Jólavörur hækka í verði á milli ára

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ mun fylgj­ast náið með verði á jóla­vörum og mat­vöru á næstu viku. Jóla­vörur hafa nú þegar sveifl­ast frá því þær komu í hillur versl­ana. Kílóverð á Nóa-konfekti hækkar tölu­vert minna en annað súkkulaði frá sæl­gæt­is­gerð­inni.

Jólavörur hækka í verði á milli ára
Dýra­af­urðir dýr­ari Samkvæmt könnun ASÍ hefur verð á dýra­af­urðum vegið þungt í hækk­unum árs­ins. Verð á eggjum hefur hækkað um 12 pró­sent, á lamba- og nauta­kjöti um 10 pró­sent, en verð á tófú lækkað um 1 pró­sent og verð á kjúklinga­baunum um 2 pró­sent. Mynd: Golli

Jólin koma á hærra verði, segir í færslu frá Verð­lags­eft­ir­liti ASÍ á vef sam­bands­ins. Árs­tíða­bundnar jóla­vörur hafa margar hækkað tölu­vert á milli ára, sam­kvæmt könnun eft­ir­lits­ins.

„Verð á jóla­vörum getur sveifl­ast fram að hátíðum og getur verið gott fyrir neyt­endur að vera á verði gagn­vart verð­lagi í des­em­ber. Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ mun fylgj­ast náið með verði á jóla­vörum og mat­vöru á næstu viku,“ segir í færsl­unni. 

Mest ber á verð­breyt­ingum í kaffi og sæl­gæti. Freyja jóla­kött­ur­inn birt­ist í hillum Bónus í lok nóv­em­ber og kost­aði 229 krónur en kost­aði 169 krónur fyrir ári síðan. Það er 36 pró­senta hækkun milli ára.

Malað jóla­kaffi frá Te & kaffi fór í sölu í nóv­em­ber á 1.429 krónur í Bónus og 1.430 krónur í Krónunni, sem sam­svarar um 15 pró­senta hækkun milli ára. Nú um mán­aða­mótin hefur verðið aftur fallið og er 1.295 krónur í Krónunni, 10 pró­sentum lægra en fyrir fáeinum dögum.

Verð á jóla­drykknum Malt & app­el­sín hefur líka sveifl­ast. Drykk­ur­inn kom í sölu í Krónunni á 285 krónur en kostar nú 278 krónur. Þrátt fyrir lækkun er núver­andi verð ríf­lega 3 pró­sent hærra en á sama tíma í fyrra í bæði Bónus og Krónunni.

Verð­lags­eft­ir­litið nefnir líka að Myllu jóla­tert­urnar hafi kostað 878 krónur í Prís fyrir ári, sem þá var 5-9 pró­sentum lægra en hjá keppi­nautum, en nú kosta þær 949 krónur í búð­inni. Það er um átta pró­senta árs­hækkun. Kökurnar kosta 998 krónur í Bónus og 999 krónur í Krónunni.

Hálfur lítri af MS mat­reiðsl­urjóma hefur hækkað um 8% í bæði Bónus og Krónunni á milli ára, en plönt­urjómar frá Schlagfix, Oatly og Alpro standa í stað í Krónunni, á sama verði og í fyrra.

Val­hnetu­kjarnar sem seldir eru undir nafn­inu Til ham­ingju kosta nú 199 krónur í Krónunni og hafa lækkað um 13% milli ára (frá 229 krónur). Euros­hopper-val­hnetur kosta 217 krónur í 100 gramma poka í Bónus (4% hækkun) og 498 krónur í 300 g poka (8% hækkun).

Ósteikt laufa­brauð frá Kristján kost­aði 1.898 krónur í Prís líkt og í fyrra, en 2.059 krónur í Bónus og 2.060 krónur í Krónunni, sem er rúm­lega 7 pró­senta hækkun milli ára.

Eins kíló­gramms konfekt­kassi frá Nóa Síríus hefur hækkað um 9 pró­sent í Krónunni, sem er minni árs­hækkun en á öðru sæl­gæti. Með­al­hækkun vara frá Nóa Síríus milli ára nam 19 pró­sentum í Bónus, Krónunni og Prís.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár