Borgin vill auka gervigreind og minnka kulnun

Borg­ar­stjóri lagði fram hag­ræð­inga­til­lögur almenn­ings en 265 ábend­ingar bár­ust. Á meðal þeirra mátti finna til­lögur Við­reisnar, sem taldi engar af sínum til­lögum hafa ratað í sam­an­tekt meiri­hlut­ans.

Borgin vill auka gervigreind og minnka kulnun
Borg­ar­stjórn Nýr meiri­hluti setti hag­ræð­inga­tillö0gur almenn­ings á odd­inn þegar til­kynnt var um nýtt sam­starf fyrr á árinu. Mynd: Golli

Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri hefur lagt fram sam­an­tekt á þeim til­lögum almenn­ings um betri nýt­ingu tíma og fjár, sem borg­inni hugn­ast best. Hug­mynd­irnar voru lagðar fram á fundi borg­ar­ráðs í lok nóv­em­ber og fyrir borg­ar­stjórn í gær. Alls bár­ust 265 til­lögur frá almenn­ingi sam­kvæmt sam­ráðs­gátt­inni, en 26 hug­myndir voru dregnar fram í sam­an­tekt­inni.

Athygli vakti að meðal þeirra sem skil­uðu inn til­lögum í sam­ráðs­gátt borg­ar­innar var odd­viti Við­reisnar, Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, sem var í meiri­hluta borg­ar­stjórnar áður en hann sprakk í febr­úar síð­ast­liðnum.

Hug­mynda­leitin var hluti af því sem lagt var upp með við myndun nýs meiri­hluta VG, Sós­í­alista, Sam­fylk­ing­ar­innar, Flokks fólks­ins og Pírata, að fyr­ir­mynd rík­is­stjórn­ar­innar sem hafði þá óskað eftir sparn­aðar- og nið­ur­skurð­ar­til­lögum frá almenn­ingi. 

Vilja auka notkun á gervigreind

Meðal þess sem borgin leggur til er að nýta gervi­greind betur, að umsjón­ar­menn fast­eigna sjái um að þjón­usta skóla í stað verk­taka og að rýna sér­stak­lega mönnun og skipu­lag verk­efna með hag­ræði að leið­ar­ljósi.

Þá hyggst borgin end­ur­skoða ráð­gjafa­kaup og verk­kaup og tryggja samn­ings­stjórnun auk þess að end­ur­skoða ferla varð­andi ferða­heim­ildir og gera afgreiðslu staf­ræna. Síðustu til­lög­urnar bein­ast að fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði utan kaupa á ráð­gjöfum og verk­tökum, sem nær einnig yfir umhverfis- og skipu­lags­svið.

Vilja minnka kulnun

Meiri­hlut­inn stefnir einnig að því að minnka veik­inda­hlut­fall og kulnun starfs­fólks í allri starf­semi borg­ar­innar og var til­laga þess eðlis jafn­framt lögð fram á sama fundi. Sú til­laga snýr að stýri­hópi sem mun aðstoða stjórn­endur við að greina vand­ann.

Sú áætlun kostar um 40 millj­ónir sam­kvæmt því sem fram kemur í fund­ar­gerð. Á móti telur meiri­hlut­inn að sparn­að­ur­inn hlaupi á hund­ruð millj­óna tak­ist vel upp.

Beðið er eftir kostn­að­ar­mati vegna hug­mynd­anna sem og mati á hversu raun­hæfar þær eru. Oddviti Við­reisnar gagn­rýnir í bókun að lít­ill áhugi hafi verið á hug­myndum hennar og jafn­framt furðar hún sig á seina­gangi í vinnu með til­lögur um hag­ræð­ingu.

Vill leggja niður tvö ráð

Meðal til­lagna Við­reisnar var að leggja niður Mann­rétt­inda­skrif­stofu borg­ar­innar og eins tvö póli­tísk ráð, sem voru ann­ars vegar mann­réttinda­ráð og svo staf­ræna ráðið. Eins lagði Viðreisn til að selja þær fast­eignir sem borgin þarf ekki að eiga að mati Við­reisnar og nefndi Iðnó og hús­næði Tjarn­ar­götu sem dæmi í því til­liti.

Eins og fram hefur komið bár­ust 265 til­lögur um hag­ræð­ingu til borg­ar­innar, en rík­is­stjórn­inni bár­ust rétt um 4000 umsagnir sem voru kynntar í jan­úar síð­ast­liðnum. Hér má skoða allar þær til­lögur sem bár­ust í sam­ráðs­gátt­inni.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár