Formaður bankaráðs Landsbankans: hefðum betur selt hlutinn í Borgun í opnu söluferli

Lands­bank­inn hefði betur selt eign­ar­hluti sína í greiðslu­kort­ar­fyr­ir­tækj­unum Borgun og Valitor í opnu sölu­ferli „forms­ins og ásýnd­ar­innar vegna“. Bankanum hafi hins vegar verið vandi á höndum við sölu á hlut í félög­unum þar sem aðkoma hans að þeim var tak­mörkuð og í eigu helstu keppi­nauta bank­ans. „Bankinn gat ekki tryggt að upp­lýs­inga­gjöf til hugs­an­legra kaup­enda yrði nægj­an­leg og taldi því óhjá­kvæmi­legt að selja hlut­ina til aðila sem höfðu mikla inn­sýn í starf­semi fyr­ir­tækj­anna.“ Þetta kom fram í ræðu Tryggva Páls­sonar, for­manns banka­ráðs Lands­bank­ans, á aðal­fundi bank­ans sem fór fram í dag.

Lands­bank­inn, sem íslenska ríkið á, sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í lok nóv­em­ber í fyrra þar sem fram kom að Steinþór Pálsson banka­stjóri, hefði und­ir­ritað samn­ing um sölu á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut í Borgun. Kaup­verðið á hlutnum var tæp­lega 2,2 millj­arðar króna og var kaup­andi hlut­ar­ins Eign­ar­halds­fé­lag Borgunar Slf. Ekkert form­legt sölu­ferli fór fram áður en félagið var selt. Kaupin fóru því fram bak við luktar dyr, þar sem eng­inn annar en hóp­ur­inn sem sýndi áhuga á kaup­unum fékk að reyna að kaupa hlut­inn.

Nokkrum dögum síðar var greint frá því að Arion banki hefði lagt fram kauptil­boð í 38 pró­sent hlut Lands­bank­ans í Valitor.

Var áhrifalaus minnihlutaeigandi


Í ræð­unni á aðal­fund­inum í dag sagði Tryggvi: „Salan á eign­ar­hlut­unum í Borgun og Valitor krafð­ist mestrar umhugs­unar enda má segja að lands­lagi greiðslu­korta­mark­að­ar­ins hafi verið breytt. Und­an­farin ár hefur Lands­bank­inn verið áhrifa­laus minni­hluta­eig­andi í greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum. Í sam­ræmi við sátt sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2008 voru miklar tak­mark­anir á aðkomu Lands­bank­ans sem hlut­hafa að starf­semi þeirra. Enn­fremur hefur það verið mark­mið sam­keppn­is­yf­ir­valda að aðeins einn banki sé hlut­hafi í hverju greiðslu­korta­fyr­ir­tæki á hverjum tíma. Þessi staða var óvið­un­andi fyrir Lands­bank­ann og því teljum við söl­una vera far­sæla úrlausn fyrir bank­ann. Samhliða sölu eign­ar­hlutar bank­ans í Valitor var gerður þjón­ustu­samn­ingur við fyr­ir­tækið og tekin upp bein sam­skipti við Visa Europe. Með því móti er vel gætt hags­muna Lands­bank­ans og við­skipta­vina hans.

Gagnrýnt var að sala eign­ar­hluta í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­unum fór ekki fram í opnu sölu­ferli. Við hefðum betur gert það forms­ins og ásýnd­ar­innar vegna en bank­anum var vandi á höndum við sölu á hlut í þessum félögum þar sem aðkoma hans að þeim var tak­mörkuð og helstu keppi­nautar á mark­aði eig­endur þeirra. Bankinn gat ekki tryggt að upp­lýs­inga­gjöf til hugs­an­legra kaup­enda yrði nægj­an­leg og taldi því óhjá- kvæmi­legt að selja hlut­ina til aðila sem höfðu mikla inn­sýn í starf­semi fyr­ir­tækj­anna.“

Arðsemi of lág


Tryggvi fjall­aði einnig um þá gagn­rýni sem komið hefur fram á góða afkomu Lands­bank­ans, en bank­inn hagn­að­ist um 28,8 millj­arða króna í fyrra og hefur sam­tals hagn­ast um tæp­lega 142 millj­örðum króna frá upp­hafi árs 2009.

Tryggvi sagði að banka­ráðs­menn og stjórn­endur bank­ans telji hins vegar arð­semi bank­ans sé of lág. „Eigið fé bank­ans nemur um 250 ma. kr. sem gera verður eðli­legar kröfur til um arð­semi. Arðsemin hefur vissu­lega verið há und­an­farin ár en drjúgur hluti af hagn­að­inum skýrist af virð­is­breyt­ingum útlána, geng­is­hagn­aði, hagn­aði af eignum á mark­aði og sölu eigna. Viðbúið er að þessir liðir skili litlu á næstu árum og því eru allar horfur á að arð­semi bank­ans minnki. Þegar stórum ein­skipt­isliðum sleppir þá var arð­semin á liðnu ári um 5-6% sem er of lágt.

Banka­sýslan sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­anum hefur lagt að banka­ráð­inu að bæta reglu­bund­inn rekstur með lækkun kostn­aðar og aukn­ingu þjón­ustu­tekna. Við erum sam­mála þeirri kröfu og einmitt þess vegna höfum við mótað nýja stefnu fyrir bank­ann sem miðar að því að ná arð­semi af reglu­bundnum rekstri yfir 10% á næstu fjórum árum,“ sagði Tryggvi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár