Nýr forsætisráðherra fór strax í frí og svaraði ekki fyrir tafir á birtingu skýrslu

Ráðu­neytið vill ekki upp­lýsa hvort Bjarni Bene­dikts­son sé í emb­ætt­is­er­indum eða fríi meðan rætt er um emb­ætt­is­skyldur hans á Alþingi og það hvernig setið var á upp­lýs­ingum fram yfir þing­kosn­ingar. Fór í skíða­ferð þremur dögum eftir að Alþingi kom saman að loknu löngu jóla­leyfi.

Nýr forsætisráðherra fór strax í frí og svaraði ekki fyrir tafir á birtingu skýrslu

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæðis­flokks­ins, fór í frí til Aust­ur­ríkis tveimur vikum eftir að hann tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Hann hélt utan þann 27. jan­úar og er vænt­an­legur til lands­ins í dag. 

Stundin hefur gert ítrek­aðar til­raunir til að fá stað­fest frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu hvort Bjarni sé erlendis í einka­er­indum eða emb­ætt­is­er­indum. Engin svör fást, hvorki sím­leiðis né í tölvu­pósti.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er Bjarni í skíða­ferð. Fyrir vikið hefur hann ekki getað tekið þátt í umræðum á Alþingi um emb­ætt­is­skyldur sínar og ábyrgð á töfum á birt­ingu skýrsl­unnar um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána. Fram kom í fréttum síð­ustu helgi að loka­drög að skýrsl­unni hefðu verið til­búin í júní 2016 og vinnslu hennar verið end­an­lega lokið fyrir þing­kosn­ingar. Þetta er önnur af tveimur skýrslum sem Bjarni ákvað að sitja á fram yfir kosn­ing­arnar, en hin skýrslan fjall­aði um umfang aflandseigna Íslend­inga og það hvernig rík­is­stjórnir Sjálf­stæð­is­flokks­ins létu undir höfuð leggj­ast að sporna gegn afland­svæð­ingu á útrás­ar­ár­unum. 

Sem fyrr segir tók Bjarni sér frí á föstu­dag­inn í síð­ustu viku, þann 27. jan­úar, en þá voru aðeins þrír dagar frá því að Alþingi kom aftur saman eftir langt jóla­frí sem stóð frá 22. des­em­ber.

Bjarni var gagn­rýndur harð­lega í umræðum á Alþingi um tafir á birt­ingu skýrsln­anna á þriðju­dag. Þá var gerð athuga­semd við að hann væri ekki á staðnum. „Ég verð að nota tæki­færið og kvarta yfir því að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra sé ekki á staðnum og verði ekki hér í þess­ari viku, þar sem það væri mjög gott að geta fengið að spyrja hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra um nákvæm­lega þetta mál,“ sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­kona Pírata.

Athygli vakti þegar Bjarni, þá fjár­mála­ráð­herra, tók sér frí í byrjun jan­úar 2015 þegar verk­fall lækna og kjara­deilur þeirra við ríkið stóðu sem hæst. Þá tók hann sér einnig frí í apríl sama ár, um það leyti sem verk­fall hund­ruða starfs­manna á Land­spít­al­anum skall á. Loks var hann í fríi í Flórída þegar Kastljós sýndi marg­boð­aðan þátt um Panama­skjölin og tengsl ráða­manna við skatta­skjól í apríl síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár