Festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð

Í nýrri sam­göngu­á­ætlun segir að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði festur í sessi og til stendur að byggja nýja flug­stöð. For­sæt­is­ráð­herra segir sjálf­sagt að styrkja flug­völl­inn meðan annar kostur sé ekki fyrir hendi.

Festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð

„Við eyðum óvissu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar en hann verður festur í sessi og rekstr­ar­ör­yggi hans tryggt,“ sagði Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra á blaða­manna­fundi í dag þar sem hann kynnti nýja sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2026-2040. 

Sagði hann að strax á næsta ári yrði haf­ist handa að und­ir­búa bygg­ingu nýrrar flug­stöðvar á Reykja­vík­ur­flug­velli. „Sem mun leysa af hólmi þá sem er komin til ára sinna.“ Þá yrði tek­inn í notkun nýr fjarð­stýrður flug­turn á vell­inum á sama ári auk þess sem ráð­ist verði í end­ur­bætur á aðflugs­ljósum. 

Í sam­göngu­á­ætl­un­inni  segir að rekstr­ar­ör­yggi flug­vall­ar­ins verði tryggt a meðan annar jafn góður, eða betri, kostur er ekki fyrir hendi. 

Stað­setn­ing Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýri í Vesturbæ Reykja­víkur er mjög umdeilt póli­tískt mál. Virðist rík­is­stjórnin vera með þessum áætl­unum vera að festa stað­setn­ingu hans í sessi í trássi við vilja meiri­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­vík­ur­borgar. Á fund­inum sátu inn­við­a­ráð­herra og Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fyrir svörum um einmitt þetta. 

Eyjólfur sagði að ekki hefði tek­ist að finna annan val­kost annan en Reykja­vík­ur­flug­völl. „Á meðan Reykja­vík­ur­flug­völlur er þarna þá er flug­völlur þarna. Það verður að tryggja rekstr­ar­ör­yggi og flug­ör­yggi,“ sagði hann og benti á að núver­andi flug­stöð væri frá árinu 1946.

„Sjálfsögð ákvörðun,“ segir forsætisráðherra

Kristrún sagði að málið hefði ekki verið rætt innan rík­is­stjórnar með þeim hætti hvort það ætti að festa flug­völl­inn í sessi eða ekki. Stað­reyndin væri sú að það væri ekki annað stæði fyrir flug­völl komið. „Það mun taka ein­hverja ára­tugi – 10, 15, 20 ár að klára það,“ sagði hún og benti á að í milli­tíð­inni þyrfti að tryggja inn­an­lands­flug í land­inu,

„Mér finnst þetta svo sjálf­sögð ákvörðun og setn­ing að það eigi að styrkja Reykja­vík­ur­flug­völl á meðan það er ekki annar kostur fyrir hendi. Mér finnst þetta aug­ljós staða. Við getum ekki látið þennan mik­il­væga flug­völl grotna niður á meðan það eru ekki aðrir kostir í stöð­unni.“

Ef aðrir kostir byð­ust yrði það tekið fyrir í rík­is­stjórn. „En við erum ekki á þeim stað ennþá,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    If one doesn't create an option there will never be an alternative option! Such is the level of today's politics!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár