Namibísku ráðherrarnir segja af sér

Bernhard Esau og Sacky Shanghala hafa sagt af sér í kjölfar umfjöllunar um mútu­greiðslur Samherja til þeirra.

Ráðherrar segja af sér
Ráð­herrar segja af sér Greint var frá mútu­greiðslum Samherja til ráð­herr­anna í Stund­inni og fleiri fjöl­miðlum.

Bernhard Esau, sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, og Sacky Shanghala dómsmála­ráðherra hafa sagt af sér. Þetta kemur fram í nýrri frétt The Namibian.

Stundin hefur í samstarfi við Kveik, Wikileaks og Al Jazeera greint frá mútu­greiðslum Samherja til þeirra og James Hatuikulipi, stjórnar­formanns ríkis­fyrir­tækisins Fishcor, til að öðlast fisk­veiði­réttindi í Namibíu. Tengslunum var komið á í gegnum tengdason sjávar­útvegs­ráðherrans, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi. Félög í eigu Samherja hafa frá árinu 2012 greitt mörg hundruð milljónir króna í mútur til einstaklinga sem eru tengdir Esau og flokki hans SWAPO.

Áður hafði verið greint frá því að Hage Geingob, forseti Namibíu hafi talið að ráðherrarnir ættu að segja af sér. Forsetinn var upplýstur um málið fyrr á þessu ári, meðal annars með skýrslu frá Martha Imalwa, ríkis­saksóknara Namibíu.

Í gögnum sem Stundin hefur undir höndum um útgerð Samherja í Namibíu koma fram stór­felldar greiðslur, á annan milljarð króna, til aðila sem taka ákvarðanir um sjávarútvegsmál fyrir hönd namibíska ríkisins. Stundin hefur unnið úr gögnunum í samstarfi við Wikileaks, frétta­skýringa­þáttinn Kveik í Ríkis­sjónvarpinu og katörsku sjónvarps­stöðina Al Jazeera. Auk þess að greiða mútur hefur Samherji komið á fót vef aflands­fyrirtækja þar félagið stundar fjármagns­flutninga með litlu gagnsæi og óljósum skatt­greiðslum.

Tálbeituaðferð Al Jazeera

Al Jazeera hefur undan­farið unnið að tálbeitu­aðgerð í Namibíu, þar sem Bernhard Esau samþykkti að útvega ódýran sjófrysti­kvóta gegn greiðslu og bauð ráð við að komast hjá skatta­greiðslum. Upptakan var fyrst birt í Kveik í gærkvöldi.

Í tvígang hafnaði hann beiðni Kveiks um viðbrögð, en ræddi við frétta­menn Kveiks á ráðstefnu í Noregi. Þar hafnaði hann því alfarið að haft vitneskju um mútu­greiðslur. „Farið að rannsaka eitthvað annað,“ sagði hann. 

Í fyrstu sagðist hann ekki þekkja til forsvars­manna Samherja en viðurkenndi síðan að hafa átt fund með Þorsteini Má Baldvins­syni á búgarði í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli siðferðis­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undrast þögn íslenskra stjórn­valda um þá staðreynd að stærsta spill­ing­armál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir tilstilli íslensks fyrir­tækis. Spyr hvort hundrað milljóna styrkur Orkusjóðs sé ríkis­styrkt spilling og sendir forsætis­ráðherra opið bréf og óskar liðsinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­ríkis­ráðherra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Samherja­málið við íslenska ráðherra og aðstoðar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér forseta­embættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arftaki formanns flokksins, sitjandi forseta sem hyggst setjast í helgan stein. Flokkurinn nýtur slíks yfirburðar­fylgis að innan­flokks­kosningin er sögð raun­verulegt forseta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrari í Samherja­málinu, er sáttur við gang rann­sóknarinnar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagnrýnir þó aðgerðar­leysi yfirvalda við því þegar Samherja­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í viðbrögðum Samherja­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum liðist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár