Hvorki ummæli né skýringar ráðherra standast skoðun

Nefnd ráðu­neyt­is­ins hefur ekki fengið til­mæli, fyr­ir­mæli, leið­sögn eða leið­bein­ingar af neinu tagi vegna stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að ekki verði veittar íviln­anir til meng­andi stór­iðju­verk­efna. Orð sem Björt Ólafs­dóttir lét falla á Alþingi þann 9. febr­úar eiga sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum.

Nefnd um veit­ingu íviln­ana til nýfjár­fest­inga hefur ekki fengið til­mæli, fyr­ir­mæli, leið­sögn eða leið­bein­ingar af neinu tagi vegna stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að ekki verði veittar íviln­anir til meng­andi stór­iðju­verk­efna. Verklagi og starfs­reglum nefnd­ar­innar hefur með engum hætti verið breytt. Þetta stað­festir upp­lýs­inga­full­trúi atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins í sam­tali við Stundina. Þannig liggur nú enn skýrar fyrir en áður að orð sem Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra lét falla á Alþingi þann 9. febr­úar síð­ast­lið­inn áttu sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum. Þá stand­ast skýr­ingar hennar á ummæl­unum heldur ekki skoðun.

Eins og Stundin greindi frá í síð­ustu viku fór ráð­herr­ann með rangt mál þegar hún sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma að þriggja manna nefnd ráðu­neyt­is­ins um veit­ingu íviln­ana hefði fengið til­mæli um að leggja aukna áherslu á til­tekin atriði sem kveðið er á um í lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga. Orðrétt sagði Björt: „Í ramma­lög­gjöf­inni er talað um nátt­úru- og umhverf­is­vernd. Við ætlum að draga þá þætti ofar og hafa þá ofar en hina. Sú þriggja manna nefnd sem er í ráðu­neyt­inu hefur fengið þau til­mæli.“ Þegar Stundin óskaði eftir upp­lýs­ingum um til­mælin sem Björt vís­aði til kom í ljós að nefndin hefði engin slík til­mæli fengið. 

Útskýringar Bjartar standast ekki 

Björt hefur útskýrt rang­færsl­una á þá leið að hún hafi ekki verið að vísa til „til­mæla“ heldur „leið­sagnar“. „Orðin „til­mæli“ og „leið­sögn“ eru í minni mál­notkun mjög skyld og þegar ég ræddi þetta við Oddnýju Harð­ar­dóttur í þing­inu var það sú hugsun sem ég vildi færa fram,“ sagði hún í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. Ráðu­neytið kann­ast þó ekki við að nefndin hafi fengið leið­sögn á borð við þá sem Björt lýsti í þing­ræðu sinni.

Ráðherra hefur einnig sagt að með orðum sínum um til­mæli eða leið­sögn hafi hún bein­línis verið að vísa til stefnu­yf­ir­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar og að öll ráðu­neyti vinni nú eftir henni. Hins vegar liggur fyrir að orðin voru látin falla í svari við fyr­ir­spurn sem laut að því hvernig stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar yrði fylgt eftir, þ.e. til hvaða aðgerða, laga­breyt­inga eða stjórn­valds­að­gerða yrði gripið til í því skyni að koma stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni í fram­kvæmd. Tekið skal fram að stefnu­yf­ir­lýs­ingar rík­is­stjórna hafa ekk­ert lög­form­legt gildi. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár