Yfirlýsing Benedikts um Tortólafélagið vekur upp margar spurningar

Skatta­sér­fræð­ingur segir að yfir­lýs­ing Bene­dikts Sveins­sonar um eign­ar­hald Tortóla­fé­lags hans á fast­eign á Flórída skilji eftir sig margar spurn­ingar. Benedikt segir að fyr­ir­tækið á Tortóla hafi verið tekju­laust og hafi aldrei átt neitt fé. Samt hefur þetta félag keypt hús á 45 millj­ónir króna og rekið það um sextán ára skeið.

Yfirlýsing Benedikts um Tortólafélagið vekur upp margar spurningar
Sagði félagið ekki hafa átt fé og að það hefði verið tekju­laust Benedikt Sveins­son sagði að félag hans á Tortólu hafi verið tekju­laust og hafi ekki átt neitt fé. Skatta­sér­fræð­ingur segir spurn­ingar vakna um skatta­hag­ræðið af félag­inu sem heldur utan um hús Bene­dikts á Flórída. Mynd: Morgunblaðið/Golli

Íslenskur sér­fræð­ingur í skatta­málum segir að yfir­lýs­ing Bene­dikts Sveins­sonar, föður Bjarna Bene­dikts­sonar, um notkun sína á fyr­ir­tæki á Bresku Jóm­frú­areyjum til að halda utan um hús í Sarasota á Flórída stand­ist ekki skoðun að ýmsu leyti. „Þetta gengur ekki upp hjá honum rök­fræði­lega.“ Hann segir að margs konar skatta­legt hag­ræði geti verið af því að skrá fast­eignir í eigu félaga í skatta­skjólum. Benedikt og kona hans keyptu húsið fyrir um 45 millj­ónir króna árið 2000. Skatta­sér­fræð­ing­ur­inn vill ekki koma fram undir nafni.

Stundin fjall­aði um félag Benedkts, Greenlight Luxembourg S.A., í gær en náði ekki í Benedikt fyrir útgáfu blaðs­ins, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir, hann sendi hins vegar frá sér yfir­ýs­ingu síð­degis í gær þar sem hann sagði frá því að félagið hefði verið stofnað til að halda utan um umrætt hús á Flórída.  „Árið 2000 keypt­um við hjón­in hús í Flori­da­fylki í Banda­ríkj­un­um. Húsið var skráð á eign­ar­halds­fé­lag á Bresku Jóm­frú­areyj­um að ráð­legg­ing­um banda­rískra lög­manna. Eng­ar aðrar eign­ir hafa verið í fé­lag­inu.“ 

Húsið í Sarasota er ennþá í eigu Tortóla­fé­lags­ins en það er í slita­með­ferð sam­kvæmt Benedikt og er unnið að því að færa eign­ar­haldið á hús­inu til Íslands. Auk húss­ins í Sarasota átti Benedikt, eða íslenskt félag í hans eigu sem heitir Haf­silfur, eign í Seagrove á Flórdía sem hann keypti fyrir fjórar millj­ónir doll­ara árið 2007. 

Tekið skal fram að það er ekki ólög­legt að eiga félag á aflands­svæði. Öllu máli skiptir hvernig eig­endur þess­ara félaga greiða skatta af eignum þess­ara félaga.

„Ég hef ekki átt neitt fé á af­l­ands­eyj­um.“

Sagðist aldrei hafa átt fé á aflandseyjum

Skatta­sér­fræð­ing­ur­inn segir að þau orð Bene­dikts að hann hafi aldrei átt neitt fé á aflandseyjum gangi ekki upp þar sem hann hafi keypt hús á aflandseyju fyrir um 45 millj­ónir króna. Félagið hafi þá átt 45 millj­ónir króna á ein­hverjum tíma­punkti. Í yfir­lýs­ing­unni sagði Benedikt: „Ég hef ekki átt neitt fé á af­l­ands­eyj­um.“

Skatta­sér­fræð­ing­ur­inn segir að þetta eigi líka við þó félagið hafi fengið lán til að greiða fyrir húsið þar sem það hafi þá þurft að greiða af því afborg­anir og vexti og til að slíkt sé hætt þarf fyr­ir­tæki að eiga fé.

Þá spyr hann einnig spurn­inga um merk­ingu orðs­ins „fé“ þar sem þetta orð þýði ekki bara pen­ingar í seðlum. „Hvað er fé? Fé er eign hvort sem hún er í seðlum, í banka­inni­stæðu, fast­eigna eða hverju sem er. Það er hugs­ana­villa að segja að fé eða verð­mæti sé ekki fé eða verð­mæti nema í til­teknu formi.“

„Ef Benedikt hefur borgað þessi gjöld per­sónu­lega þá ætti félagið að bók­færa það sem tekjur“

Var á Flórída
Var á Flórída Bjarni Bene­dikts­son var á Flórída þegar Wintris-málið kom upp fyrir rúmum mán­uði síðan og lenti beint inn hring­iðu atburð­ar­rás­ar­innar þegar hann kom til lands­ins og Sigurðu Ingi Jóhanns­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra af SIgmundi Davíð Gunn­laugs­syni. Hann hefur ekk­ert tjáð sig um mál föður síns hingað til.

Félagið getur ekki hafa verið tekjulaust

Í yfir­lýs­ing­unni sagði Benedikt líka að félagið á Bresku Jóm­frú­areyjum hafi verið tekju­laust. „Fé­lagið hef­ur ávallt verið talið fram til skatts á Íslandi og en aldrei haft neinn rekst­ur með hönd­um og eng­ar tekj­ur.“ 

Skatta­sér­fræð­ing­ur­inn segir að félagið hljóti að hafa haft tekjur þar sem það kosti fjár­muni að eiga og reka fast­eignir, meðal ann­ars fast­eigna­gjöld, hiti og raf­magn og slíkt. Þar af leið­andi geti félagið ekki hafa verið tekju­laust allan þennan tíma þar sem eign­ar­hald fast­eigna feli í sér kostnað. Hann bendir einnig á hið áður­nefnda að ef kaup húss­ins hafi verið fjár­magnuð með lánum þá hafi félagið þurft að greiða lánið til baka ásamt vöxtum og hafi því þurft tekjur til að gera það. „Ef Benedikt hefur borgað þessi gjöld per­sónu­lega þá ætti félagið að bók­færa það sem tekjur. Og þar með væri félagið komið með tekjur. Ef að grannt er farið ofan í þetta þá hljóta að vera þarna ein­hverjar fjár­magns­hreyf­ingar á milli þess­ara aðila sem klár­lega eru tekjur hjá ein­hverjum aðila.“

Ein af spurn­ing­unum sem eftir situr er því hvernig þessar óhjá­kvæmi­legu tekjur félags­ins hafi verið gefnar upp til skatts á Íslandi.  Þá liggur ekki fyrir hvernig félagið fékk 45 millj­ónir króna til að kaupa húsið á Flórída til að byrja með.

 „Þannig að það eru ýmsir skatta­legir vinklar á þessu sem hefur ekki verið svarað“

Hvernig var verðmæti hússins bókfært á skattframtali?

Skatta­sér­fræð­ing­ur­inn segir að það sem skipti máli sé hvernig húsið á Flórída hafi verið talið fram sem eign á skatt­fram­tölum því þetta geti hafa haft áhrif á skatt­stofn Bene­dikts. „Hvað þýddi það að húsið var skráð sem eign á Bresku Jóm­frú­areyjum? Það var auð­vitað búið að sveipa eign­ar­haldið leynd. Ef menn eiga fast­eign í Banda­ríkj­unum þá er það bara skráð þar í fast­eigna­skrá eins og hérna. Ef þetta er hins vegar í eigu félags á Bresku Jóm­frú­areyjum þá er bara félagið skráð fyrir hús­inu og tengslin við raun­veru­lega eig­endur óljós. Og svo er það spurn­ingin: Á hvaða verði er eign­ar­hald á félag­inu talið fram til skatts á Íslandi? Er það á ein­hverju mála­mynda nafn­verði hluta­bréf­anna í félag­inu eða er það á raun­verði húss­ins? Maður sem á hús á Íslandi er skatt­lagður þannig að fast­eignin er færð á skatt­fram­tal sam­kvæmt fast­eigna­mati og reikn­ast þannig inn í eigna­skatts­stofn­inn þegar hann var og auð­legð­ar­skatts­stofn­inn þegar hann var. Þannig að það er alveg mögu­legt skatta­hag­ræði í þessu. Ef þessir hlutir liggja ekki fyrir, það er að segja hvert raun­veru­legt verð­mæti félags­ins var og hvort það hafi verið til­greint út frá raun­veru­legu verð­mæti húss­ins, þá er hægt að spyrja spurn­inga um málið.“

Benedikt kemur ekki inn á þetta atriði í yfir­lýs­ingu sinni og hann útskýrir ekki af hverju banda­rískir lög­menn hans bentu honum á að það gæti verið heppi­legt að eiga fast­eign í Banda­ríkj­unum í gegnum Tortóla­fé­lag. For­send­urnar fyrir þeirri ákvörðun Bene­dikts að stofna og eiga Tortóla­fé­lag utan um húsið liggja því ekki fyrir. „Þannig að það eru ýmsir skatta­legir vinklar á þessu sem hefur ekki verið svarað,“ segir skatta­sér­fræð­ing­ur­inn.

Lagabreytingin árið 2010

Eins og komið hefur fram var lögum á Íslandi breytt þannig árið 2010 að tekjur og eignir aflands­fé­laga ein­stak­linga voru lagðar að jöfnu við per­sónu­legar eignir þess­ara ein­stak­linga. Ein­stak­lingur sem var með skatta­lega heim­il­is­festi á Íslandi en átti félag á Tortólu átti þá að greiða skatta af tekjum og eignum þessa félags líkt og um tekjur og eignir á Íslandi væri að ræða. Í þessu fólst breyt­ingin árið 2010.

Fram að þess­ari laga­breyt­ingu gat skatta­hag­ræðið af félögum eins og því sem Benedikt á gat því verið umtals­vert  en hann segir að það hafi ekki verið í neinum rekstri og ekki fengið neinar tekjur. En þeir fjár­munir sem félagið not­aði til að reka húsið á Flórída kunna að hafa verið und­an­þegnir skatti á Íslandi þar sem slík fyr­ir­tæki þurftu ekki að greiða fjár­magnstekju­skatt á Íslandi fram til árs­ins 2010. Þetta breytir því þó ekki að það stenst ekki skoðun hjá Benedikt að segja að hann hafi aldrei átt fé á aflandseyjum og að fyr­ir­tæki hans á Tortóla hafi verið tekju­laust. 

Stundin gerði til­raun til að ná sam­bandi við Benedikt Sveins­son og spyrja hann frek­ari spurn­inga um málið en án árang­urs. Benedikt hefur í gegnum árin ekki verið reiðu­búin til að ræða um fast­eignir sínar í Flórída og í sam­tali við DV árið 2009 sagði hann með ann­ars aðspurður um húsið í Sarasota: „Þér kemur það ekk­ert við.“ Bjarni Bene­dikts­son hefur ekki tjáð sig um Tortóla­fé­lag föður síns í gær eða í dag. 

Tekið skal fram að ekk­ert sem fram hefur komið um eign­ar­halds­fé­lag Bene­dikts bendir til að nein lög­brot hafi verið framin í rekstri þess. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár