Samkeppniseftirlitið sagði Landsbankanum aldrei að selja hlut sinn í Borgun

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að ekki hafi komið til þess að það setti Lands­bank­anum tíma­mörk eða önnur bind­andi skil­yrði varð­andi fyr­ir­komu­lag á sölu eign­ar­hluta bank­ans í Borgun.„Sala Lands­bank­ans á hlutum sínum í Borgun og Valitor og til­högun hennar var því alfarið á for­ræði og á ábyrgð Lands­bank­ans." Eft­ir­litið setti því aldrei skil­yrði um að Lands­bank­inn myndi selja sig út úr Borgun.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi frá sér rétt í þessu vegna umfjöll­unar um sölu á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut Lands­bank­ans í Borgun. Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, hafði þar meðal ann­ars vísað til krafna og þrýst­ings sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi sett á bank­ann.

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að ummæli Stein­þórs í Frétta­blað­inu í dag, um að bank­inn hafi haft tak­markað aðgengi að upp­lýs­ingum um Borgun vegna sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið séu ekki rétt. Eft­ir­litið seg­ist ekki geta fall­ist á „að ráð­staf­anir eft­ir­lits­ins hafi haft áhrif á skil­mála eða við­skipta­kjör umræddrar sölu."

Selt bakvið luktar dyr á lágu verði

Morg­un­blaðið greindi frá því í gær­morgun að íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tækin Borgun og Valitor muni hagn­ast um vel á annan tug millj­arða króna vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe á um þrjú þús­und millj­arða króna. Búist er við því að kaupin klárist á næstu mán­uðum.

Borgun mun fá hlut­deild í sölu­verð­inu þar sem fyr­ir­tækið er á meðal þrjú þús­und útgef­enda Visa- korta í Evrópu. Þessi tíð­indi hafa vakið upp mikla umræðu þar sem Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun í nóv­em­ber 2014 á 2,2 millj­arða króna til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar. Hlut­ur­inn var ekki aug­lýstur og fór ekki í gegnum form­legt sölu­ferli. Þess í stað var hlut­ur­inn seldur á bak­við luktar dyr til fjár­festa­hóps sem leitað hafði eftir því að kaupa hann. Hann sam­an­stóð af stjórn­endum Borgunar og með­fjár­festum þeirra. Á meðal þeirra sem til­heyrðu fjár­festa­hópnum var Einar Sveins­son. Einar er föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þeir voru auk þess við­skipta­fé­lagar um ára­bil, en Bjarni hætti afskiptum að við­skiptum í lok árs 2008. Verðið sem Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun slf., sem greiddi fyrir hlut­inn þótti lágt bæði í inn­lendum og erlendum sam­an­burði. Félagið greiddi um 2,2 millj­arða króna fyrir hlut­inn en hagn­aður Borgunar 2013 var um einn millj­arður króna.

Á sama tíma og verið var að afgreiða kaupin hafði verið gert opin­bert að Visa Inc. væri í við­ræðum um að kaupa Visa Europe. Verðið þá var áætlað um 1.300 millj­arðar króna sam­kvæmt fréttum banda­rískra miðla á þeim tíma, eða rúm­lega helm­ingur þess sem nú er talið að greitt verði fyrir hlut­inn. Engu að síður lá fyrir und­ir­rituð vilja­yf­ir­lýs­ing um að við­skiptin myndu fara fram, með til­heyr­andi greiðslum til allra þeirra útgef­enda Visa-korta í Evrópu sem rétt áttu á hlut­deild í sölu­hagn­að­inum. Á meðal þeirra var Borgun. Samt var ekki gert ráð fyrir því að Lands­bank­inn myndi fá hlut­deild í þeirri greiðslu ef kaup Visa inc. myndu ganga eftir þegar selt var til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar.

Á aðal­fundi Borgunar 2015, sem fór fram tæpum þremur mán­uðum eftir að kaupin voru frá­gengin, var ákveðið að greiða hlut­höfum Borgunar hf. 800 millj­ónir króna í arð. Það var í fyrsta sinn sem arður var greiddur úr fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2007.

Kaup VISA Inc. á Visa Europe voru sam­þykkt í byrjun nóv­em­ber 2015. Það er því nokkuð síðan að þau voru gerð opin­ber og stjórn­endur Borgunar hafa vitað vel að þau standi til. Í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­inn reyndi breska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið UPG að kaupa allt hlutafé Borgunar hf. en Íslands­banki, sem á 63,5 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu, vildi ekki selja. Tilboðið sem UPG gerði var, sam­kvæmt frétt Vísis um málið, mun hærra en það sem Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun greiddi fyrir sinn hlut í nóv­em­ber 2015.

Samkeppniseftirlitið hafnar fullyrðingum Steinþórs

Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, sagði við RÚV í gær: „Við vorum undir þrýst­ingi frá sam­keppn­is­yf­ir­völdum að selja og við töldum okkur vera að fá gott verð. Við vissum af þessum Visa samn­ingi, eða vilja­yf­ir­lýs­ingu út í heimi, við sáum ekki beina teng­ingu af því að Borgun hafði eig­in­lega ekk­ert verið í Visa við­skiptum, þau höfðu fyrst og fremst verið Mastercard fyr­ir­tæki. Það er ekki fyrr en að við seljum sem þeir fara í miklu meiri vöxt inn í Visa og fyrir vikið er þessi greiðsla sem þau eru að fá komin til vegna við­skipta eftir að við seldum, eitt­hvað sem við sáum ekki fyrir á þeim tíma.“

Í Frétta­blað­inu í morgun er haft eftir honum að Lands­bank­inn hafi haft tak­markað aðgengi að upp­lýs­ingum um Borgun vegna sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Lands­bank­inn hafi til að mynda ekki mátt vera með stjórn­ar­mann í fyr­ir­tæk­inu. Þá hafi verið hætta á að vöxtur Borgunar erlendis hefði endað illa.

Þessu hafnar Sam­keppn­is­eft­ir­litið í til­kynn­ingu sem það hefur sent frá sér. Þar segir m.a. að í til­viki eign­ar­halds bank­anna á Borgun, en bæði Lands­bank­inn og Íslands­banki áttu í fyr­ir­tæk­inu, þá hafi það ekki „skil­yrði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að Lands­bank­inn fremur en Íslands­banki seldi sig út úr félag­inu[...]Áður en Sam­keppn­is­eft­ir­litið lauk sátt við Lands­bank­ann í mál­inu hafði bank­inn selt hlut sinn í Borgun og Valitor. Ekki kom því til þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið setti bank­anum tíma­mörk eða önnur bind­andi skil­yrði varð­andi fyr­ir­komu­lag á sölu eign­ar­hluta. Sala Lands­bank­ans á hlutum sínum í Borgun og Valitor og til­högun hennar var því alfarið á for­ræði og á ábyrgð Lands­bank­ans. Í frétt í Frétta­blað­inu í dag er jafn­framt haft eftir banka­stjór­anum að Lands­bank­inn hafi haft tak­markað aðgengi að upp­lýs­ingum um Borgun vegna sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Af þessu til­efni er rétt að taka fram að Sam­keppn­is­eft­ir­litið getur ekki fall­ist á að ráð­staf­anir eft­ir­lits­ins hafi haft áhrif á skil­mála eða við­skipta­kjör umræddrar sölu."

Eft­ir­litið segir einnig að í því skyni að ryðja sam­keppn­is­hindr­unum úr vegi hafi bank­arnir skuld­bundið sig m.a. til þess að gera breyt­ingar til fram­búðar á eign­ar­haldi á korta­fyr­ir­tækj­unum. „Þannig er hverjum þess­ara banka nú óheim­ilt að eiga eign­ar­hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæki með öðrum íslenskum við­skipta­banka. Eins og kunn­ugt er höfðu greiðslu­korta­fyr­ir­tækin tvö verið til lengri tíma í sam­eig­in­legri eigu keppi­nauta á fjár­mála­mark­aði. Sú skipan var að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins ein af meg­in­á­stæðum þeirra sam­keppn­is­hind­r­ana sem sýnt hefur verið fram á."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár