Leggst gegn loftslagsskógi

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, segir skóg­rækt í Reykja­vík í þágu lofts­lags­ins byggja á til­finn­ingarökum.

Leggst gegn loftslagsskógi
Vigdís Hauks­dóttir Borg­ar­full­trúi segir skóg­rækt­ina vera tíma­skekkju. Mynd: gunnarsvanberg.com

Allir full­trúar í umhverfis- og heil­brigð­is­ráði Reykja­vík­ur­borgar studdu til­lögu um lofts­lags­skóg á fundi á mið­viku­dag nema Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins.

Samþykkt var að leggj­ast í skóg­rækt strax á næsta ári í sam­starfi við Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­víkur. Svæði verða valin og gróð­ur­farsút­tektir gerðar til að gæta þess að aðgerð­irnar skili sér í kolefn­is­bók­hald borg­ar­innar.

„Lofts­lags­skógar eru því algjör tíma­skekkja“

Tillagan var studd af full­trúum Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Vigdís lagði fram bókun þess efnis að nauð­syn­legt sé að auka umfang hita­belt­is­skóga og skóga á suð­lægum breidd­argráðum, sam­kvæmt vís­inda­greinum. „Á norð­ur­slóðum eigi hins vegar alls ekki að planta skógi því hann hækki hita­stig jarðar,“ bók­aði hún. „Lofts­lags­skógar eru því algjör tíma­skekkja og einn stór mis­skiln­ingur. Umhverf­is­málin verða að skoð­ast í heild á heims­vísu. Til­fallandi inn­grip eins og lofts­lags­skógar í Reykja­vík eða á Íslandi virð­ast byggj­ast á til­finn­ingum en ekki rökum.“

Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, lét bóka að upp­græðsla lands sé áhrifa­ríkt verk­færi í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár