Þingmenn neita að ræða takmörkun á launahækkun sinni - Áfengisfrumvarpið tekið fyrir í dag

37 þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Fram­sókn­ar­flokks­ins neit­uðu að taka umræðu um frum­varp Pírata sem kveður á um lækkun launa þing­manna til sam­ræmis við almenna launa­þróun. Áfeng­is­frum­varpið er á dag­skrá Alþingis í dag.

Þingmenn neita að ræða takmörkun á launahækkun sinni - Áfengisfrumvarpið tekið fyrir í dag
Frá Alþingi Þingmenn hafa fengið 75 pró­sent hækkun á þing­far­ar­kaupi á kjör­tíma­bili síð­ustu tveggja rík­is­stjórna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Pressphotos

37 þing­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og Fram­sókn­ar­flokks­ins kusu gegn því í morgun að taka umræðu á Alþingi um hvort þing­menn ættu að tak­marka launa­hækk­anir sínar við sam­bæri­legar launa­hækk­anir og almenn­ingur hefur fengið frá árinu 2013. 

Frumvarp Jón Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata, þessa efnis, verður því ekki á dag­skrá þings­ins í dag. Meðal mála sem á dag­skránni eru í dag er sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, staðan í ferða­málum, hús­næði Lista­há­skóla Íslands, aðskiln­aður fjár­fest­inga­banka- og við­skipta­banka og áfeng­is­frum­varp sjálf­stæð­is­þing­manns­ins Teits Björns Ein­ars­sonar. Talið er að það muni taka stóran hluta af tíma þings­ins í dag og jafn­vel ýta mörgum öðrum málum til hliðar.

Launahækkun langt umfram almenning

Jón Þór ÓlafssonÞing­maður Pírata lagði fram frum­varp um lækkun launa þing­manna til sam­ræmis við almenna launa­þróun.

Þingmenn fengu tæp­lega 45 pró­sent launa­hækkun með ákvörðun kjara­ráðs, sem skipað er af Alþingi, á kjör­dag, 29. októ­ber síð­ast­lið­inn, án þess að kjós­endur vissu af. Þing­far­ar­kaup hafði þá síð­asta ára­tug­inn hækkað um 127 pró­sent á sama tíma­bili og launa­vísi­tala hefur hækkað um 98,6 pró­sent. 

Launa­hækkun þing­manna var um 338 þús­und krónur í einu skrefi, en sam­tals er hækkun þing­far­ar­kaups tæp 75 pró­sent frá 2013, á sama tíma og almenn laun hafa hækkað um 29 pró­sent. Eftir háværa gagn­rýni ákvað for­sætis­nefnd Alþingis að leggja til að skatt­frjálsar end­ur­greiðslur til þing­manna yrðu lækk­aðar um rúm­lega 100 þús­und krónur. 

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í gær „alveg gjör­sam­lega óþol­andi“ að þurfa að taka umræðu um málið á Alþingi, þar sem það ætti að vera í höndum kjara­ráðs, en sjálfur hefur hann varað við því að Íslend­ingar „kunni sér ekki hóf þegar vel árar“ og varað við ófriði á vinnu­mark­aði sem helsta hætt­una gegn stöð­ug­leik­anum. „Það er við þær aðstæður sem fólk segir: Nei, það þarf að gera svo miklu miklu meira. Þessu er ég bara ósam­mála ... Mín skoðun er sú að mestu hættu­merkin hvað varðar óstöð­ug­leika séu þróun geng­is­ins, ann­ars vegar og hins vegar, staðan á vinnu­mark­aði. Að það sé friður á vinnu­mark­aði.“

Samningar gætu verið í uppnámi

Tilefni þess að Jón Þór og Píratar vildu umræðu um málið á Alþingi er að bæði sam­tök atvinnu­rek­enda og sam­tök laun­þega hafa ályktað um að miklar launa­hækk­anir þing­manna og ráð­herra skaði kom­andi kjara­við­ræður. Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, segir að „for­sendu­brest­ur­inn [sé] aug­ljós“. Rík­is­sátta­semj­ari hefur sagt að framundan sé erfitt ár. Innan viku mun for­sendu­nefnd ASÍ og Samtaka atvinnu­rek­enda skila nið­ur­stöðum um hvort for­sendur kjara­samn­inga haldi eða hvort þeir opn­ist, með hættu á lang­vinnum kjara­deilum og verk­föllum.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, hefur sagt að þing­menn hafi orðið eftir á í kjara­þróun frá efna­hags­hrun­inu 2008. Hann útskýrði afstöðu sína að greiða atkvæði gegn umræðu um málið með því að það hefði þegar verið fært í far­veg. „Við skulum ekki gleyma því að það eru fjórir mán­uðir frá því úrskurður kjara­ráðs féll. Það er algjör fyr­ir­sláttur að tala um að hér séu að koma fram ein­hverjar nýjar upp­lýs­ingar núna. Við höfum vitað um úrskurð­inn og við sjáum engar for­sendur til þess að menn taki þetta mál upp núna með skynd­ingu til að reyna að berja sér á brjóst.“

Benedikt Jóhann­es­sonTelur þing­menn hafa dreg­ist aftur úr og því hafi kjara­ráð hækkað þing­far­ar­kaup.

Benedikt vísar þar í að for­sætis­nefnd Alþingis hefur lagt til að mán­að­ar­legar skatt­frjálsar end­ur­greiðslur til þing­manna, sem leggj­ast ofan á ríf­lega 1,1 millj­óna króna mán­að­ar­laun, verði lækk­aðar um rúmar 100 þús­und krónur.

Jón Þór Ólafsson sagði í ræðu­stóli í morgun að það væri ekki nóg og að Alþingi gæti skapað frið á vinnu­mark­aði með ákvörðun sinni.

„Við skiptum nátt­úr­lega um skoðun á grund­velli upp­lýs­inga. Nýjar upp­lýs­ingar komu fram. Þegar for­sætis­nefnd­ar­leiðin virk­aði ekki, eins og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins hafa sagt, þá reynum við aðra leið. Þetta er önnur leið og þetta er leið sem þýðir í raun­inni að kjara­ráð fari að lögum. Ástæðan fyrir því hvers vegna málið kemur fram á þessum tíma­punkti er að nú er alveg ljóst og hefur verið sagt að kjara­samn­ingar muni lík­lega ekki halda. Þetta væri leið til sátta fyrir Alþingi. Alþingi myndi stíga skref í átt til sátta á vinnu­mark­aði. Það er það sem við getum gert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár