Landsbankinn neitar að gefa upp söluverðið á hlut í Borgun

Lands­bank­inn, sem er 98 pró­sent í eigu íslenska rík­is­ins, neitar að gefa upp á hvað bank­inn seldi 0,41 pró­sent hlut í Borgun, sem hann aug­lýsti til sölu í maí síð­ast­liðnum og seldi að lokum til félags­ins Fast­eigna­fé­lagið Auð­brekka 17 ehf. Þrír aðilar sýndu því áhuga að eign­ast hlut­inn og komu þrjú til­boð í hann. Hlut­ur­inn var að lokum seldur hæst­bjóð­anda, að því er bank­inn hefur upp­lýst, en eins og áður segir neitar bank­inn að gefa upp á hvaða verði hlut­ur­inn var seldur, og ber því við að sam­kvæmt sölu­samn­ingi þá geti bank­inn ekki upp­lýst um verðið nema með sam­þykki kaup­anda. Sem ekki liggi fyrir.

Svar Lands­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans var þetta: „Hluta­bréfin voru seld hæst­bjóð­anda. Verðið var í sam­ræmi við verð í sölu Lands­bank­ans á hluta­bréfum í Borgun árið 2014, að teknu til­liti til arð­greiðslu og ávöxt­unar á hluta­bréfa­mark­aði í milli­tíð­inni.“ Engar frek­ari eða nákvæm­ari upp­lýs­ingar feng­ust frá bank­anum um hvert sölu­verðið hefði verið.

Þann 29. mars 2015 var Spari­sjóður Vest­manna­eyja ses. sam­ein­aður Lands­bank­anum hf. Við sam­ein­ing­una eign­að­ist bank­inn 1.806.611 hluti í Borgun hf. Eign­ar­hlut­ur­inn nam um 0,41 pró­sent af heild­ar­hluta­fjár í félag­inu.

Verðið var gefið upp þegar selt var bak við luktar dyr


Í lok árs í fyrra, í nóv­em­ber­mán­uði, seldi Lands­bank­inn Íslands 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun fyrir 2,2 millj­arða króna til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar slf., sem stofnað var skömmum fyrir kaupin á hlutnum. Ákveðið var að greiða hlut­höfum Borgunar hf. 800 millj­ónir króna í arð vegna rekst­urs fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins, en hann fór fram í febr­úar. Þetta var fyrsta arð­greiðslan úr félag­inu frá árinu 2007 og komu tæp­lega 250 millj­ónir króna koma í hlut nýrra hlut­hafa.

Umdeild sala


Salan á Borgun var umdeild en hlut­ur­inn var ekki aug­lýstur til sölu. Íslenska ríkið er lang­sam­lega stærsti eig­andi Lands­bank­ans með um 98 pró­sent hlut. Tryggvi Pálsson, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, sagði í ræðu sinni á aðal­fundi Lands­bank­ans að betra hefði verið að aug­lýsa hlut­inn til sölu, og selja hann þannig í opnu og gagn­sæju ferli. Þá voru einnig sterkar vís­bend­ingar um það að verðið hefði verið í lægri kant­inum miðað við hefð­bundna mæli­kvarða verð­mata á sam­bæri­legum fyr­ir­tækjum. Eins og áður segir er bank­inn ekki til­bú­inn að gefa upp sölu­verðið eftir að hlut­ur­inn var aug­lýstur til sölu.


Stofnað í október í fyrra


Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar nemur 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð, sam­kvæmt stofnskjölum félags­ins.

Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borgunar slf. Eigendur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarninn hefur undir höndum. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stálskip ehf., þar sem Guðrún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­andi þess er Einar Sveins­son í gegnum móð­ur­fé­lagið Charamino Holdings Limited.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sigvaldi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sigurþór Stef­áns­son er í for­svari, Eggson ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jakobína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sigríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spectabilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Samkvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber síð­ast­liðnum, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borgunar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Margrét Gunn­ars­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár