Bjarni svarar ekki fyrir aflandsskýrslu hjá efnahags- og viðskiptanefnd

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra mun ekki koma á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis til þess að ræða um skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum. Nefnd­ar­menn höfðu óskað eftir því að Bjarni kæmi á fund­inn til þess að sitja fyrir svörum um skýrsl­una, sem hann lét gera, og um það hvers vegna hún var ekki birt fyrr en fyrr í þessum mán­uði þegar hún var til­búin í sept­em­ber.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Pírötum. Þar kemur fram að Bjarni telji sig ekki hafa meira um málið að segja á þessu stigi, enda hafi hann tjáð sig um málið opin­ber­lega. Bjarni hafi lýst sig reiðu­bú­inn til þess að taka þátt í umræðum um málið á Alþingi eftir að það kemur saman á ný í næstu viku.

Í frétta­til­kynn­ing­unni frá Pírötum er haft eftir Smára McCarthy, full­trúa Pírata í nefnd­inni, að honum finn­ist algjör­lega ótækt að for­sæt­is­ráð­herra vilji ekki gera grein fyrir verkum sínum fyrir nefnd­inni. „Með slíkri neitun vegur hann að eft­ir­lits­hlut­verki Alþingis. Það að hafa veitt fjöl­miðlum svör er allt annað en að hafa veitt þing­inu við­un­andi svör.“

Upp­haf­lega hafi átt að halda fund­inn síð­ast­lið­inn fimmtu­dag en því var frestað meðal ann­ars vegna þess að óskað var eftir því að fund­ur­inn yrði sendur út í beinni útsend­ingu á vef Alþing­is. Það síð­asta sem nefnd­ar­menn höfðu heyrt í gær var að fund­ur­inn yrði hald­inn öðru hvoru megin við helg­ina, sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG við Kjarnann í gær. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagð­ist þá gera ráð fyrir að fund­ur­inn verði hald­inn í vik­unni, en ekk­ert fund­ar­boð hafi borist.

Búið var að stað­festa að Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gæti mætt á fund­inn og svarað fyrir skýrsl­una þrátt fyrir að hann sé ekki lengur fjár­mála­ráð­herra. Logi sagði við Kjarnann í gær að hann hafi skilið það sem svo að Bjarni myndi mæta fyrir nefnd­ina. Fund­ur­inn yrði tví­þættur þegar hann verður hald­inn, ann­ars vegar myndi Bjarni mæta og svara spurn­ingum um inni­hald skýrsl­unnar og aðdrag­anda birt­ingar henn­ar, og hins vegar muni skýrslu­höf­undar mæta fyrir nefnd­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár