Samfylkingin geri „ófrávíkjanlega kröfu“ um flugvöllinn í Vatnsmýri

Fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að það sé „ófrá­víkj­an­leg krafa“ flokks­ins að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði á sínum stað þar til nýr flug­vall­ar­kostur fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið verði til­bú­inn. Með auknu fylgi Sam­fylk­ingar á lands­byggð­inni og raunar um allt land hafa við­horfin meðal stuðn­ings­manna flokks­ins til fram­tíð­ar­stað­setn­ingar Reykja­vík­ur­flug­vallar breyst tölu­vert.

Samfylkingin geri „ófrávíkjanlega kröfu“ um flugvöllinn í Vatnsmýri
Inn­an­lands­flug Reykja­vík­ur­flug­völlur hefur lengi verið umdeildur. Áfram er unnið að því að rann­saka hvort Hvassa­hrauns­flug­völlur geti leyst hann af hólmi með tíð og tíma. Þangað til nýr val­kostur verður til­bú­inn vill Sam­fylk­ingin að völl­ur­inn verði áfram í Vatns­mýr­inni. Mynd: Golli

Logi Ein­ars­son, þing­flokks­for­maður og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, birti sam­hljóða greinar í tveimur stað­ar­miðlum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í vik­unni og sagði þar að það væri „ófrá­víkj­an­leg krafa“ Sam­fylk­ing­ar­innar að flug­völlur yrði í Vatns­mýri, að minnsta kosti þar til búið sé að finna betri kost, sem allir lands­menn séu sáttir við.

„Í litlu en risa­stóru landi með svo óhag­stæðri íbúa­dreif­ingu er óhjá­kvæmi­legt að íbúar muni áfram þurfa að sækja umtals­vert til höf­uð­borg­ar­innar. Því þarf að bæta þjóð­vega­kerfið heil­mikið. Þá er það ófrá­víkj­an­leg krafa af hálfu Sam­fylk­ing­ar­innar að flug­völl­ur­inn verði áfram í Reykja­vík, a.m.k. þangað til annar jafn­góður eða betri kostur er til­bú­inn til notk­unar: Kostur sem allir lands­menn eru sáttir við. Hann er hins vegar ekki í sjón­máli,“ skrif­aði Logi í greinum sínum, sem fjalla um áherslu­mál flokks­ins í byggða­málum og birt­ust á vef Viku­blaðs­ins á Akureyri og Aust­ur­fréttar á mið­viku­dag.

Nýr tónn eða stefna?

Heim­ildin fékk ábend­ingu um þessi skrif Loga frá kjós­anda í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sem taldi að í orðum Loga væri mögu­lega um ein­hverja breyt­ingu á stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar að ræða, eða að minnsta kosti tóni, enda hefði borg­ar­stjórn­ar­flokkur flokks­ins, ráð­andi afl í Reykja­vík­ur­borg und­an­far­inn rúman ára­tug, sett það á dag­skrá að koma flug­vell­inum úr Vatns­mýri og byggja þar upp þétta mið­borg­ar­byggð. 

FlugLogi Ein­ars­son er odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í NA-kjör­dæmi

Þannig mætti segja að Sam­fylk­ingin hefði til þessa fremur sætt sig við tíma­bundna áfram­hald­andi veru flug­vall­ar­ins með sem­ingi, fremur en að tala með þeim hætti að það væri ófrá­víkj­an­leg krafa flokks­ins að hann færi ekki fet fyrr en aðrar lausnir væru klárar.

Logi sem stjórn­mála­maður hefur hins vegar talað lengi fyrir því að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði að vera í Vatns­mýri þar til annar val­kostur sé til­bú­inn. Á sama tíma hefur hann gagn­rýnt þá sem vilja „ekki neitt nema Vatns­mýr­ina eða dauða“, eins og hann orð­aði það í við­tali í hlað­varps­þætti um skipu­lags­mál, Aðför­inni, árið 2017.

„Vegna þess að ef að flug­völl­ur­inn fer til Kefla­víkur – vegna þess að hann fer fyrr eða síðar – án þess að það sé búið að gera ein­hverjar úrbætur á sam­göngum þar á milli þá erum við í hrylli­legri stöðu. Þá gætu sam­göngur með inn­an­lands­flugi lagst af,“ sagði Logi á þeim tíma, þegar hann var for­maður flokks­ins. 

Í kosn­inga­stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar sem finna má á vef flokks­ins kemur svo fram að afstaða flokks­ins til flug­vallar í Vatns­mýri sé „í sam­ræmi við sam­komu­lag rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar frá 2019 þar sem fram kemur að flug­völl­ur­inn verði áfram í Vatns­mýr­inni þar til annar jafn­góður eða betri kostur er til­bú­inn“.

Skrif Loga eru þannig bæði í sam­ræmi við það sem hann hefur áður sagt og núver­andi stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Breytt afstaða Samfylkingarfólks til Reykjavíkurflugvallar

Sam­fylk­ingin hefur um nokk­urt skeið mælst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum og hefur for­ystu­fólk flokks­ins lagt áherslu á að tala til breið­ari hóps en áður. Það virð­ist hafa skilað flokknum auknu fylgi, sér í lagi á lands­byggð­inni, þar sem Sam­fylk­ingin hefur um langt ára­bil átt erfitt upp­dráttar. 

Nýju fylgi fylgja breyttar áherslur í kjós­enda­hópnum, að minnsta kosti í mál­efnum flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri. Könnun frá Maskínu í októ­ber sýndi að fleiri stuðn­ings­menn Sam­fylk­ingar voru orðnir hlynntir því að fram­tíð­ar­stað­setn­ing Reykja­vík­ur­flug­vallar yrði í Vatns­mýri en sögð­ust því and­vígir.

Tæp 40 pró­sent væntra kjós­enda Sam­fylk­ingar sögð­ust fylgj­andi því að flug­völl­ur­inn yrði í Vatns­mýri til fram­tíðar en rétt um 33 pró­sent voru því and­víg. Um 27 pró­sent væntra kjós­enda flokks­ins sögð­ust því and­víg.

Þetta eru tölu­verð umskipti frá því sem áður hefur verið. Þegar Maskína spurði með sam­bæri­legum hætti í mars og apríl árið 2018 voru 30 pró­sent stuðn­ings­manna Sam­fylk­ingar hlynnt því að flug­völlur yrði í Vatns­mýri til fram­tíðar en 57,8 pró­sent sögð­ust því and­víg.

Á sama tíma og þessar breyt­ingar hafa orðið á afstöðu Sam­fylk­ing­ar­fólks hefur stuðn­ingur við það að fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar sé í Vatns­mýri þó haldið áfram að drag­ast saman.

Í nýrri könnun Maskínu eru 48 pró­sent lands­manna á þeirri skoðun að rétt sé að hafa flug­völl­inn í Vatns­mýri til fram­tíðar. Árið 2018 voru 54 pró­sent lands­manna þeirrar skoð­unar en árið 2013 sögð­ust 72 pró­sent lands­manna fylgj­andi því að völl­ur­inn yrði áfram í Vatns­mýri.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Mörður Árnason skrifaði
    Villandi fyrirsögn -- og augljóst misræmi milli meintra yfirlýsinga frambjóðandans og stefnutextans sem gengið er útfrá -- án þess að hann sé spurður.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið undanfarið ár