vildu upp­lýsa um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár