Segir brotið á réttindum drengsins: „Og við tölum um mannréttindabrot á pólskum konum“

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir skorar á inn­an­rík­is­ráð­herra að beita sér í máli fimm ára drengs­ins sem á að senda til Noregs. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son segir að það væri af nógu að taka ef þing­menn ætl­uðu að „gagn­rýna mann­rétt­inda­brot í Evrópu í hvert skipti sem þau eru framin“.

Segir brotið á réttindum drengsins: „Og við tölum um mannréttindabrot á pólskum konum“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerðu mót­mæla­bréf 34 Alþing­is­manna til pólska þings­ins vegna fyr­ir­hug­aðrar laga­setn­ingar um skil­yrð­is­laust bann við fóst­ur­eyð­ingum þar í landi að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. 

Eins og Stundin greindi frá í gær skrif­aði fjöldi þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins ekki undir bréfið, meðal ann­ars for­seti Alþingis og for­menn stjórn­ar­flokk­anna beggja. Guð­laugur Þór og Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir voru einnig í þessum hópi, en Guð­laugur situr í stjórn sam­tak­anna AECR fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins ásamt full­trúa frá Lögum og rétt­læti, pólska stjórn­ar­flokknum sem stendur að hinni umdeildu laga­setn­ingu um afnám und­an­þága frá banni við fóst­ur­eyð­ingum þar í landi. 

„Ef við ætlum hins vegar að gagn­rýna mann­rétt­inda­brot í Evrópu í hvert skipti sem þau eru framin, þá er af nógu að taka, því miður,“ sagði Guð­laugur Þór á Alþingi í dag. en hann er odd­viti á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir þing­kosn­ing­arnar sem fram fara í lok mán­aðar.

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, sem ekki gaf kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu, gerði mál 5 ára íslensks drengs að umtals­efni, en sam­kvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur þarf amma hans að afhenda norsku barna­vernd­inni hann innan tveggja mán­aða. Sagði Ragn­heiður að þing­menn töl­uðu um mann­rétt­inda­brot á pólskum konum og mann­rétt­inda­brot í Sýrlandi en hún sem móðir og amma gæti ekki sætt við að brotin væru mann­rétt­indi á umræddum dreng.

„Nú er í fréttum, virðu­legur for­seti – og kann að vera að við sem lesum frétt­irnar vitum ekki alla mála­vexti – en það er hins vegar nokkuð ljóst að akkúrat í þessum töl­uðu orðum er verið að brjóta mann­rétt­indi á litlum 5 ára dreng sem ákveðið hefur verið að senda til norskrar barna­vernd­ar­nefndar vegna þess að móðir hans, ung kona, átti við áfeng­is­vanda­mál að stríða meðan hún bjó í Noregi.

Hún hóf með­ferð og þegar ljóst var að taka ætti af henni barnið ákvað hún að koma til Íslands. Hún hefur haldið áfram sinni með­ferð, hún hefur verið edrú, hún er virkur alkohólisti en hún hefur verið edrú í langan tíma, hún á hér fjöl­skyldu, en af því að hún var svipt for­ræði yfir drengnum sínum í Noregi – fað­ir­inn býr í Danmörku og hefur engin afskipti af – þá á núna að taka þennan fimm ára dreng og flytja hann til Noregs, koma honum fyrir á fóst­ur­heim­ili á meðan að fjöl­skyldan hans hér á Íslandi og móðir hans eru að taka á sínum málum og vinna í því sem að henni snýr,“ sagði Ragn­heiður og bætti við:

„Þetta þýðir að þessi 5 ára drengur verður í 14 ár á fóst­ur­heim­ili í Noregi. Móðir hans fær að hitta hann tvisvar á ári undir eft­ir­liti. Og við tölum um mann­rétt­inda­brot á pólskum konum og við tölum um mann­rétt­inda­brot á fólki í Sýrlandi. Virðu­legur for­seti, fyrir mig sem þing­mann, fyrir mig sem móður og ömmu, þá er þetta mann­rétt­inda­brot sem ég get ekki sætt mig við og ég skora á hæst­virtan inn­an­rík­is­ráð­herra og Barna­vernd­ar­stofu að ganga í málið nú þegar og koma í veg fyrir að þessi litli 5 ára drengur verði rif­inn frá móður sinni og fjöl­skyldu hér á Íslandi og komið í fóstur í Noregi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþjóðamál

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár