„Ég er ekki spilltur,“ segir í afsagnarbréfi ráðherrans

Bern­hardt Esau segir af sér en þver­tekur fyrir að hafa þegið mútur. Myndband frétta­stöðv­ar­innar Al Jazeera sýnir Esau sam­þykkja, svo ekki verður um villst, að taka við pen­ingum fyrir að tryggja kvóta.

„Ég er ekki spilltur,“ segir í afsagnarbréfi ráðherrans
Segist ekki vera spilltur en segir samt af sér Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, Bern­hardt Esau, segir að hann hafi alls ekki þegið mútur. Vitn­is­burður Jóhann­esar Stef­áns­sonar er á annan veg og þá sést Esau sam­þykkja að taka við mútum í mynd­bandi af tál­beitu­að­gerð Al jazeera.

„Ég er ekki spilltur“ segir Bern­hardt Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu í afsagn­ar­bréfi sínu sem hann sendi út til fjöl­miðla í Namibíu nú fyrir skemmstu. Hann segir enn fremur að engar sann­anir hafi verið færðar fram um að hann hafi þegið mútur né að hann hafi á nokkurn hátt dregið taum nokk­urra aðila á óeðli­legan hátt í ráð­herra­tíð sinni. Þrátt fyrir þetta ákvað Esau að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna þess að „her­ferð fjöl­miðla“ á hendur honum kynni að skaða flokk hans, SWAPO.

Full­yrð­ingar Esau um að hann sé hvorki spilltur né að hann hafi þegið mútur fá holan hljóm þegar horft er á mynd­band frétta­stöðv­ar­innar Al Jazeera af fundi frétta­manna stöðv­ar­innar með Esau í tál­beitu­að­gerð þar sem hann sam­þykkir að útvega þeim ódýran kvóta gegn greiðslu. Mynd­bandið má sjá neðst í þess­ari frétt.

Afsagn­ar­bréf Esauí bréf­inu er að finna mikla málsvörn ráð­herr­ans fyrr­ver­andi.

Segir engin sönnunargögn um mútur

Í afsagn­ar­bréfi Esau segir hann að eins og vitað sé hafi fjöl­miðlar haldið úti her­ferð gegn honum og sakað hann um spill­ingu í emb­ætti sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Um þetta segir Esau:

1. Ég er ekki spilltur, og mun aldrei mæla spill­ingu bót nokk­urs staðar;

2. Enginn hefur borið á borð fyrir mig nokkur sönn­un­ar­gögn um að Bern­hardt Esau hafi þegið pen­inga eða greiða frá nokkrum manni í skiptum fyrir verk mín sem ráð­herra, og

3. Enginn hefur sýnt fram á að gefin hafi verið lof­orð um greiða gegn greiða, hvorki skrif­lega eða með öðrum hætti, sem ég á hefði gefið nokkrum á meðan að á störfum mínum sem ráð­herrra stóð.

Þrátt fyrir þessa málsvörn sína segir Esau að vegna fjöl­miðla­her­ferð­ar­innar á hendur sér, sem nú sé einnig beint gegn SWAPO flokknum og gegn Hage Geingob for­seta, hafi hann farið fram á það við for­set­ann að fá að víkja sem ráð­herra nú þegar. Það geri hann til að hægt verði að rann­saka ávirð­ingar sem á hann hafi verið bornar.

Tengda­sonur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, þáði mútur frá Samherja og Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja, hefur einnig greint frá því að Tamson hafði milli­göngu um að Esau fengi 18 millj­ónir í reiðufé greiddar frá Samherja. Allt var þetta gert til þess að tryggja Samherja hesta­makríl­kvóta við strendur Namibíu.

Forseti Namibíu, Hage Geingob, sam­þykkti afsögn Esau og einnig dóms­mála­ráð­herr­ans Sacky Shang­hala í dag. Namibískir miðlar greindu frá því í morgun að for­set­anum væri mis­boðið vegna máls­ins og vildi reka ráð­herrana tvo en ítrekað var fjallað um mútu­þægni þeirra í Stund­inni og Kveik í gær. Þeir virð­ast þó hafa fengið rými til að segja sjálfir af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár