Félag Samherja í Jónshúsi í Köben tók við peningum frá Kýpur

Samherji ætl­aði sér að opna skrif­stofu í Kaup­manna­höfn og lét eig­in­mann for­stöðu­manns Jónshúss, Hrannar Hólm, sjá um stofnun félags­ins. Sam­herj­a­skjölin sýna milli­færslur til félags­ins frá Kýpur. Félagið á Kýpur tók líka við pen­ingum frá Namibíu og milli­færði fé í skatta­skjól.

Félag Samherja í Jónshúsi í Köben tók við peningum frá Kýpur
Greiðsla til félags í Jónshúsi Sam­herj­a­skjölin sýna milli­færslu frá Kýp­ur­fé­lagi Samherja, sem meðal ann­ars átti í við­skiptum við félag Samherja í Namibíu og í skatta­skjól­inu Máritíus, til eign­ar­halds­fé­lags Samherja sem skráð var í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn.

Eign­ar­halds­fé­lag Samherja, Esja Shipping Limited, milli­færði í febr­úar í fyrra fjár­muni inn á reikn­ing félags sem skráð var í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn, heim­ili Jóns Sig­urðs­sonar for­seta sem er í eigu íslenska rík­is­ins. Húsið stendur við göt­una Øster Voldgade 1.

Milli­færslan inn á danska félagið kemur fram í Sam­herj­a­skjöl­unum sem Stundin fjallar um í sam­starfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera. Kjarninn í þeirri umfjöllun er að Samherji greiddi hund­ruð millj­óna króna í mútur, vel á annan millj­arð króna alls, til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu í skiptum fyrir tryggðan aðgang að hesta­makríl­skvóta. 

Sam­herj­a­skjölin sýna enn fremur 2.6 millj­óna milli­færslu frá þessu sama Kýpur-félagi Samherja í skatta­skjólið Máritíus, 3.6 millj­arða króna milli­færslu til Íslands og tæp­lega 190 millj­óna króna milli­færslu frá namibísku félagi Samherja. 

Milli­færslan til Esju ShippingKortið sýnir nokkrar áhuga­verðar milli­færslur til frá reikn­ingi Esju Shipping í DNB bank­anum norska. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár