Jón Steinar segir kynferðisbrotamenn saklausa dæmda án nokkurra raka

Fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Jón Steinar Gunn­laugs­son heldur því fram að menn hafi verið dæmdir fyrir kyn­ferð­is­brot og barn­a­níð þrátt fyrir að vera sak­lausir. Slíkt hefur aldrei sann­ast á Íslandi.

Jón Steinar segir kynferðisbrotamenn saklausa dæmda án nokkurra raka
Segir dóm­stóla hafi látið undan Jón Steinar vill meina að dóm­stólar hafi látið undan kröfum um að slaka skuli á sönn­un­ar­kröfum í kyn­ferð­is­brota­málum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, heldur því fram íslenskir dóm­stólar hafi í stórum stíl látið undan kröfum um að slakað verði á sönn­un­ar­færslu í nauðg­un­ar­málum og barn­a­níðs­málum. Af þessum sökum hafi menn verið sak­lausir dæmdir og sömu­leiðis geri þessi staða fólki kleift að „ná sér niðri á öðrum með því að bera fram rangar sak­ar­giftir á hendur þeim.“ Aldrei hefur þó sann­ast að menn hafi verið dæmdir fyrir kyn­ferð­is­brot eða barn­a­níð þrátt fyrir að vera sak­lausir. Þá er aðeins eitt dæmi um að kona hafi verið dæmd fyrir rangar sak­ar­giftir eftir að hafa kært kyn­ferð­is­brot og í dómnum þótti ljóst að konan hefði þjáðst af fölskum minn­ingum. 

Jón Steinar heldur þessu fram í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun. Jón hefur grein­ina á þeim orðum að menn sem nauðgi eða sem mis­noti börn kyn­ferð­is­lega eigi ekk­ert gott skilið. Þeim sem slík brot fremji beri að refsa þung­lega og telur Jón Steinar að lík­legt sé að dómar í slíkum málum séu síst of þungir. Þó beri að nefna að dómar í málum af þessu tagi valdi brota­mönnum oft þyngri við­ur­lögum en ákvarð­aðri refs­ingu. Þeir séu fyr­ir­litnir og missi jafn­vel fjöl­skyldu sína og atvinnu.

Segir dómara ekki eiga að svara því hvað raunverulega hafi gerst

Af þeim sökum sé nauð­syn­legt að dóm­stólar vandi sig sér­stak­lega við með­ferð þess­ara mála enda megi ekki leggja svo þung við­ur­lög á menn án þess að full­kom­lega ljóst sé að þeir hafi framið þau afbrot sem upp á þá eru borin. Sönn­un­ar­byrði í málum af þessu tagi er oft erfið vegna kring­um­stæðna, sjaldan eru vitni að glæpnum og oft er engan brota­vett­vang að finna. Hins vegar er vitað að brota­þolar segja langoft­ast satt og rétt frá brot­unum, þó ekki sé unnt að sanna þau.

„Mikill meiri­hluti af kærum á örugg­lega við rök að styðj­ast. Þessar aðstæður hafa valdið því að fjöldi fólks hefur haft uppi kröfur um að slakað sé veru­lega á sönn­un­ar­kröfum í þessum málum,“ skrifar Jón Steinar. Það sé hins vegar svo að íslensk lög og alþjóð­legar skuld­bind­ingar séu skýrar að því leyti að ekki megi refsa mönnum nema brot sé sannað svo ekki sé hægt að véfengja það með skyn­sam­legum rökum, enda megi ekki refsa mönnum sem sak­lausir séu.

„Afleið­ingin af þessum vinnu­brögðum er sú að svo og svo margir sak­lausir hafa verið rang­lega dæmdir“

„Samt er það svo að íslenskir dóm­stólar hafa látið undan þessum háværu kröfum í stórum stíl. Má jafn­vel segja að búið sé að snúa sönn­un­ar­byrði við. Séu sakir bornar fram verði hinn sak­aði að sanna sak­leysi sitt. Stundum er því líka hrein­lega sleppt í for­sendum dóms að geta um varnir sak­born­ings, sem lög­skylt er að fjalla um. Þetta leiðir til þess að les­endur dóms geta þá ekki lagt sitt mat á úrlausn­ina, þar sem þeim atriðum er sleppt sem henta ekki nið­ur­stöð­unni. Afleið­ingin af þessum vinnu­brögðum er sú að svo og svo margir sak­lausir hafa verið rang­lega dæmdir. Þessar kring­um­stæður eru m.a. til þess fallnar að gera fólki kleift að ná sér niðri á öðrum með því að bera fram rangar sak­ar­giftir á hendur þeim.“

Að mati Jóns verði dóm­stólar að taka sig á í þessum efnum og dóm­arar verði að skilja að þeim sé aðeins ætlað að svara því til hvað hafi sann­ast fyrir dómi en ekki að svara því hvað hafi gerst í raun og veru. Til þess verði þeir að hafa þrek þó slíkt geti dregið úr „per­sónu­legum vin­sældum þeirra á mann­fundum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár