„Ég kom hingað í leit að góðu lífi fyrir börnin mín“

Níger­ískri fjöl­skyldu var end­an­lega synjað um hæli síð­ast­lið­inn mánu­dag, tæpum tveimur árum eftir að hún kom til lands­ins. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn liggur þungt hald­inn á geð­deild Land­spít­al­ans en hann hefur verið í hung­ur­verk­falli í rúma viku.

„Ég kom hingað í leit að góðu lífi fyrir börnin mín“
Synjað um hæli Regina ásamt sonum sínum tveimur, Daniel og Felix. Yngri son­ur­inn fædd­ist hér á landi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nígerísk fjöl­skylda verður að öllum lík­indum send úr landi eftir að hafa fengið í tvígang synjun um hæli hér á landi. Fjöl­skyldan hefur verið á land­inu í tæp tvö ár og fædd­ist yngra barn þeirra hjóna hér á landi. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Eugene, hefur verið í hung­ur­verk­falli í rúma viku og hefur legið inni á geð­deild Land­spít­al­ans í fimm daga. Eig­in­kona hans, Regina, seg­ist í sam­tali við Stundina vera þreytt og buguð yfir stöðugri óvissu um fram­tíð barna sinna. „Ég kom hingað í leit að góðu lífi fyrir börnin mín,“ segir hún.

Þekkir ekkert annað heimaland

Regina hefur ekki farið til Nígeríu frá því hún flúði þaðan ásamt systur sinni ein­ungis sex ára gömul. Fyrstu árin bjuggu þær í Líbíu, eða allt þar til borg­ara­styrj­öld braust þar út árið 2008. Þá skildu leiðir þeirra 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár