Arion banki leggur fram kauptilboð í 38 prósent hlut í Valitor

Arion banki hefur lagt fram kauptil­boð í 38 pró­sent hlut Lands­bank­ans í Valitor. Taki Lands­bank­inn til­boð­inu og selji hlut­inn þá mun Arion banki eiga 98,8 pró­sent hluta­fjár. Þetta kom fram í Kvöld­fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í dag, þá er mikil upp­stokkun í gangi á eign­ar­haldi greiðslu­korta­fyr­ir­tækja hér á landi, ekki síst þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur gert bönk­unum það ómögu­legt að starfa saman eða í sam­ráði á vett­vangi greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna.

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sagði í sam­tali við Kjarnann í dag, að sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi knúið á um breyt­ingar á eign­ar­haldi hjá greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum á und­an­förnum mán­uðum, og sett sig upp á móti því að full­trúar frá bönk­unum öllum, sem eru eig­endur greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna, geti átt með sér sam­starf eða sam­ráð á vett­vangi þess­ara fyr­ir­tækja, hvort sem það er í stjórn eða með annarri aðkomu.

Þrjú stærstu greiðslu­korta­fyr­ir­tækin á Íslandi eru Valitor, Borgun og Kredit­kort. Stærstu eig­endur Borgunar eru Íslands­banki með 62 pró­sent hlut og Eign­ar­halds­fé­lag Borgunar slf. með 31,2 pró­sent hlut en félagið keypti hlut­inn af Lands­bank­anum á dög­unum fyrir tæp­lega 2,2 millj­arða króna. Aðrir eig­endur, með óveru­lega hluti hver, eru Arion banki, BPS ehf., Spari­sjóður Vest­manna­eyja, Spari­sjóður Norð­fjarðar og síðan á Borgun hf. lítið eitt af eigin hlutum.

Valitor hf. er 99 pró­sent í eigu Valitor Holding hf., sem eru í eigu banka að mestu leyti. Arion banki er stærsti eig­and­inn með 60,78 pró­sent hlut og Lands­bank­inn er með 38 pró­sent hlut. Spari­sjóðir og smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki eiga síðan afgang­inn, tæp­lega tvö pró­sent.

Kredit­kort er síðan í eigu Íslands­banka að nær öllu leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár