Líf mitt í vændi

„Það er ein­kenni­lega æsandi að vera nafn­laus kyn­lífs­dúkka sem aðrir girn­ast. Það veitir völd og auð­vitað nóg af pen­ingum,“ sagði Arna í við­tali við Frétta­blaðið 2004, þar sem hún dásam­aði vændi út í eitt. Skömmu síðar fékk hún tauga­á­fall, sökk í hyl­djúpt þung­lyndi en brast kjarkur til að fyr­ir­fara sér. Á örskömmum tíma hafði henni tek­ist að rústa lífi sínu. Hún segir frá lífi í vændi, þar sem hún mætti stundum mönnum sem hún þekkti vel fyrir, afleið­ingum þess og von­inni um breytt við­horf.

Líf mitt í vændi
Dásamaði vændi „Ham­ingju­sama hóran“ dásam­aði vændi í við­tali í Frétta­blað­inu árið 2004. Hún sagði vændið vald­efl­andi og veita nóg af pen­ingum. Skömmu síðar fékk hún tauga­á­fall og varð að horfast í augu við veru­leik­ann. Mynd: Kristinn Magnússon

Í hvert sinn sem Arna gengur fram hjá ákveð­inni verslun við Laugaveg fær hún sting í mag­ann. Gömul ónota­til­finn­ing sækir að og fyllir öll vit, hún man enn lykt­ina af gamla mann­inum sem tók á móti henni og leiddi hana niður í dimman kjall­ar­ann þar sem hann hreytti því út úr sér hvort hún ætl­aði ekki að koma sér úr föt­unum áður en hann lagð­ist á hana. Hún man eftir því þegar hún lá á gólf­inu og horfði í kringum sig og velti því fyrir sér hvort hún myndi ekki örugg­lega kom­ast aftur út úr þessum drunga­lega kjall­ara, þar sem lágt var til lofts og fúkka­lykt af veggjum, á meðan hann rumdi ofan á henni. Hún man líka eftir nið­ur­læg­ing­unni sem fylgdi því að ganga út með tutt­ugu þús­und kall í vas­anum og þau skila­boð að hann hefði nú ekki fengið mikið fyrir pen­ing­inn, hún væri svo sem ekk­ert sér­stök. Það var nógu vont að vera í vændi, hvað þá þegar henni var sýnd lít­ils­virð­ing. Allt þetta rifj­ast upp fyrir henni í hvert skipti sem hún fer Lauga­veg­inn. Stundum verður til­finn­ingin svo sterk að hún ótt­ast að koma upp um sig, eins og sam­ferða­fólk hennar skynji hvað er í huga hennar.

Dásamaði vændi

Ekki það að hún þurfi að hafa áhyggjur. Það myndi engan gruna að Arna hefði verið í vændi. Ekkert í fari hennar bendir til þess. Útlit hennar og fas er eins langt frá ster­íótýp­í­unni af vænd­is­konu og hægt er. Þetta er ekki kona sem gerir út á kyn­þokka, heldur gáfur og húmor. Hún er kenn­ara­menntuð, starfar á leik­skóla og er vel liðin af bæði sam­starfs­fé­lögum, for­eldrum og börn­unum sjálfum.

Hún á samt þessa sögu – sem er oft sögð í tengslum við vændi. Áður en hún varð tíu ára hafði hún verið mis­notuð innan fjöl­skyld­unnar, áður en hún varð tví­tug höfðu vinir hennar nauðgað henni og áður en hún varð þrí­tug var hún farin að selja blíðu sína. Hún var ein af þessum „ham­ingju­sömu hórum“ sem sögðu sögu sína í blaða­við­tölum og dásöm­uðu vændi.

Það var þá – á meðan hún reyndi að halda því litla sem eftir var af sjálfs­virð­ing­unni með því að láta eins og allt væri í lagi, leika leik­ritið og gera það vel. Þar kom þó að hún gafst upp og neydd­ist til að horfast í augu við sjálfa sig og gjörðir sínar, sökk í hyl­djúpt þung­lyndi og sjálfs­vígs­hugs­anir. Síðustu tíu ár hefur hún mark­visst unnið að því að styrkj­ast, og nú er hún til­búin til að segja sann­leik­ann um líf sitt í vændi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár