Sterkar vísbendingar um að kaupverðið á Borgun hafi verið of lágt

Verðið sem Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun slf., sem keypti 31,2 pró­sent hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun í lok nóv­em­ber, greiddi fyrir hlut­inn þykir lágt bæði í inn­lendum og erlendum sam­an­burði. Félagið greiddi um 2,2 millj­arða króna fyrir hlut­inn en hagn­aður Borgunar í fyrra var um einn millj­arður króna.

Þegar kaup­verðið á hlutnum í Borgum er mátað við mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast oft við þegar þeir meta fjár­fest­inga­kosti virð­ist það vera lágt, bæði í sam­an­burði við virði erlendra greiðslu­korta­fyr­ir­tækja, virði ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja og félaga sem skráð eru á markað á Íslandi.

Ríkisbanki selur völdum hópi

Lands­bank­inn, sem er í 98 pró­sent eigu íslenska ríkið, seldi hlut­inn í Borgun til félags­ins Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun slf, sem leitt er af manni sem heitir Magnús Magn­ús­son. Aðdrag­andi þeirra var þannig að Magnús og stjórn­endur Borgunar, sem eru á meðal nýrra eig­enda, áttu hug­mynd­ina að kaup­unum, viðr­uðu hana við stjórn­endur Lands­bank­ans og hóp­ur­inn fékk í kjöl­farið að kaupa hlut­inn í Borgun. Þessi eign rík­is­bank­ans var ekki aug­lýst og öðrum áhuga­sömum kaup­endum var ekki gefið tæki­færi til að bjóða.

Kjarninn hefur greint frá því að banka­ráð Lands­bank­ans hafi verið með­vitað um söl­una og að hann hefði ekki farið í gegnum form­legt sölu­ferli. Engu að síður taldi það rétt að selja hlut­inn með þessum hætti, á bak­við luktar dyr til þess fjár­festa­hóps sem hafði sýnt áhuga á því að kaupa hlut­inn. Athygli hefur vakið að á meðal þeirra sem til­heyra fjár­festa­hópnum eru Einar Sveins­son og sonur hans Benedikt Ein­ars­son. Einar er föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þeir voru auk þess við­skipta­fé­lagar um ára­bil, en Bjarni hætti afskiptum að við­skiptum í lok árs 2008. Bjarni og Benedikt eru þar af leið­andi systk­ina­börn.

Eftir að Kjarninn greindi frá því hvernig staðið var að söl­unni á Borg­un­ar­hlutnum hafa nokkrir þing­menn lýst yfir áhyggjum sínum af ferl­inu. Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, hefur verið boð­aður á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar á mánu­dag til að skýra af hverju salan hafi farið fram með þessum hætti og hvað hafi valdið því að þessi hópur, umfram aðra, hafi fengið að kaupa hlut rík­is­bank­ans í arð­bæru greiðslu­korta­fyr­ir­tæki.

Milljarður í hagnað og eigið fé upp á þrjá milljarða


Borgun hagn­að­ist um 994 millj­ónir króna í fyrra.Hann jókst um 33 pró­sent á milli ára og hefur alls tæp­lega fimm­fald­ast frá árinu 2011. Alls hefur fyr­ir­tækið hagn­ast um 2,1 millj­arð króna á árunum 2010-2013, eða nán­ast um sömu upp­hæð og nýir eig­endur eru að greiða fyrir 31,2 pró­sent hlut í félag­inu.

Eignir Borgunar námu 25 millj­örðum króna í lok síð­asta árs og eigið fé félags­ins var þrír millj­arðar króna. Hreinar rekstr­ar­tekjur Borgunar juk­ust úr 2,7 millj­örðum króna í 3,6 millj­arða króna á árinu 2013, eða um rúmar 900 millj­ónir króna.

Það er reyndar óvissa í árs­reikn­ingum Borgunar sem verður að taka með inn í jöfn­una. Borgun gæti þurft að greiða sektir vegna sam­keppn­is­brota sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakar og vegna einka­máls sem Korta­þjón­ustan ehf. hefur höfðað gegn öllum hinum korta­fyr­ir­tækj­unum vegna sam­ráðs þeirra. Ekkert hefur verið bók­fært í árs­reikn­ing vegna þessa.

Mælikvarðar sem fjárfestar styðjast við


Sá hlutur sem Lands­bank­inn seldi er 31,2 pró­sent af heild­ar­hlutafé Borgunar og fyrir það greiddu nýir eig­endur 2.184 millj­ónir króna. Miðað við það er heild­ar­virði Borgunar sjö millj­arðar króna. Borgun á reyndar sjálft tveggja pró­sent hlut í sjálfu sér og ef hann dregst frá er heild­ar­virðið 6,86 millj­arðar króna og hlutur nýju eig­end­anna 31,84 pró­sent.

Þegar fjár­festar eru að meta virði hluta í fjár­mála­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum á borð við Borgun er oft á tíðum stuðst við fleiri mæli­kvarða en bara sjóð­streymi þeirra.

Einn slíkur er að horfa á svo­kallað V/H hlut­fall (e. Price Earnings Ratio) þegar þeir eru að reikna út hvað þeir eiga að borga fyrir fjár­fest­ingar. Hlut­fallið segir til um hversu langan tíma það tekur að greiða upp núver­andi mark­aðsvirði félags­ins sem verið er að kaupa miðað við óbreyttan hagnað þess.

Hagnaður Borgunar í fyrra var tæpur millj­arður króna og mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins er um 6,9 millj­arðar króna, ef miðað er við það verð sem hóp­ur­inn sem keypti af Lands­bank­anum greiddi fyrir. V/H hlut­fallið er því 6,9. Það tekur Borgun þess vegna tæp sjö ár að græða mark­aðsvirði sitt miðað við afkom­una í fyrra.

Fjár­festar styðj­ast líka við svo­kallað V/I hlut­fall (e. Price to book ratio). Til að finna það út er mark­aðsvirði félags deilt í eigið fé þess. Miðað við að mark­aðsvirði Borgunar sé 6,9 millj­arðar króna og að eig­in­fjár­staða félags­ins var þrír millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót er þetta hlut­fall 2,2.

Lágt verð í öllum samanburði


Í Banda­ríkj­unum eru þrjú stærstu greiðslu­korta­fyr­ir­tækin Visa USA, Mastercard og American Express öll skráð á markað. Þau upp­lýsa því öll um helstu atriði í sínum rekstri í sam­ræmi við til­kynn­ing­ar­skyldu mark­að­ar­ins. Þegar sömu hlut­föll og fjallað var um hér að ofan eru skoðuð hjá þessum fyr­ir­tækjum kemur í ljós að þau eru miklu hærri. V/H hlut­fallið, tím­inn sem það tekur félag að greiða upp núver­andi mark­aðsvirði félags miðað við hagnað þess, er 29,8 hjá Visa USA, 30,1 hjá Mastercard og 17,2 hjá American Express. Líkt og áður kom fram er það 6,9 hjá Borgun miðað við nýlegu söl­una til fjár­festa­hóps­ins.

V/I hlut­fallið, mark­aðsvirði deilt í eigið fé er 5,8 hjá Visa USA, 15,4 hjá Mastercard og 4,7 hjá American Express. Hjá Borgun er það 2,2 miðað við kaup­verðið sem nýju eig­end­urnir greiddu fyrir hlut sinn. Mörgum þykir það vera afar lágt.

Vert er að taka fram að félögin eru ekki að öllu leyti sam­bæri­leg þótt grunn­rekstur þeirra allra snú­ist um greiðslu­korta­þjón­ustu. Þá er allt annað og lægra vaxta­stig í Banda­ríkj­unum en á Íslandi.

Skráð félög á Íslandi með mun hærri margfaldara


Þegar önnur félög á Íslandi eru skoðuð, miðað við stöðu þeirra í árs­lok 2013, kemur líka í ljós að verð­lagn­ingin á Borgun, miðað við ofan­greind hlut­föll, er einnig mjög lág. V/H hlut­fallið hjá öllum skráðum félögum lands­ins utan Nýherja (sem skil­aði tapi 2013) er að með­al­tali 36,2. Sama hlut­fall hjá Borgun, miðað við kaup­verð nýrra eig­enda, er því ein­ungis um fimmt­ungur þess með­al­tals.

[caption id="attachment_9186" align="align­right" width="300"] Steinþór Pálsson er banka­stjóri Lands­bank­ans.[/caption]

Ef Vodafone er sleppt úr þessu reikn­ings­dæmi, þar sem marg­ald­ari þess félags er mjög hár, er með­al­tal hinna skráðu félag­anna samt á milli 19 og 20. Ef horft er ein­vörð­ungu á trygg­inga­fé­lögin þrjú, sem stunda fjár­mála­starf­semi, er V/H hlut­fallið 10,2.

Til við­bótar er mikið öryggi í eig­enda­hópi Borgunar, hinn eig­and­inn er banki, og tekjur félags­ins hafa vaxið mikið á und­an­förnum árum og mikil vaxta­tæki­færi eru í nán­ustu fram­tíð. Báðir þessir þættir hefðu frekar átt að hækka verð­mið­ann á Borgun umfram vana­lega mæli­kvarða.

Mikið af upplýsingum í ársreikningum


Lands­bank­inn sendi frá sér til­kynn­ingu um málið þar sem segir að stjórn­endur hans hafi ekki talið rétt að selja hlut­inn í opnu og gagn­sæju ferli, eins og reglur bank­ans gera ráð fyrir. Í til­kynn­ingu á vef­síðu bank­ans sagði: „Einn helsti keppi­nautur Lands­bank­ans er meiri­hluta­eig­andi félags­ins og jafn­framt einn stærsti við­skipta­vinur þess, sem gerir Lands­bank­anum erfitt um vik, að vinna að sölu og afhend­ingu gagna um félagið. Lands­bank­inn hefur haft mjög tak­mark­aðan aðgang að Borgun eða upp­lýs­ingum um fyr­ir­tækið vegna sáttar sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2008. Því auð­veld­aði þátt­taka stjórn­enda í kaup­enda­hópnum mögu­legum kaup­endum að leggja mat á rekst­ur­inn og afla sér nauð­syn­legra upp­lýs­inga. Eðli máls­ins sam­kvæmt tóku samn­ingar mið af þess­ari stöðu aðila.“

Til að finna þær upp­lýs­ingar sem þarf til að hægt sé að reikna út ofan­greinda mæli­kvarða á mögu­legu virði félags er hins vegar nóg að vera með árs­reikn­ing þess undir höndum. Hægt er að kaupa árs­reikn­inga allra fyr­ir­tækja á Íslandi í árs­reikn­inga­skrá fyr­ir­tækja­skráar rík­is­skatt­stjóra gegn vægu gjaldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár