0,41 prósent hlutur í Borgun seldur á 30 milljónir

Lands­bank­inn hefur birt sölu­and­virði 0,41 pró­sent hlutar í Borgun, sem seldur var eftir opið sölu­ferli.

Lands­bank­inn, sem er 98 pró­sent í eigu íslenska rík­is­ins, seldi 0,41 pró­sent hlut í Borgun, sem hann aug­lýsti til sölu í maí í fyrra, á 30 millj­ónir króna, stað­greitt, til Fast­eigna­fé­lagsin Auð­brekka 17 ehf., sem Guð­mundur Hjalta­son er í for­svari fyrir, sam­kvæmt gögnum Rík­is­skatt­stjóra. Þetta þýðir að heild­ar­virði hluta­fjár Borgunar í við­skipt­unum var tæp­lega 7,3 millj­arðar króna. Í við­skipt­unum þegar 31,2 pró­sent hlut­ur­inn var seldur á 2,2 millj­arða var heild­ar­virði hluta­fjár um sjö millj­arðar.

Þrír aðilar sýndu því áhuga að eign­ast hlut­inn og komu þrjú til­boð í hann. Hlut­ur­inn var að lokum seldur hæst­bjóð­anda, sem var fyrr­nefnt félag. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Lands­bank­ans um sölu bank­ans á eign­ar­hlutum í Borgun.

Bankinn hafði áður neitað að gefa upp verðið, eins og greint var frá á vef Kjarnans. Svar Lands­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans var þá, svohljóð­andi: „Hluta­bréfin voru seld hæst­bjóð­anda. Verðið var í sam­ræmi við verð í sölu Lands­bank­ans á hluta­bréfum í Borgun árið 2014, að teknu til­liti til arð­greiðslu og ávöxt­unar á hluta­bréfa­mark­aði í milli­tíð­inni.“

Í ítar­legri sam­an­tekt Lands­bank­ans um málið kemur fram að sölu­verðið sé sam­bæri­legt og í við­skipt­unum þegar 31,2 pró­sent hlutur var seldur á 2,2 millj­arða króna, með hlið­sjón af þróun hluta­bréfa­verðs á þeim stutta tíma sem leið á milli við­skipt­anna. Um hálft ár leið á milli þess að hlut­irnir voru seldir, og greiddu hlut­hafar Borgunar sér um 800 millj­ónir króna í arð í milli­tíð­inni.

Þann 29. mars 2015 var Spari­sjóður Vest­manna­eyja ses. sam­ein­aður Lands­bank­anum hf. Við sam­ein­ing­una eign­að­ist bank­inn 1.806.611 hluti í Borgun hf. Eign­ar­hlut­ur­inn nam um 0,41 pró­sent af heild­ar­hluta­fjár í félag­inu.

Í lok árs 2014, í nóv­em­ber­mán­uði, seldi Lands­bank­inn Íslands 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun fyrir 2,2 millj­arða króna til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar slf., sem stofnað var skömmum fyrir kaupin á hlutnum. Ákveðið var að greiða hlut­höfum Borgunar hf. 800 millj­ónir króna í arð vegna rekst­urs fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins, en hann fór fram í febr­úar. Þetta var fyrsta arð­greiðslan úr félag­inu frá árinu 2007 og komu tæp­lega 250 millj­ónir króna koma í hlut nýrra hlut­hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár