Heimsókn forsætisráðherrafrúar til fiskútflytjanda í Panama-skjölunum vekur hörð viðbrögð

Inn­lits­þáttur Þóru Mar­grétar Bald­vins­dóttur, hönn­un­ar­ráð­gjafa og eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra, er gagn­rýndur fyrir félags­lega og menn­ing­ar­lega firr­ingu. Í nýjasta þætt­inum heim­sækja þátt­ar­stjórn­endur heim­ili manns sem stund­aði aflands­við­skipti og kom fram í Panama-skjöl­unum.

Heimsókn forsætisráðherrafrúar til fiskútflytjanda í Panama-skjölunum vekur hörð viðbrögð
Falleg íslensk heim­ili Stjórn­endur þátt­ar­ins eru gagn­rýndir fyrir grunna umræðu um heim­ili og fyrir að heim­sækja glæsi­heim­ili manns sem birt­ist í Panama­skjöl­unum vegna skatta­skjóls­við­skipta. Mynd: Skjáskot af Stöð 2

Þóra Margrét Bald­vins­dóttir, hönn­un­ar­ráð­gjafi og eig­in­kona Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, heim­sótti nýverið heim­ili fisk­út­flytj­anda sem var í Panama-skjöl­unum, í nýjum inn­lits­þætti sem hún stýrir á Stöð 2. Heim­sóknin hefur vakið hörð við­brögð á Facebook út frá félags­legum og menn­ing­ar­legum for­sendum.

Inn­lits­þátt­ur­inn, sem heitir Falleg íslensk heim­ili, gengur út á að heim­sækja heim­ili og ýmist hrósa eða lasta inn­an­húss­arki­tektúr, hönnun og val inn­an­stokks­muna. Aðrir stjórn­endur þátt­ar­ins eru Gulla Jóns­dóttir, arki­tekt og hönn­uður og Helgi Ómarsson, ljós­mynd­ari og stílisti.  

Svaraði ekki fyrir skattaskjólsfléttu

Sigurður Gísli Björns­son, fram­kvæmda­stjóri fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæmarks, átti aflands­fé­lagið Freezing Point Corp, sem stofnað var í Panama 2009. Í Panam­skjöl­unum var að finna reikn­inga sem gefnir voru út á félagið fyrir um 300 þús­und evrur, eða 36 millj­ónir króna á núver­andi gengi.

Frétta­tím­inn fjall­aði um þann hluta Panama­skjal­anna í októ­ber síð­ast­liðnum.

Aflands­flétta Sigurðar Gísla gekk út á að senda reikn­inga á félag í Kýpur, sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár