Tíu staðreyndir um sölu á hlut Landsbankans í Borgun

1 – Borgun er greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki sem býður við­skipta­vinum sínum færslu­hirð­ingu vegna t.d. Visa- og MasterCard-korta. Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun til félags í eigu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festa þeirra þann 25. nóv­em­ber 2014 fyrir 2,2 millj­arða króna. Fjár­festa­hóp­ur­inn gerði fyrst til­boð í hlut­inn í mars 2014. Hlutur Lands­bank­ans, sem er að mestu í rík­i­s­eigu, var ekki seldur í opnu sölu­ferli. Öðrum mögu­lega áhuga­sömum kaup­endum bauðst því ekki að bjóða í hlut­inn. Kjarninn upp­lýsti um það þann 27. nóv­em­ber 2014 hverjir hefðu verið í fjár­festa­hópnum og hvernig salan hefði gengið fyrir sig. Á meðal þeirra var Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Miðað við hefð­bundna mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast við í fjár­fest­ingum þótti verðið lágt, hvort sem miðað er við fyr­ir­tæki erlendis eða skráð fyr­ir­tæki á Íslandi.

2 – Í við­ræðum um kaup á hlut Lands­bank­ans í Borgun var stuðst við árs­reikn­ing Borgunar fyrir árið 2013. Þann 23. júlí 2014 er und­ir­rituð vilja­yf­ir­lýs­ing milli Lands­bank­ans og fjár­festa­hóps­ins um samn­ings­við­ræður. Samhliða óskaði Lands­bank­inn eftir frek­ari aðgangi að upp­lýs­ingum um Borgun og kynn­ingu á fjár­hags­stöðu þess og fram­tíð­ar­á­formum í því skyni að fá nið­ur­stöðu í til­boðs­verðið. Þar var Lands­bank­anum gerð grein fyrir því að Borgun ætl­aði sér að auka veru­lega færslu­hirð­ingu fyrir selj­endur í erlendum net­við­skiptum, sem á end­anum tryggði Borgun stærri hlut­deild í sölu­and­virði Visa Europe. Í gögnum sem Lands­bank­inn sendi Alþingi í gær sagði að bank­inn hafi metið sem svo að „þeirri starf­semi [fylgdi] veru­leg áhætta og líkur voru taldar á að hún gæti leitt til tjóns hjá félag­inu og skaðað orð­spor Lands­bank­ans.“

3 – Fjár­mála­eft­ir­litið sendi erindi til Lands­bank­ans vegna sölu á 31,2 pró­sent hlut í Borgun þann 3. des­em­ber 2014. Í erind­inu var óskað eftir öllum upp­lýs­ingum í tengslum við söl­una. Lands­bank­inn svar­aði erind­inu 9. des­em­ber og engar frek­ari athuga­semdir eða við­brögð komu frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu vegna máls­ins.

4 – Full­trúar Lands­bank­ans fóru á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar 8. des­em­ber 2014 til að svara fyrir söl­una á Borgun. Á aðal­fundi Lands­bank­ans 2015 sagði Tryggvi Pálsson, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, að betra hefði verið að aug­lýsa hlut­inn til sölu, og selja hann þannig í opnu og gagn­sæju ferli.

5 – Kjarninn greinir frá því þann 29. apríl 2015 að ákveðið hefði verið á aðal­fundi Borgunar í febr­úar sama ár að greiða hlut­höfum félags­ins 800 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014, þegar Lands­bank­inn var enn eig­andi að tæp­lega þriðj­ungs­hlut. Þetta var í fyrsta sinn sem arður var greiddur út úr félag­inu frá árinu 2007. Tæplega 250 millj­ónir króna féllu í hlut nýrra hlut­hafa, sem hefðu runnið til Lands­bank­ans ef hann hefði ekki selt hlut­inn.

6 – Þann 29. mars 2015 tók Fjár­mála­eft­ir­litið ákvörðun um sam­runa Lands­bank­ans og Spari­sjóðs Vest­manna­eyja. Lands­bank­inn eign­að­ist við það 0,41 pró­sent hlut í Borgun. Sá hlutur var aug­lýstur til sölu 17. apríl 2015 og þegar til­boðs­frestur rann út 3. maí höfðu þrjú til­boð borist. Hlut­ur­inn var á end­anum seldur til Fast­eigna­fé­lags­ins Auð­brekku 17 ehf. fyrir 30 millj­ónir króna. Verðið var aðeins hærra á hlut en þegar 31,2 pró­sent hlut­ur­inn var seldur. Í fyrri við­skipt­unum var miðað við að heild­ar­virði Borgunar væri sjö millj­arðar króna en í þeim seinni að það væri 7,3 millj­arðar króna. Auk þess verður að taka til­lit til að eig­endur Borgunar voru búnir að greiða sér út 800 millj­ónir króna í arð áður en salan átti sér stað.

7 – Samið var um val­rétt um kaup Visa Inc. á Visa Europe árið 2007. Val­rétt­ur­inn var ótíma­bund­inn. Nokkrum sinnum frá þeim tíma hafa farið af stað við­ræður um að Visa Inc. nýti kaup­rétt­inn. Þegar að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í borgun var í gildi vilja­yf­ir­lýs­ing um að ganga frá kaup­unum. Fjórum dögum áður en Lands­bank­inn til­kynnti um söl­una á hlut sínum í Borgun birt­ist frétt á heima­síðu Bloomberg-frétta­veit­unar, sem er ein stærsta við­skipta­f­rétta­veita í heimi, um að Visa Inc. gerði sér grein fyrir því að fyr­ir­tækið þyrfti að greiða meira en 1.300 millj­arða króna ef það ætl­aði að nýta sér val­rétt sinn á kaupum á Visa Europe. Lands­bank­inn hefur borið fyrir sig að Valitor hafi gefið út Visa-kort fyrir bank­ann og því hafi hann ekki talið sig eiga jafn mikla hags­muni að gæta vegna val­rétt­ar­ins hjá Borgun. Í nóv­em­ber 2015 lá fyrir að Visa Europe yrði selt og á hvaða verði.

8 – 20. jan­úar 2016 birti Morg­un­blaðið for­síðu­frétt um að kaup Visa Inc. á Visa Europe gætu skilað Borgun og öðru íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tæki, Valitor, á annan tug millj­arða króna. Visa Inc. mun lík­ast til greiða um þrjú þús­und millj­arða króna fyrir Visa Europe og það fé mun skipt­ast á milli þeirra útgef­enda Visa-korta í Evrópu sem eiga rétt á hlut­deild í Visa Europe. Lands­bank­inn átti hlut í bæði Borgun og Valitor. Þegar bank­inn seldi hlut sinn í Borgun gerði hann ekki sam­komu­lag um hlut­deild í sölu­and­virði Visa Europe. Þegar hann seldi hlut sinn í Valitor í apríl 2015 gerði hann sam­komu­lag um við­bót­ar­greiðslu vegna þeirrar hlut­deildar Valitor í sölu­and­virði Visa Europe. Stjórn­endur Borgunar hafa sagt að þeir hafi fyrst fengið upp­lýs­ingar um hugs­an­legan ávinn­ing fyr­ir­tæk­is­ins vegna söl­unar á Þor­láks­messu 2015.

Kjarninn greindi frá því 25. jan­úar að Lands­bank­inn hefði átt rétt á sex til átta pró­sent af hlut­deild Borgunar í sölu­and­virði Visa Europe ef fyr­ir­vari hefði verið settur um greiðslur vegna söl­unnar áður en bank­inn seldi hlut sinn í Borgun. Það hlut­fall miðar við erlend umsvif Borgunar í lok árs 2013. Í lok árs 2014 höfðu þau umsvif auk­ist umtals­vert þótt að mestur vöxtur hafi verið í þeim á árinu 2015.

9 – Eftir að frétt Morg­un­blaðs­ins birt­ist vís­aði Steinþór Pálsson, for­stjóri Lands­bank­ans, meðal ann­ars til þess í við­tölum við fjöl­miðla að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði sett þrýst­ing og lagt kröfur á bank­ann um að selja Borgun. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu 21. jan­úar þar sem það seg­ist aldrei hafa sett Lands­bank­anum tíma­mörk eða önnur bind­andi skil­yrði varð­andi fyr­ir­komu­lag á sölu eign­ar­hluta bank­ans í Borgun. „Sala Lands­bank­ans á hlutum sínum í Borgun og Valitor og til­högun hennar var því alfarið á for­ræði og á ábyrgð Lands­bank­ans,“ segir í til­kynn­ing­unni.

10 – Rekstur Borgunar hefur gengið afar vel und­an­farin ár. Borgun hagn­að­ist um 1,3 millj­arða króna á árinu 2014. Sá hagn­aður bæt­ist við 993 milljón króna hagnað Borgunar á árinu 2013. Samtals hagn­að­ist Borgun því um 2,3 millj­arða króna á tveimur árum, sem er aðeins meira en Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun greiddi fyrir 31,2 pró­senta hlut Lands­bank­ans í Borgun. Miðað við yfir­lýs­ingar stjórn­enda Borgunar þá má ætla að mik­ill vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins erlendis í fyrra hafi skilað mjög góðri afkomu á árinu 2015.

Tólf stjórn­endur Borgunar sem tóku þátt í kaup­unum á hlut Lands­bank­ans eiga hlut sinn í gegnum félag sem heitir BPS ehf. Félagið á nú fimm pró­sent hlut í Borgun en Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, sem sam­anstendur af með­fjár­festum þeirra sem keyptu hlut Lands­bank­ans, á 29,38 pró­sent hlut. Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun keypti 38 pró­sent af eign BPS í ágúst síð­ast­liðnum án þess að gerður hafi verið fyr­ir­vari um hlut­deild í mögu­legum hagn­aði vegna sölu á Visa Europe. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans var greitt mun hærra verð á hlut en þegar keypt var af Lands­bank­anum níu mán­uðum áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár