YouTube gagnrýnir samfélagsmiðlabann Ástrala

Áströlsk stjórn­völd hafa riðið á vaðið og ákveðið að banna ung­mennum að nota ýmsa sam­fé­lags­miðla. Youtube var í fyrstu und­an­þegið bann­inu en því var breytt í sumar. Fyr­ir­tækið segir bannið van­hugsað.

YouTube gagnrýnir samfélagsmiðlabann Ástrala
Bannað Rachel Lord, stjórn­andi hjá YouTube, segir að bannið muni í raun gera áströlsk börn minna örugg á vef fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Shutterstock

YouTube gagn­rýndi í morgun yfir­vof­andi bann Ástralíu á notkun sam­fé­lags­miðla fyrir ein­stak­linga yngri en 16 ára og sagði það van­hugsað. Stjórn­völd köll­uðu stefn­una vernd­ar­skjöld til að verja börn fyrir „rán­dýrs­legum“ reikni­ritum.

Frá og með 10. des­em­ber mun Ástralía krefj­ast þess að fjöldi stórra sam­fé­lags­miðla og vef­síðna, þar á meðal Facebook, Instagram, TikTok og YouTube, fjar­lægi aðganga ólög­ráða ein­stak­linga eða eigi yfir höfði sér háar sektir.

Mikill áhugi er á því hvort þessar víð­tæku tak­mark­anir, sem eru þær fyrstu sinnar teg­undar í heim­inum, geti virkað, á meðan eft­ir­lits­að­ilar um allan heim glíma við hugs­an­leg skað­leg áhrif á ungt fólk.

Banda­ríski streym­is­ris­inn YouTube átti upp­haf­lega að vera und­an­skil­inn bann­inu svo börn gætu horft á fræðslu­efni. En áströlsk stjórn­völd skiptu um skoðun í júlí og sögðu að verja þyrfti unga not­endur fyrir „rán­dýrs­legum reikni­ritum“.

„Þessi lög munu ekki standa við lof­orð sitt um að gera börn örugg­ari …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár