Miðflokkurinn rýkur upp undir 20% fylgi

Hóf herta bar­áttu í inn­flytj­enda­málum og hefur aldrei mælst sterk­ari.

Miðflokkurinn rýkur upp undir 20% fylgi
Stuðn­ingur eykst enn Snorri Másson og Sigríður Andersen við þing­setn­ingu. Mynd: Golli

Mið­flokk­ur­inn bætir enn við sig fylgi í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallups og er kom­inn í 19,5%, eftir að hafa mælst með 16,3% fyrir mán­uði síðan. Flokk­ur­inn hefur aldrei mælst eins sterkur í könn­un­inni.

Fyrir tæp­lega tveimur vikum vakti athygli þegar Mið­flokk­ur­inn náði 17,3% í könnun Maskínu, sem er meira en áður hafði mælst. 

Hægri flokkar næðu meirihluta þingmanna

Sjálf­stæð­is­flok­ur­inn mælist nú með 16,5% fylgi og Viðreisn 12,8% fylgi. Samtals eru hægri flokk­arnir þrír með 48,8% fylgi og 34 þing­menn, en það dugar fyrir meiri­hluta á Alþingi.

Sam­fylk­ingin mælist þó enn sterk, nú með 31,1% fylgi, en aðrir vinstri flokkar eru veikir.

Píratar, Vinstri græn og Sós­í­alista­flokkur Íslands mæl­ast ekki inni á þingi, ekki frekar en í síð­ustu kosn­ingum.

Frá kosn­ingum hefur Flokkur fólks­ins misst mest fylgi. Flokk­ur­inn fékk 13,8% í síð­ustu kosn­ingum fyrir ári en mælist nú með aðeins 5,2% fylgi. 

Viðreisn hefur misst 3 pró­sentu­stiga fylgi frá kosn­ingum.

Þjóð­ar­púls Gallups hefur enn ekki verið birtur á vef Gallups, en Rík­is­út­varpið er með samn­ing um frum­birt­ingu nið­ur­staðna Þjóð­ar­púls­ins. Þar kemur fram að alls hafi fylgi Sam­fylk­ingar og Mið­flokks­ins auk­ist um 18 pró­sentu­stig frá kosn­ingum.

Könnun Gallups var gerð frá 3. til 30. nóv­em­ber.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er fyrirkvíðanlegur andskoti hvað miðflokkurinn er kominn með mikið fylgi út á mannfjandsamleg málefni. Góðu fréttirnar eru þær að sjálfstæðisflokkurinn er að leka niður.
    1
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Og ef miðflokkurinn nær svo að lokum yfirhöndinni þá verður Anna Stella náfrænkamínafturforsætisráðherrafrú íslands! Oghverásvoaðverakomintvisvarframmínnílífið?
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár