Landsbankinn vissi um útrás Borgunar og var með upplýsingar um rekstur

Lands­bank­inn var með upp­lýs­ingar um val­rétt Visa Inc. á kaupum á Visa Europe áður en bank­inn seldi hlut sinn í Borgun. Hann vissi einnig af áformum Borgunar um útrás á árinu 2015 og var með upp­lýs­ingar um rekstur fyr­ir­tæk­is­ins.

Lands­bank­inn vissi að Visa Inc. átti val­rétt um kaup á Visa Europe áður en bank­inn seldi hlut 31,2 pró­sent hlut í Borgun í nóv­em­ber 2014. Samið hafði verið um val­rétt­inn árið 2007 en hann var ótíma­bund­inn og óvíst var hvenær og hvort af honum yrði. Bankinn vissi einnig af áformum Borgunar um að auka umsvif sín erlendis á árinu 2015 en segir að það hafi ekki legið fyrir að hvaða marki þau áform yrðu í sam­starfi við Visa. Þá fékk Lands­bank­inn aðgang að upp­lýs­ingum um rekstur Borgunar áður en bank­inn gekk frá sölu á hlut sínum.

Ekki hafi þó legið fyrir, þegar Lands­bank­inn seldi hlut sinn til stjórn­enda Borgunar og með­fjár­festa sinna seint í nóv­em­ber 2014, hversu háum fjár­hæðum sam­runi Visa Inc. og Visa Europe myndi skila Borgun. Þetta kemur fram í svari Lands­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans um þá vit­neskju sem bank­inn hafði um val­rétt­inn fyrir söl­una á hlut hans í Borgun.

Visa Inc ákvað seint á síð­asta ári að kaupa Visa Europe á um þrjú þús­und millj­arða króna. Kaupin munu gera það að verkum að íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tækin Valitor og Borgun munu hagn­ast um á annan tug millj­arða króna. Lands­bank­inn tekur fram í svari sínu að bank­inn geri ráð fyrir því að hagn­ast um nokkra millj­arða króna vegna sölu hans á hlut sínum í Valitor á árinu 2015, en í þeirri sölu var gerður samn­ingur um hlut­deild í ágóða vegna sam­run­ans. Slíkur samn­ingur var hins vegar ekki gerður þegar hlut­ur­inn í Borgun var seldur, og því rennur millj­arða króna ágóði Borgunar vegna sam­run­ans ekki til rík­is­bank­ans, heldur stjórn­enda Borgunar og með­fjár­festa þeirra auk Íslands­banka, sem er stærsti eig­andi Borgunar.

Ljóst að kaupverðið yrði hátt áður en Landsbankinn seldi

Tilkynnt var um sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í Borgun 25. nóv­em­ber 2014. Hlut­ur­inn var seldur á 2,2 millj­arða króna. Hann var ekki settur í opið sölu­ferli og öðrum áhuga­sömum fjár­festum gafst ekki kostur á að bjóða í hlut­inn. Í febr­úar 2015, tæpum þremur mán­uðum eftir að kaupin gengu í gegn, ákváðu eig­endur Borgunar að greiða sér út 800 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014. Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, og banka­ráð bank­ans hafa geng­ist við því að selja hefði átt hlut­inn í opnu sölu­ferli. Viðbúið er að stjórn­endur Lands­bank­ans, sem er í 98 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, muni þurfa að mæta fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd til að skýra söl­una á Borgun á næst­unni.

Fjórum dögum áður en til­kynnt var um söl­una, 21. nóv­em­ber 2014, birt­ist frétt á heima­síðu Bloomberg-frétta­veit­unar, sem er ein stærsta við­skipta­f­rétta­veita í heimi, um að Visa Inc. gerði sér grein fyrir því að fyr­ir­tækið þyrfti að greiða meira en 1.300 millj­arða króna ef það ætl­aði að nýta sér val­rétt sinn á kaupum á Visa Europe.

Kom ekki til álita að gera samning um viðbótargreiðslur

Í svari Lands­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að það hafi ekki komið til umræðu þegar hlut­ur­inn í Borgun var seldur til helstu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festa þeirra á 2,2 millj­arða króna að val­rétt­ur­inn milli Visa Europe og Visa Inc. gæti mögu­lega skilað Borgun veru­legum fjár­hæðum. „Við vissum að Borgun stefndi á að auka við­skipti sín erlendis. Það lá ekki fyrir hvort þau umsvif myndu byggj­ast á sam­starfi við Visa, Mastercard eða aðrar korta­sam­stæður.“

Aldrei kom heldur til álita að hálfu Lands­bank­ans að gera samn­ing sam­hliða söl­unni á hlut í Borgun sem tryggði bank­anum við­bót­ar­greiðslu ef val­réttur Visa Inc. um kaup á Visa Europe yrði, en Lands­bank­inn gerði slíkar samn­ing þegar hann seldi hlut sinn í öðru greiðslu­korta­fyr­ir­tæki, Valitor, til Arion banka í fyrra. Að sögn Lands­bank­ans er ástæðan fyrst og fremst sú að bank­inn hafði aðal­lega gefið úr Visa-kort og ein­göngu gert það í gegnum Valitor. „Lands­bank­inn hafði á hinn bóg­inn ekki gefið út Visa-kort í sam­vinnu við Borgun. Því voru hags­munir Lands­bank­ans vegna val­rétt­ar­ins miklir í til­felli Valitor. Þegar Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Valitor til Arion banka voru þessir hags­munir tryggðir, þ.e. samið var um að við­bót­ar­greiðsla rynni til Lands­bank­ans ef val­rétt­ur­inn yrði virkj­aður. Jafn­framt var samið um að Lands­bank­inn héldi áfram að gefa út Visa-kort. Hags­munir bank­ans voru þannig tryggðir hvað útgáfu á Visa-kortum varðar til næstu ára en einnig miðað við við­skipti fyrri ára. Lands­bank­inn gerir ráð fyrir að hagn­ast um nokkra millj­arða á þessum við­skiptum. Lands­bank­inn hafði ekki rök eða for­sendur til greiðslna sam­kvæmt fyrr­nefndum val­rétti vegna sölu hluta­bréfa í Borgun, líkt og í til­felli Valitor. Af þessum sökum kom ekki til álita að gera sam­bæri­legan samn­ing við kaup­endur af hlutum í Borgun um við­bót­ar­greiðslur.“

Lands­bank­inn seg­ist heldur ekki hafa séð það fyrir sér að Borgun myndi fá háar við­bót­ar­greiðslur vegna sam­runa Visa Europe og Visa Inc., líkt og nú virð­ist stefna í. Sú upp­hæð byggi að mestu á auknum umsvifum Borgunar erlendis eftir að Lands­bank­inn seldi, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Lands­bank­inn hefur fengið um málið.

Fékk aðgang að upplýsingum um rekstur Borgunar

Kjarninn spurði stjórn­endur Lands­bank­ans hvort þeir hafi vitað af þeim áformum stjórn­enda Borgunar að auka umsvif sín mjög erlendis á árinu 2015 áður en að salan á 31,2 pró­sent hlut bank­ans í fyr­ir­tæk­inu fór fram í nóv­em­ber 2014.

Í svari bank­ans segir að í tengslum við við­skiptin hafi Lands­bank­inn fengið aðgang að upp­lýs­ingum um rekstur Borgunar á grund­velli trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar. „Bankinn fékk m.a. aðgang að fjár­hags­upp­gjörum félags­ins og sögu­legum rekstr­ar­tölum. Lands­bank­inn fékk einnig kynn­ingu á rekstr­ar­á­ætl­unum félags­ins og tæki­færi til að eiga sam­tal við stjórn­endur um starf­sem­ina og fram­tíð­ar­á­form félags­ins. Upp­lýs­ing­arnar sem bank­inn fékk voru þó tak­mark­aðar af sam­keppn­is­sjón­ar­miðum, meðal ann­ars varð­andi umfang við­skipta við við­skipta­vini og sam­starfs­að­ila Borgunar. Við söl­una lá ekki fyrir að hvaða marki áformin um aukin erlend við­skipti yrðu í sam­starfi við Visa, Mastercard eða aðrar korta­sam­stæður.“

Lands­bank­inn segir einnig að hann hafi talið útrás­ar­á­form Borgunar mjög áhættu­söm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár