Fimm Íslendingar í Bahamaskjölunum

Fimm Íslend­ingar nýttu sér aflands­fé­lög á Bahama-eyjum. Þeir eiga allir heim­ils­festi utan Íslands. Þetta má lesa úr gögnun sem þýska blaðið Süddeutche Zeitung hefur undir höndum og alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, hafa unnið úr í sam­starfi við 110 fjöl­miðla víða um heim. Á meðal þeirra sem vinna úr gögn­unum er Reykja­vik Media í sam­starfi við Morg­un­út­varpið á Rás 2. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Þar segir að ekki sé um jafn ítar­leg og Panama-gögnin svoköll­uðu, sem voru opin­beruð í apríl. Þar var um að ræða leka frá lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca, sem sér­hæfði sig í upp­setn­ingu aflands­fé­laga og þjón­ustu við þau. Í þeim kom meðal ann­ars fram að hund­ruð Íslend­inga ættu mörg hund­ruð félög í þekktum skatta­skjólum. Á meðal þeirra voru íslenskir ráða­menn og þekktir við­skipta­for­kólfar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þurfti að segja af sér emb­ætti eftir að upp­lýst var um til­urð félag hans og eig­in­konu hans, Wintris Inc., hefði heim­il­is­festi á Tortóla-eyju, geymdi þar á annað millj­arð króna í eignum og væri kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna.

Í frétt RÚV segir að íslenskir bankar hafi ekki verið jafn umsvifa­miklir á Bahama og þeir voru á Tortóla, höf­uð­borg Bresku jóm­frú­areyj­anna. Gögnin sýni hins vegar að aflands­þjón­usta sem Íslend­ingar hafa not­ast við á síð­ustu árum og ára­tugum er ekki bundin við ein­staka fyr­ir­tæki, banka eða lög­manns­stofur. Því stað­festi Bahama-lek­inn þann grun að aflands­við­skipti Íslend­inga séu enn aðeins upp­lýst að hluta til.

Stærsta nafnið sem er að finna í Bahama-skjöl­unum er nafn fyrr­ver­andi sam­keppn­is­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins, Neelie Kroes. Hún var valda­mikil og við­skipta­tíma­ritið Forbes valdi hana fimm sinnum á lista yfir 100 áhrifa­mestu konur heims. Þá er nafn Amber Rudd, inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands, einnig að finna í þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár