Töldust ekki launþegar og fengu ekki fæðingarorlof

Dæmi eru um að starfs­menn Fjöl­smiðj­unnar hafi ekki fengið fæð­ing­ar­or­lof þar sem greiðslur til þeirra telj­ast til styrks en ekki launa­greiðslna. For­stöðu­maður á Akureyri segir að brugð­ist hafi verið við þessu hjá sinni Fjöl­smiðju.

Töldust ekki launþegar og fengu ekki fæðingarorlof
Fæð­ing­ar­or­lof Hjá sumum af Fjöl­smiðj­unum hafa starfs­menn ekki verið laun­þegar og því ekki unnið sér rétt til fæð­ing­ar­or­lofs. Mynd: Shutterstock

Dæmi er um að þau ung­menni sem starfa hjá Fjöl­smiðj­unni hafi ekki átt rétt á fæð­ing­ar­or­lofi þar sem greiðslur til þeirra telj­ist til styrks en ekki launa­greiðslna. Ekki hefur verið greitt trygg­ing­ar­gjald fyrir vinnu í öllum Fjöl­smiðj­unum, þar sem ungt fólk er þjálfað undir vinnu­mark­að­inn eða frekara nám.

Stundin hefur und­an­farið rætt við fólk sem lenti á milli skips og bryggju hjá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði vegna óhefð­bund­inna aðstæðna þeirra. Þær geta valdið því að for­eldri fái mun lægri greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði en búist var við eða missi jafn­vel rétt­indi sín alfarið. Verk­takar, starfs­menn nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja og fólk í eigin rekstri eru meðal þeirra sem geta lent í þeirri stöðu. For­eldr­arnir lýstu því hvernig reglur sjóðs­ins hefðu valdið þeim áhyggjum ofan á allt annað sem fylgir barn­eignum.

Fjöl­smiðjan er vinnu­setur fyrir ungt fólk á aldr­inum 16 til 24 ára, þar sem þeim gefst tæki­færi til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár