Landsbankinn hefði fengið sex til átta prósent af hlut Borgunar

Lands­bank­inn hefði getað átt rétt á hluta af því fé sem Borgun fær fyrir söl­una á Visa Europe. Bankinn hafði áhyggjur af orð­spori sínu þegar salan var ákveðin.

Lands­bank­inn hefði fengið milli sex og átta pró­sent af hlut­deild Borgunar í sölu­and­virði Visa Europe ef fyr­ir­vari hefði verið um greiðslur vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe áður en bank­inn seldi hlut sinn í Borgun. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá Borgun.

Hlut­fallið mið­ast við umfang erlendra Visa-við­skipta Borgunar í lok árs 2013, en í við­ræðum um sölu á 31,2 pró­senta hlut Lands­bank­ans í Borgun var stuðst við árs­reikn­ing þess árs. Við­ræð­urnar hófust í mars 2014 og þeim lauk seint í nóv­em­ber saman ár með því að Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun greiddi 2,2 millj­arða króna fyrir hlut­inn.

Síðan þá hefur umfang erlendra Visa-við­skipta Borgunar auk­ist gríð­ar­lega, sér­stak­lega á árinu 2015. Sú aukn­ing hefur skilað því að hlut­deild Borgunar í sölu­virði Visa Europe, sem áætlað er um þrjú þús­und millj­arðar króna, hefur auk­ist veru­lega. Ekki liggur nákvæm­lega ljóst fyrir hversu mikið mun falla fyr­ir­tæk­inu í skaut, enda við­skiptin ekki frá­gengin. Ljóst er þó að Borgun og Valitor, það íslenska greiðslu­fyr­ir­tæki sem hefur verið með mest umsvif í Visa-við­skiptum und­an­farna ára­tugi, fá á annan tug millj­arða króna í sinn hlut þegar við­skiptin verða kláruð.

Höfðu áhyggjur af orðspori

Kjarninn greindi frá því um helg­ina að Lands­bank­inn hafi verið með upp­lýs­ingar um val­rétt Visa Inc. á kaupum á Visa Europe áður en bank­inn seldi hlut sinn í Borgun. Hann vissi einnig af áformum Borgunar um útrás á árinu 2015 og var með upp­lýs­ingar um rekstur fyr­ir­tæk­is­ins.

Lands­bank­inn sendi frá sér til­kynn­ingu í morgun þar sem meðal ann­ars kom fram að „Lands­bank­anum var kunn­ugt um að Borgun hugð­ist auka veru­lega færslu­hirð­ingu fyrir selj­endur í erlendum net­við­skiptum. Að mati bank­ans fylgdi þeirri starf­semi veru­leg áhætta og líkur voru taldar á að hún gæti leitt til tjóns hjá félag­inu og skaðað orð­spor Lands­bank­ans."

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans voru meðal ann­ars uppi áhyggjur um að útrás Borgunar myndi fela í sér aukn­ingu á færslu­hirð­ingu fyrir veð­mála­við­skipti og klám­síður.

Haukur Oddsson, for­stjóri Borgunar, segir að eina atvinnu­greinin sem vigti meira en fimm pró­sent í erlendum við­skiptum Borgunar sé smá­sala. Engin önnur atvinnu­grein, hvort sem það séu veð­mála­við­skipti, staf­rænt efni (e. digi­tal content) eða við­skipti hót­ela vigti meira inn í heild­ar­um­fang við­skipta Borgunar en fimm pró­sent. Við­skipti klám­síðna er oft­ast nær flokkuð sem staf­rænt efni.

Haukur segir að við­skipti Borgunar séu nákvæm­lega eins og lög geri ráð fyrir að þau séu. Sókn fyr­ir­tæk­is­ins erlendis á árinu 2015 hafi að lang­mestu leyti verið fólgin í því að venju­legar versl­anir víðs­vegar innan Evrópu hafi hafið við­skipti við Borgun. Fyr­ir­tækið sé til að mynda í við­skiptum við um þrjú þús­und versl­anir í Ung­verja­landi og annað eins í Bret­landi. Allt að 200 versl­anir bæt­ist við við­skipta­manna­hóp­inn hjá Borgun í hverri viku. Þessi mikla aukn­ing geri það að verkum að færslu­hirð­ing fyrir selj­endur erlendis marg­fald­að­ist á árinu 2015.

Engar upplýsingar um rétt til hlutdeildar í viðræðum

Í til­kynn­ingu Lands­bank­ans sem send var í dag kom fram að Lands­bank­inn hefði engar upp­lýs­ingar um að Borgun myndi fá greiðslur vegna yfir­töku Visa Inc. á Visa Europe.

Bankinn opn­aði sam­hliða upp­lýs­inga­síðu þar sem veittar eru upp­lýs­ingar um sölu Lands­bank­ans á hlut í Borgun.

„Í við­ræðum Lands­bank­ans við meiri­hluta­eig­anda Valitor, Arion banka, lágu fyrir upp­lýs­ingar um rétt­indi Valitor í tengslum við val­rétt­inn, þótt úti­lokað hafi verið að leggja áreið­an­legt mat á verð­mætin á þeim tíma­punkti. Borgun gerir upp sam­kvæmt alþjóð­legum reikn­ings­skila­stöðlum (IFRS) og ber því að færa slík rétt­indi á gang­virði á hverjum tíma. Það að Borgun hafi ekki metið slík rétt­indi til eignar og/eða gert grein fyrir þeim í sínum árs­reikn­ingum eða í upp­lýs­inga­gjöf til Lands­bank­ans, bendir til þess að Borgun hafi á þeim tíma ekki átt til­kall til rétt­ind­anna, þau hafi ekki verið til staðar eða þau væru það óljós að ekki væri hægt að reikna þau til verð­mætis. Stjórn­enda­hóp­ur­inn sem var í við­ræðum við Lands­bank­ann hafði fengið leyfi stjórnar til að gefa upp­lýs­ingar um rekstur félags­ins. Í við­ræð­unum við stjórn­endur komu ekki fram neinar upp­lýs­ingar um að Borgun hefði rétt til hlut­deildar í verð­mætum val­rétt­ar­ins, hvað þá að vegna hans hefðu skap­ast verð­mæti hjá Borgun. Lands­bank­inn hefur enga ástæðu til að ætla að stjórn­endur Borgunar hafi verið með­vit­aðir um til­vist slíkra rétt­inda.“

Haukur segir að það hafi verið opin­berar upp­lýs­ingar að Borgun sé útgef­andi hjá Visa Europe.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár