Ný samgönguáætlun: Fljóta-, Fjarða- og Súðavíkurgöng á oddinn

Ný sam­göngu­á­ætlun markar breyt­ingu frá fyrri áætl­unum um for­gangs­röðun í jarð­ganga­gerð. Hætt hefur verið við Fjarð­ar­heiða­göng og á nú að tengja Seyð­is­fjörð með göngum niður á firði.

Ný samgönguáætlun: Fljóta-, Fjarða- og Súðavíkurgöng á oddinn

Bygging Fljóta­ganga, á milli Siglu­fjarðar og Fljót­anna, er efst í for­gangs­röðun jarð­ganga í nýrri sam­göngu­á­ætlun. Næst í for­gangi eru Fjarða­göng og Súða­vík­ur­göng. Þau fyrri sam­an­standa af tveimur göngum milli Seyð­is­fjarðar og Mjóa­fjarðar og Mjóa­fjarðar til Norð­fjarðar. Þau seinni tengja Súðavík og Ísafjörð en tals­verð hætta er á grjót­hruni og snjó­flóðum á núver­andi Súða­vík­ur­vegi. 

Í fjórða sæti for­gangs­röð­unar eru göng milli Mikla­dals og Hálfdáns sem tengir Pat­reks­fjörð, Tálkna­fjörð og Bíldudal.

Sam­göngu­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2026-2040 var kynnt á blaða­manna­fundi fyrr í dag. Sagði Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra að hún mark­aði tíma­mót þar sem rjúfa ætti kyrr­stöðu. Þá var til­kynnt um stofnun inn­viða­fé­lags um stærri sam­göngu­fram­kvæmdir. 

Ráðgert er að fyrstu verk­efni inn­viða­fé­lags­ins verði Ölf­usár­brú, Sunda­braut, Fljóta­göng og næstu jarð­göng sam­kvæmt sam­göngu­á­ætlun. 

Fjarðaheiðargöng færð aftar

Und­ir­bún­ingur vegna næstu jarð­ganga á að hefj­ast á næsta ári en fram­kvæmdir í upp­hafi árs 2027. Ellefu aðrir …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár