Borgun og Valitor munu hagnast um milljarða vegna sölu á Visa Europe

Stór hlutur í Borgun var seldur til val­ins hóps bak­við luktar dyr seint á árinu 2014 á nið­ur­settu verði. Selj­and­inn var rík­is­bank­inn Lands­banki Íslands.

Íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tækin Borgun og Valitor munu hagn­ast um vel á annan tug millj­arða króna vegna

yfir­töku Visa International Service á Visa Europe. Ekki liggur nákvæm­lega fyrir á þess­ari stundu hversu há upp­hæð mun falla þeim í skaut. Frá þessu er greint í

Morg­un­blað­inu í dag.

Visa International, banda­rískt fyr­ir­tæki, til­kynnti um yfir­töku á Visa Europe seint á árinu 2015 fyrir 21,2 milj­arða evra, um þrjú þús­und millj­arða króna. Búist er við því að kaupin klárist á næstu mán­uðum.

Í Morg­un­blað­inu segir að alls séu um þrjú þús­und útgef­endur Visa-kort­anna í álf­unni. Fyr­ir­tækin fengu hlut­deild í Visa Europe þegar þau fengu leyf­is­veit­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu. Hver hlutur er met­inn á tíu evrur. Hlutur íslensku fyr­ir­tækj­anna verður reikn­aður sem hlut­fall af heild­ar­um­svifum allra þeirra fyr­ir­tækja í Evrópu sem gefa út kortin. Því mun loka­nið­ur­staðan um hversu mikið fellur þeim í skaut ekki liggja fyrir fyrr en á öðrum árs­fjórð­ungi.

Bæði Valitor og Borgun hafa verið í við­skiptum erlendis og því liggur fyrir að umsvifin ná til mark­aða utan land­stein­anna, sem mun auka þær fjár­hæðir sem fyr­ir­tækin fá í kjöl­far þess að kaupin ganga í gegn.

Valdir aðilar keyptu Borgun á bakvið luktar dyr á lágu verði

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um söl­una á Borgun und­an­farin miss­eri. Í lok árs í 2014, í nóv­em­ber­mán­uði, seldi Lands­bank­inn Íslands, sem er í 98 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar slf., sem stofnað var skömmu fyrir kaupin á hlutnum. Tæplega 250 millj­ónir króna koma í hlut nýrra hlut­hafa.

Verðið sem Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun slf., sem greiddi fyrir hlut­inn þótti lágt bæði í inn­lendum og erlendum sam­an­burði. Félagið greiddi um 2,2 millj­arða króna fyrir hlut­inn en hagn­aður Borgunar 2013 var um einn millj­arður króna.

Kjarninn hefur greint frá því að banka­ráð Lands­bank­ans hafi verið með­vitað um söl­una og að hann hefði ekki farið í gegnum form­legt sölu­ferli. Þessi eign rík­is­bank­ans var ekki aug­lýst og öðrum áhuga­sömum kaup­endum var ekki gefið tæki­færi til að bjóða. Engu að síður taldi það rétt að selja hlut­inn með þessum hætti, á bak­við luktar dyr til þess fjár­festa­hóps sem hafði sýnt áhuga á því að kaupa hlut­inn.

Á meðal þeirra sem til­heyrðu fjár­festa­hópnum var Einar Sveins­son. Einar er föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þeir voru auk þess við­skipta­fé­lagar um ára­bil, en Bjarni hætti afskiptum að við­skiptum í lok árs 2008.

Tryggvi Pálsson, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, sagði í ræðu sinni á aðal­fundi Lands­bank­ans í fyrra að betra hefði verið að aug­lýsa hlut­inn til sölu, og selja hann þannig í opnu og gagn­sæju ferli. 

Greiddu út arð skömmu eftir kaup

Ákveðið var að greiða hlut­höfum Borgunar hf. 800 millj­ónir króna í arð vegna rekst­urs fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014 á síð­asta aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins, en hann fór fram í febr­úar 2015. Þetta stað­festi Haukur Oddsson, for­stjóri Borgunar, í sam­tali við Kjarnann. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2007 sem greiddur er arður úr félag­inu, en hagn­aður þess var 1,4 millj­arðar í fyrra og eigið fé í lok árs um fjórir millj­arðar.

Í maí seldi Lands­bank­inn svo 0,41 pró­sent hlut í Borgun, sem hann aug­lýsti til sölu í maí síð­ast­liðnum, til félags­ins Fast­eigna­fé­lagið Auð­brekka 17 ehf. Þrír aðilar sýndu því áhuga að eign­ast hlut­inn og komu þrjú til­boð í hann. Hlut­ur­inn var að lokum seldur hæst­bjóð­anda, en bank­inn neit­aði að gefa upp á hvaða verði hlut­ur­inn var seldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár