Útlendingastofnun tilkynnir hælisleitanda að hann þurfi sjálfur að greiða lögfræðikostnað

Verk­efn­is­stjóri hjá Útlend­inga­stofnun segir að „vel megi vera að eitt­hvað hafi týnst“ þegar starfs­menn stofn­un­ar­innar fóru inn til manns og hand­léku eigur hans, meðal ann­ars fjöl­skyldu­myndir. Útlend­inga­stofnun afhenti sama manni bréf á íslensku um að hann þyrfti sjálfur að standa straum af lög­fræði­kostn­aði.

Útlendingastofnun tilkynnir hælisleitanda að hann þurfi sjálfur að greiða lögfræðikostnað

Útlend­inga­stofnun hefur til­kynnt írönskum hæl­is­leit­anda að hann þurfi sjálfur að bera kostnað af lög­manns­þjón­ustu vegna hæl­is­um­sóknar sinnar á Íslandi. Rauði kross­inn útvegar hæl­is­leit­endum lög­fræði­að­stoð sam­kvæmt samn­ingi sem inn­an­rík­is­ráðu­neytið gerði við sam­tökin í fyrra. Hæl­is­leit­and­inn treystir hins vegar ekki lengur Rauða kross­inum og hefur óskað eftir því að Katrín Odds­dóttir, lög­maður á lög­manns­stof­unni Rétti, taki málið sitt að sér. 

Um er að ræða sama mann og hót­aði að kveikja í sér fyrir utan höf­uð­stöðvar Rauða kross­ins í lok ágúst. Eins og Stundin greindi frá á fimmtu­dag fóru starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar inn í íbúð manns­ins og hand­léku eigur hans, meðal ann­ars fjöl­skyldu­myndir, meðan hann var vistaður á geðsviði Land­spít­al­ans. Hæl­is­leit­and­inn var mjög óánægður með þetta og gerði starfs­maður Rauða kross­ins athuga­semd við vinnu­brögðin.

„Kostnað vegna þjón­ustu Katrínar mun Útlend­inga­stofnun ekki greiða heldur verður þú að sjá um þann kostnað
sjálfur. Gerir þú þér grein fyrir þessu?“

Í síð­ustu viku, eftir að mað­ur­inn hafði farið fram á að skipta um lög­mann, heim­sóttu starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar hann, afhentu honum bréf sem skrifað er á íslensku og kynntu honum efni þess. Bréfið hljóðar svo:

„Sú gjald­frjálsa lög­fræði­að­stoð sem Útlend­inga­stofnun útvegar hæl­is­leit­endum er sú þjón­usta sem Rauði kross Íslands veitir. Þar sem þú hefur óskað eftir því að Katrín Odds­dóttir lög­maður taki við máli þínu er þér þér hér með kynnt að kostnað vegna þjón­ustu Katrínar mun Útlend­inga­stofnun ekki greiða heldur verður þú að sjá um þann kostnað sjálfur. Gerir þú þér grein fyrir þessu?“

Stað­festi mað­ur­inn með und­ir­skrift að sér hefði verið efni bréfs­ins „nægi­lega kynnt“. Jafn­framt var hann beð­inn um að veita Útlend­inga­stofnun heim­ild til að fá upp­lýs­ingar úr sjúkra­skrá um and­lega heilsu sína. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár