Flokkur

Aflandsfélög

Fréttir

Óskatt­lagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álver­inu nema 67 millj­örðum króna

Vaxta­greiðslur álvers­ins á Reyð­ar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúx­em­borg eru rúm­lega tveimur millj­örðum króna hærri en bók­fært tap álvers­ins á Íslandi. Síðasta rík­is­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snún­inga. Indriði Þor­láks­son segir að laga­breyt­ing­arnar séu ekki nægi­lega rót­tækar til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot með lána­við­skiptum á milli tengdra félaga.
RannsóknPanamaskjölin

Leyni­flétta Júlíusar Vífils rakin upp

Borg­ar­full­trú­inn fyrr­ver­andi, Júlíus Vífill Ingv­ars­son, sem er til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna „rök­studds gruns“ um stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti, sagði í sam­tali við Stundina að pen­ingar, sem hann geymdi á aflands­svæði ættu sig sjálfir, og að upp­taka af sam­tali hans og Sigurðar G. Guð­jóns­sonar lög­manns, um hvernig forð­ast mætti að greiða skatt af þeim, væri fölsuð. Júlíus Vífill hefur komið með engar eða vill­andi skýr­ingar, auk þess að neita að upp­lýsa um málið.

12 mín. lestur

Fréttir

Bjarni svarar ekki fyrir aflands­skýrslu hjá efna­hags- og við­skipta­nefnd

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra mun ekki koma á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis til þess að ræða um skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum. Nefnd­ar­menn höfðu óskað eftir því að Bjarni kæmi á fund­inn til þess að sitja fyrir svörum um skýrsl­una, sem hann lét gera, og um það hvers vegna hún var ekki birt fyrr en fyrr í þessum mán­uði...
FréttirBahama-skjölin

Fimm Íslend­ingar í Baham­a­skjöl­unum

Fimm Íslend­ingar nýttu sér aflands­fé­lög á Bahama-eyjum. Þeir eiga allir heim­ils­festi utan Íslands. Þetta má lesa úr gögnun sem þýska blaðið Süddeutche Zeitung hefur undir höndum og alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, hafa unnið úr í sam­starfi við 110 fjöl­miðla víða um heim. Á meðal þeirra sem vinna úr gögn­unum er Reykja­vik Media í sam­starfi við Morg­un­út­varpið á Rás 2. Frá...
Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
RannsóknPanamaskjölin

Panama­skjölin: Eigendur elstu heild­versl­unar Íslands stund­uðu við­skipti gegnum Tortólu

Erf­ingjar heild­söl­unnar Ó. Johnson og Kaaber, seldu hluta­bréf til Tortóla­fé­lags fyrir nærri 330 millj­ónir króna. Fjögur systk­ini og móðir þeirra stýrðu félag­inu sem hét Eliano Mana­gement Corp sem hóf lán­tökur upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna í bönkum í Lúx­em­borg. Systk­inin, meðal ann­ars fyrr­ver­andi frétta­mað­ur­inn Helga Guðrún Johnson, neita að tala um Tortóla­fé­lagið. Skatta­sér­fræð­ingur segir veru­legt skatta­hag­ræði kunna að hafa verið af félag­inu.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár